Feykir - 25.09.2014, Side 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
36
TBL
25. september 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Góður styrkur til Rauða Krossins í Skagafirði
Söfnuðu fyrir
utan Hlíðarkaup
Þessar framtakssömu
stúlkur, Magnea Ósk
Indriðadóttir og Jóna
Karítas Guðmunds-
dóttir, söfnuðu um
daginn 3000 krónum
til styrktar Rauða
krossinum.
Það gerðu þær með því að standa fyrir utan
Hlíðarkaup og selja skraut af ýmsu tagi sem þær höfðu
föndrað sjálfar. Rauði krossinn í Skagafirði þakkar þeim
kærlega fyrir frábært framtak og góðan stuðning. Með
þeim stöllum á myndinni er Ólöf Erla Indriðadóttir. .
/Fréttatilk.
LOGO FYRIR KRÓKSBÍÓ / 15. apríl 2005
>> Hinir sömu sf.
Miðapantanir
í síma
453 5216
Fylgist með okkur
á Facebook
ATH:
Eingöngu er tekið
við miðapöntunum
í gegnum síma.
w
AÐ TEMJA DREKANN SINN 2
með ísl. tali.
Sunnudagur 28. sept.
Kl. 16:00
A HUNDRED
FOOT JORNEY
Mánudagur 29. sept.
Kl. 20:00
AFINN
Sunnudagur 28. sept.
Kl. 20:00
.
Kl. 20:00
A WALK AMONG
THE TOMBSTONES
Fimmtudagur 25. sept
Kl. 20:00
16 12 12
PARÍS NORÐURSINS
Fimmtudagur 2. okt
Kl. 20:00
Framkvæmdir sumarsins á vegum Svf. Skagafjarðar
Mikil bót á samgöngum
um hafnarsvæðið
Fyrst nefnir Indriði Suðurgötu B,
eða botnlangann út úr Suður-
götunni vestan við Faxatorg, en
hann var kláraður í júní en fram-
kvæmdir við götuna hófust í fyrra
haust. Gatan var malbikuð í sumar
og gengið var frá gangstéttum og
götulýsingu. Verktaki var Vinnu-
vélar Símonar ehf. og upphæð
verksamnings hljóðaði upp á
tæpar 11,5 milljónir.
Framkvæmdir við Skarðseyri
hófust í byrjun júní og var gatan
malbikuð um miðjan ágúst og
steyptur kantsteinn í framhaldinu.
Gatan er rúmlega 600m löng og
voru malbikaðir um 6.000m2. „Á
sama tíma unnu verktakar á
vegum FISK að frágangi lóðar við
fiskþurrkunarhús við Skarðseyri
og var lóðin malbikuð í kjölfar
götunnar. Það hefur því verið
líflegt á Eyrinni í sumar. Skarðs-
eyrin er mikil bót á samgöngum
um hafnarsvæðið og mun létta á
umferð um sjálfan hafnarkantinn,“
segir Indriði um framkvæmdirnar.
Unnið er að lokafrágangi meðfram
götunni, þ.e. að jafna úr malar-
haugum og snyrta svæðið um-
hverfis götuna. Verktaki er Steypu-
stöð Skagafjarðar ehf. og er
kostnaður við verkið um 50
milljónir skv. verksamningi.
Af öðrum verkefnum nefnir
hann malbikun göngustíga í
Varmahlíð en unnið er að frá-
gangi, þ.e. snyrtingu á köntum og
þökulagningu. Einnig hefur nýju
þjónustuhúsi verið komið fyrir við
tjaldsvæðið á Hofsósi, salerni fyrir
hreyfihamlaða í félagsheimilinu
Höfðaborg á Hofsósi, endurnýjun
fráveitulagna í Varmahlíð, körfu-
boltavöll við Árskóla á Sauðárkróki,
frágang við nýjan inngang að
íþróttahúsi á Sauðárkróki, endur-
bætur á sundlaug Sauðárkróks og
svo mætti áfram telja.
Framundan segir Indriði á
stefnuskránni að hefja vinnu við
lyftuhús við Safnahúsið á Sauðár-
króki og endurbætur á slökkvi-
stöðinni á Sauðárkróki, ásamt fleiri
verkefnum. /BÞ
Það hefur verið töluvert um framkvæmdir á vegum Sveitarfélagsins
Skagafjarðar í sumar. Helstu framkvæmdir hafa verið gatnagerð,
göngustígagerð í Varmahlíð, vinna við íþróttamannvirki, svo dæmi
séu tekin. Feykir hafði samband við Indriða Þ. Einarsson sviðsstjóra
veitu- og framkvæmdasviðs Svf. Skagafjarðar og spurði hvað væri það
helsta sem hefur verið unnið af hendi sveitarfélagsins sl. mánuði.
Framkvæmdasvæðið á Skarðseyri fyrr í vikunni. MYND BÞ
Frá framkvæmdum á Suðurgötu B í vor. MYND BÞ