Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 4
4 38/2014
Aflatölur 28. september - 4. október
Um 400 tonn að landi
Í viku 40 var rétt tæpum 200 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var tæpum 190 tonnum landað á
Sauðárkróki og tæpu 1,4 tonni á Hofsósi. Ekkert var róið frá Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KGSKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Hamar SH-224 Lína 21.260
Sighvatur GK-57 Lína 169.630
Stella GK-23 Landb. lína 4.738
Alls á Skagaströnd: 199.905
Farsæll SH-30 Botnvarpa 42.994
Gammur SK-12 Þorskfisknet 2.120
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 938
Klakkur SK-5 Botnvarpa 131.078
Már SK-90 Handfæri 270
Óskar SK-13 Handfæri 444
Röst SK-17 Rækjuvarpa 10.460
Steini Sk-14 Handfæri 413
Vinur SK-22 Handfæri 610
Þytur SK-18 Handfæri 266
Alls á Sauðárkróki 189.593
Ásmundur SK-123 Landb. lína 1.365
Alls á Hofsósi 1.365
Sviðamessa og sviðamessa!
Opið fyrir pantanir
Nú er opið fyrir pantanir á
sviðamessu húsfreyjanna á
Vatnsnesi í Hamarsbúð á
Vatnsnesi. Að þessu sinni
verða hvorki meira né minna
en þrjú kvöld, 10., 11. og 18
október nk.
Allt er að verða klárt og
frábærir veislustjórar og tón-
listarmenn munu koma fram öll
þrjú kvöldin, segir í tilkynningu
frá húsfreyjunum.
Miðaverð er kr. 4.000. Hægt
er að panta hjá Báru, en ein-
göngu er tekið á móti pöntunum
í síma 847 7845 (Bára) frá og
með 6. – 9. okt. n.k. eftir kl. 17.
/KSE
Ýmsar framkvæmdir
í farvatninu
Blönduósbær
Blönduósbær hefur staðið í
ýmsum framkvæmdum í
sumar, en að sögn Arnar Þórs
Sævarssonar bæjarstjóra
hafa ýmsar framkvæmdir á
húsnæði í eigu sveitarfélags-
ins og gatnaframkvæmdir
verið þær helstu að undan-
förnu, auk þess sem
fuglaskoðunarhúsi var komið
fyrir á staðnum í sumar. Þá
standa fyrir dyrum töluverðar
endurbætur á Skrapa-
tungurétt.
Nýlega var loftræsting á efri hæð
íþróttamiðstöðvarinnar lagfærð
og sama er að segja um loft-
ræstingu í leikskólanum. Þá
hefur verið unnið að utanhúss-
veggklæðningu í bíósal félags-
heimilis og unnið að ýmsu smá-
viðhaldi á fasteignum, svo sem
málun glugga og slíku, að sögn
Arnars.
Lokið er við jarðvegsskipti og
útlagningu á klæðningu á Aðal-
götu og var eitt yfirlag sett á
götuna en ákveðið að bíða með
seinna yfirlagið til næsta árs. Þá
þarf einnig að endurnýja kant-
steina og lagfæra gangstéttir.
Verktaki á vegum Vegagerðar-
innar er um þessar mundir að
ljúka endurbótum á Svínvetn-
ingabraut en búið er að leggja
klæðingu upp fyrir afleggjarann
að Köldukinn.
Snemma í sumar var svo
komið upp fuglaskoðunarhúsi í
bænum og var það formlega vígt
á Húnavökuhátíð í júlí. Einnig er
búið að útbúa fuglaskoðunar-
skilti og er eitt staðsett við húsið
en tvö önnur verða við ósa
Blöndu og eitt neðan lögreglu-
stöðvar. Þá var útbúið bílastæði
og aðkoma að húsinu og verður
farið í fráganga á stíg, tröppum
og gróðri nú í haust.
Hvað fráveitumál varðar
hefur verið unnið að endur-
bótum á dælubrunni fráveitu
neðan sláturhússins en mikið
álag er á þeim dælubrunni og
höfðu festingar gefið sig. Þá er
verið að endurnýja stýritölvu í
stýribúnaði hreinsistöðvar en
hún skemmdist við straumrof í
fyrravetur.
Loks kom fram í máli Arnars
Þórs að ráðist hefði verið í
lagfæringar á Skrapatungurétt.
Ákveðið var í samvinnu við
Skagabyggð, á fundi byggðarráðs
í sumar, að ráðast í framkvæmdir
fyrir tvær milljónir króna frá
eigendum auk þess sem Vega-
gerðin leggur eina milljón í
endurbætur á veginum frá
réttinni. Hefur vegurinn verið
lagfærður, skipt um ræsi auk
þess sem ráðist var í endurnýjun
girðingar meðfram vegi, í sam-
starfi við eiganda Skrapatungu.
