Feykir


Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 2

Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 2
2 38/2014 Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Tískustraumar og byggðastefnupólitíkin Ég hef fylgst með umræðunni um meðferðastofnunina Há- holt í Skagafirði undanfarna daga sem virðist að mestu hafa snúist upp í byggðastefnupólitík. Helstu punktar sem dregnir hafa verið fram í dagsljósið er að ákveðið hefur verið að leggja fé í stofnunina þrátt fyrir að Barna- verndarstofa sé á móti henni, væri ekki betra að verja þessu fé til uppbyggingar á höfuðborgar- svæðinu? Sagt er að verið sé að kasta peningum í glæ þar sem meðferðarstofnunin sé lítt notið og standi jafnvel auð til lengri og skemmri tíma. Er það ekki Barnaverndarstofa sem vísar börnum á stofnunina? Er þá að undra þótt hún sé ekki mikið nýtt – maður spyr sig? Það virðist vera í tísku um þessar mundir að börn séu til meðferðar í grennd við heimili og fjölskyldur sínar og gefur það sjálfsagt góða raun í mörgum tilvikum. En er ekki gott að hafa í handraðanum fjölbreyttari úrræði meðferða, kannski þurfa einstaka börn öðruvísi meðferð en stendur til boða á höfuðborgarsvæðinu, og jafnvel gætu foreldrar eða systkini þurft á hvíld að halda til hlaða batteríin ef öll samskipti eru farin í þrot. Ýmsir kostir hafa líka verið taldir við að taka unglinga úr umhverfi sínu, nýtt umhverfi, fólk og ný byrjun, fjarlægð frá óæskilegum aðstæðum, fólki og e.t.v. vímugjöfum. Svo má einnig velta upp þeirri spurningu um foreldra barna sem búsett eru á landsbyggðinni og eiga í erfiðleikum. Eiga þeir að vera rórri yfir því að senda börn sín til Reykjavíkur til meðferðar? Sjónarhorn og reynslusögur aðstandenda og þeirra sem hafa verið til meðferðar á Háholti hefur að mínu mati skort í þessa umræðu sem ætti ekki síst að geta varpað ljósi á gildi stofnunarinnar, þ.e. hvernig meðferðir þar hafa gefist og hvernig skjólstæðingum Háholts hefur reitt af að meðferð og vistun lokinni? Með því að segja að það sé ekki í tísku að senda börn út á land þá er ég ekki að gera lítið úr þeim meðferðarúrræðum sem standa til boða. En það eru auðvitað gildandi stefnur og síbreytilegir straumar sem móta allt sem snýr að öllu því sem er mannlegt, hvort sem það er uppeldisfræði, félagsfræði, sálfræði, hagfræði eða fornleifafræði. En það að loka stofnun þar sem byggt hefur verið upp gott starf í gegnum árin með hag skjólstæðinganna að leiðarljósi, virkar sem skammsýni fyrir mér. Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri Líflambadagur austan Vatna Forystufé til sýnis og sölu Líflambadagur hreppanna fornu, Fells- og Hofs-, Hóla- og Viðvíkurhreppa verður haldinn á Melstað í Óslandshlíð laugardaginn 11. október og opnar fjárhúsið kl 13:00. Á dagskránni er m.a. lambhrútasýning, alvanir þuklarar munu þreifa sig áfram og raða hrútum í sæti. Úrval hrúta og gimbra til sölu. Forystufé til sýnis og sölu. Hrútauppboð þar sem Gísli Einarsson mun sjá til þess að hrútar verði slegnir á réttu verði. /Fréttatilk. Sameining heilbrigðisstofnana gengin í gegn HS og HSB sameinaðar Formleg sameining heil- brigðisstofnana á Norður- landi, Suðurlandi og Vestfjörðum tók gildi þann 1. október. Á vef Velferðarráðuneytisins kemur fram að yfirstjórnum heilbrigðisstofnana fækkar um átta og aðeins ein heilbrigðis- stofnun starfar í hverju heil- brigðisumdæmi þótt starfs- stöðvar séu víða. Heilbrigðis- stofnun Norðurlands varð til við sameiningu heilbrigðisstofnan- anna á Blönduósi, Sauðárkróki og í Fjallabyggð, heilsugæslu- stöðvanna á Dalvík og Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Þingey- inga. Forstjóri er Jón Helgi Björns- son. /BÞ Dreifnám FNV á Hvammstanga Í frumvarpi til fjárlaga 2015 kemur fram að tímabundin fjárveiting vegna