Feykir


Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 3

Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 3
38/2014 3 Hrútadagur í Fljótum vel sóttur Það var fullt af fólki og fé í fjárhúsunum á Þrasastöðum í Stíflu síðast liðinn laugar- dag en þá stóð Fjárræktar- félag Fljótamanna fyrir hrútadegi annað árið í röð. Á hrútadeginum var hægt að fjárfesta í kynbótalömbum, sjá hrútasýningu og lamba- sýningu sem börnin stóðu fyrir. Boðið var upp á léttar veitingar að hætti Fljótakvenna og einnig var heimaframleiðsla Fljótamanna kynnt. Fjöldi fólks lagði leið sína í Fljótin og tók þátt í skemmtilegum degi. Þeirra á meðal var Birgitta Lúðvíksdóttir, ættuð frá Mola- stöðum í Fljótum, sem góð- fúslega sendi Feyki þessar skemmtilegu myndir. /KSE Gestir á Hrútadegi í Fljótum skemmtu sér vel. MYNDIR: BIRGITTA L. Helgi Björns á tónleikaferðalagi Troðfullur salur á Kaffi Krók Helgi Björns hélt tónleika á Kaffi Krók á laugardagskvöldið. Tónleikarnir voru hluti af 30 tónleika röð Helga á hringferð um landið, þar sem hann fagnar 30 ára söngafmæli sínu. Helgi rifjaði ferilinn upp á gamansaman hátt, í tali og tónum, og sagði tónleikagestum, sem fylltu neðri salinn á Kaffi Krók, sögurnar á bak við lögin. Með Helga í för var Guðmund- ur Óskar Guðmundsson bassa- leikari úr Hjaltalín. Í farteski þeirra félaga var skemmtileg sviðsmynd sem innihélt ýmsa muni sem þeim höfðu verið gefnir í ferðinni. Á Króknum Tónleikagestur tekur lagið með Helga og Guðmundi Óskari. MYND: KSE Margt um manninn í fjárhúsunum á Þrasastöðum Hrútar þuklaðir og þreifaðir. Börnin sýndu vel valin lömb. Gestir fengu að smakka heimaframleiðslu Fljótamanna. Myndasamkeppni Átt þú forsíðumynd á Jólablað Feykis? Jólablað Feykis kemur út 27. nóvember nk. og er dreift frítt í öll hús á Norðurlandi vestra. Jafnan ríkir mikil eftirvænting fyrir útkomu blaðsins og í hugum margra markar það upphaf aðventunnar. Hefð er fyrir því að forsíðu blaðsins prýði falleg mynd og leitum við því til þín að senda inn mynd í samkeppni um forsíðuna. Myndaval er frjálst en skal vera í anda jólanna. Hafa ber í huga að lögun myndarinnar þarf að vera í svokölluðu portait og haus Feykis þarf að komast fyrir efst. Frestur til að skila inn myndum er til 8. nóvember nk. og berist þær á netfangið feykir@feykir.is. Vegleg verðlaun í boði – fylgstu með á Feykir.is Athugið! Feykir áskilur sér rétt til að birta þær myndir sem berast. FRÉTTA- OG DÆGURMÁLABLAÐ Á NORÐURLANDI VESTRA bættust í sarpinn kartöflupoki til hörðu áranna og skilti með áletruninni „holóttur vegur“ sem var vísan til þess að leið Helga og Guðmundar Óskars lægi næst á Vestfirðina. Undir- tektir tónleikagesta voru góðar og tóku þeir hressilega undir í kunnuglegum lögum sem Helgi flutti af innlifun. /KSE Vatnsvélar í íþróttahúsið í Varmahlíð Kvenfélögin styrktu kaupin Varmahlíðarskóli er einn af þeim grunnskólum sem starfa undir stefnu heilsueflandi skóla. Þar er því mikið lagt upp úr vatnsdrykkju, ekki síst eftir íþróttir og sund. Nýlega var fjárfest í vatnsvélum í íþróttahúsinu í Varmahlíð, en það voru kvenfélögin í fjórum hinna fornu hreppa sem að húsinu standa sem gáfu pening í verkefnið. Að sögn Moniku Borgars- dóttur, umsjónarmanns Íþrótta- hússins í Varmahlíð, kom Kvenfélagið í Seyluhrepp hinum forna að máli við hana og vildi gefa pening til kaupa á vatnsvél í húsið. Í kjölfarið voru hinum kvenfélögunum, í Staðarhrepp, Akrahrepp og Lýtingsstaða- Monika og Elín frá Kvenfélagi Lýtingstaðastaðahrepp hinum forna. hrepp hinum fornu send bréf þess efnis hvort þau vildu einnig styrkja verkefnið. „Öll félögin komu að þessu verkefni og gáfu pening, sem varð til þess að við fengum tvær vélar í húsið. Við erum mjög þakklát fyrir þessar rausnarlegu peningagjafir,“ sagði Monika í samtali við Feyki nú í vikunni. /KSE

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.