Þá verður farið í grjótvörn á
áreyrum við réttina. Loks þarf
að fjárfesta í nýju ristarhliði og
gera ráð fyrir endurbótum á
réttinni sjálfri á næsta ári, að
sögn Arnars. /KSE
Skrapatungurétt. MYND: BÞ
Það er Róbert Daníel
Jónsson, forstöðumaður
íþróttamiðstöðvarinnar á
Blönduósi sem tekur áskorun
frá Höskuldi Erlingssyni og
svarar spurningum í þættinum
að þessu sinni. Róbert er
Liverpool maður og hefur verið
það frá barnæsku og spáir hann
Liverpool í topp 4 og að þeir nái
meistaradeildarsæti í ár.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
-Liverpool er mitt uppáhaldslið og
það er vegna þess að þegar ég fór
að fylgjast með enska boltanum
með pabba sem ungur drengur
var það mest spennandi liðið á að
horfa.
Hvernig spáir þú gengi liðsins
á tímabilinu? -Ég spái því að
Liverpool verði í topp 4 og nái í
meistaradeildarsæti ár.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag?
-Nei, alls ekki, við eigum að
geta gert mikið betur. Þeir virka
þunnir eftir síðasta tímabil og ekki
sannfærandi. Erfitt að missa titilinn
eftir að vera með hann í höndunum
á lokakaflanum. Það tekur á og
svo var ekki gott að missa Suarez
fótboltalega séð.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? -U....JÁ (stórt
bros). Samt aldrei neitt alvarlegt,
hef lúmskt gaman að smá stríðni
og rökræðum. Get verið duglegur
að stríða stuðningsmönnum Man
utd á netinu/Facebook ef illa
gengur hjá þeim.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? -Ég hélt rosalega
mikið uppá Torres þegar hann var
uppá sitt besta hjá okkur, verð að
segja hann. Síðan er að sjálfsögðu
Gerrard sem ég ber mikla virðingu
fyrir.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? -Nei, því miður.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? -Ég á eitthvað sem tengist
liðinu en ekki mikið, held mest upp
á húfu sem ég fékk frá Liverpool
klúbbnum sem ég nota oft í útivist
og veiði.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið? -Ég á þrjú börn, Daníel
Mána 13 ára sem heldur með Man
utd, Ísól Kötlu 10 ára sem heldur
með Liverpool og síðan Óskar
Sólberg sem er að verða 5 ára og
segist oftast halda með Liverpool.
Ég er ekki mikið í því að stjórnast
með hvaða liði þau halda, fá bara
að ráða því sjálf. Daníel sefur samt
í bílskúrnum á dýnu á meðan hann
er að komast yfir þetta vandamál.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag?
Róbert Daníel Jónsson Blönduósi
Ekki sáttur við stöðu
Liverpool í dag
( LIÐIÐ MITT ) kristin@feykir.is
-Þetta getur ekki verið spurning!
Það gerir maður ekki.
Uppáhalds málsháttur?
-Þeir eru tveir í uppáhaldi: „Aldrei
einn á ferð.„ „You'll never walk
alone.“ „Stundum skín sólin á
hundsrassgat.“
Einhver góð saga úr boltanum?
-Ein góð sem ég man af sjálfum úr
boltanum þegar ég var spila í 3ja
flokki fyrir Bolungarvík á móti liði í
Reykjavík sem ég man núna ekki
hvað var. Þeir voru að vinna okkur
með tveimur mörkum og þjálfarinn
kallar á mig og ætlar að skipta mér
útaf þegar 10 – 15 mín. voru eftir af
leiknum, ég kallaði þá til baka: „Ég
er ekki þreyttur“. Þjálfaranum fannst
þetta svo fyndið að hann leyfði mér
að klára leikinn. Ég er samt ekki
viss um að öllum hafi fundist þetta
fyndið á þeim tíma.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið fyrir?
-Ég er alltaf hrekkja eitthvað, ég
skal nefna einn hrekk sem mér
fannst ágætur. Eftir tap Man utd á
móti Liverpool fyrir nokkrum árum
síðan var ég staddur heima hjá
tengdapabba sem heldur mikið með
Man utd. Ég hafði fyrir því að draga
klósettrúlluna á klósettinu heima hjá
honum langt út og skrifa Man utd á
hvert blað nema það fyrsta þannig
að það sæist ekki hvað ég hafði gert
þegar hann kom til nota aðstöðunu.
Ég fjarlægði líka allar auka rúllur til
að hafa þetta öruggt. Hann vildi nú
ekki meina að hann hafi ekki þurft
að nota þessa ákveðnu rúllu en ég
sá að það vantaði á rúlluna og þá
gat ég brosað smá.
Spurning frá Höskuldi: Er það rétt
að stjórnendur Liverpool séu búnir
að ráða Balotelli aðstoðarmenn til
að aðstoða hann við að komast í
búninginn?
-Hefur aldrei verið vandamál hjá
honum að komast í búninginn,
hinsvegar er vestið vandmál á
æfingum. Þeir leysa það þannig að
þeir hafa hann alltaf í liðinu á æfingu
sem er ekki í vesti.
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum? -Mig langar á
sjá vin minn hann Tryggva Björnsson
svara næst.
Hvaða spurningu viltu lauma að
viðkomandi? -Hvað finnst þér það
besta við Steven Gerrard?