framhaldsdeildar á Hvammstanga sé felld niður. Þau svör hafa nú fengist frá ráðuneyti menntamála til sveitarstjórnar Húnaþings vestra að framlag til deildarinnar sé tryggt og að árið 2015 verði eins og gert var ráð fyrir í sóknaráætlun. Á vef Húnaþings vestra kemur fram að um er að ræða hluta af heildarframlagi til deildarinnar, þ.e. 3,4 m.kr. af 6,2 m.kr. framlagi sem gert er ráð fyrir til deildarinnar á yfirstandandi ári. „Í fjárlögum 2014 var veitt 25 m.kr. framlag til að styrkja framhaldsdeildir á landsbyggðinni og er gert ráð fyrir að það sem upp á vantar vegna framlags til framhaldsdeildar á Hvamms- tanga verði tekið af því fé á næsta ári.“ Loks segir að á fundi sveitarstjórnar með þing- mönnum kjördæmisins sl. fimmtudag hafi komið fram einarður vilji allra að fjár- mögnun dreifnáms í sveitar- félaginu verði tryggð til næstu 5 ára og hún sér-greind á fjárlögum. /BÞ Framlag tryggt næsta árið 500 milljóna samningur við Háholt til næstu þriggja ára Húsnæðið að verða til- búið fyrir nýtt hlutverk Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum undanfarna daga stendur til að gera 500 milljóna króna samning til næstu þriggja ára við meðferðarheimilið Háholti í Skagafirði. Þar verður á þessu tímabili boðið upp á vistun ungra fanga, í stað þess að þeir afpláni í hefðbundnum fangelsum eins og nú er raunin. Er samningurinn til kominn vegna ákvörðunar Alþingis um að löggilda samning sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. Löggildingin hefur í för með sér að yfirvöldum er uppálagt að hafa tilbúið úrræði er fullnægir þörfum um afplánun og samræmist hugmyndum um afplánun í meðferð. Því hefur Barnaverndarstofa ákveðið að Háholt verði hvort tveggja í senn meðferðarheimili og afplán- unarstaður fyrir börn sem fá óskilorðsbundna dóma. Í því felst ákveðin hagræðing og sam- nýting á húsnæði og mannafla. Í fjölmiðlaumfjöllun um málið hefur komið fram að Barna- verndarstofa hafi lagst gegn ákvörðuninni en jafnframt að barnaverndarnefndir um allt land hafi lýst ánægju sinni með 15 ára faglegt starf Háholts og að þar sé mikil fagleg þekking til staðar og starfsemin öll fari faglega fram. Húsnæðið er nú um það bil að verða tilbúið til að gegna nýju hlutverki en hingað til hefur einungis verið rekið þar meðferðarheimili. Á Háholti geta dvalið allt að þrjú börn í einu en geta orðið fjögur við tilkomu nýs hlutverks. Það sem af er ári er nýtinga- hlutfallið 70%. Ellefu starfsmenn starfa á Háholti í dag í rúmlega níu stöðugildum, auk kennara og sálfræðings í hlutastarfi. Starfs- menn hafa gegnum tíðina sótt sér mikla fagþekkingu og starfsmannavelta er lítil á staðnum. Þá er viðbragðstími lögreglu mjög stuttur, þar sem heimilið er staðsett skammt frá Sauðárkróki. /KSE Blönduós Vill skýringar á ráðstöfun SSNV Byggðaráð Blönduósbæjar harmar þá ráðstöfun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra að leggja niður starfsstöð atvinnuráð- gjafa á Blönduósi. Byggða- ráðið vekur jafnframt athygli á því að á sama tíma er auglýst eftir atvinnuráðgjafa þar sem starfsstöð hans er auglýst sérstaklega. Byggðaráð óskar eftir skýringu á þessari ráðstöfun. Á Húna.is kemur fram að þetta er ekki í fyrsta sinn sem byggðaráð óskar eftir skýring- um, því í júlí sl. var óskað eftir því að stjórn SSNV skýrði sérstaklega þá ákvörðun sína að leggja niður starf atvinnuráðgjafa á Blönduósi án kynningar og samráðs við sveitarstjórn. Þá hvatti byggðaráð stjórn SSNV til virkari samskipta við sveitar- stjórnir með aukinni upplýsinga- gjöf og benti m.a. á að nauðsynlegt væri að fundargerðir stjórnar yrðu aðgengilegri á vef samtak- anna mun fyrr en tíðkast hefur og að sveitarstjórnir yrðu upplýst- ar um t.d. skipulagsbreytingar og starfsmannamál. /BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.