Feykir


Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 8

Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 8
8 38/2014 Sáu bólstrana bera við himinn Björgunarsveitin Húnar stendur eldgosavaktina í Austur-þýsku vígvallasjúkraskýli Björgunarsveitin Húnar var við gæslu vegna eldgossins í Holuhrauni helgina 26. – 29. september. „Starf þeirra sem sinna vakt á lokunarpóstunum er að sjá til þess að þeir sem fara inn á lokaða svæðið hafi tilskilin leyfi til þess að fara inn á svæðið, sem og þurfum við að tilkynna er fólk fer inn og út af svæðinu,“ segir Gunnar Örn Jakobsson, formaður björgunarsveitarinnar. Sveitin var staðsett í Kreppu- tungu, suður af Möðrudal á fjöllum, í þrjá sólahringa samfleytt frá föstudegi til mánudags. „Á vakt eru tveir menn allan sólarhringinn og við skiptum mannskapnum í tvo hópa. Annar var frá föstudegi og fram á sunnudag en þá tók seinni hópurinn við og kláraði vaktina,“ útskýrir Gunnar. Hann segir vaktina hafa verið tíðindalitla, nema hvað að veðrið hafi alltaf verið að breytast allt frá sólskini og blíðu í snjókomu og sand- storm. „Þar sem við vorum staðsettir þó nokkuð frá gos- stöðvunum sáum við lítið af gosinu nema rétt bólstrana sem báru við himinn. Einnig vorum SAMANTEKT Berglind Þorsteinsdóttir MYNDIR: BJSV HÚNAR við lausir við alla mengun frá gosstöðvunum meðan okkar vakt stóð yfir.“ Björgunarsveitarmenn höfðust til í Austur-þýsku víg- vallasjúkraskýli í eigu Björg- unarsveitarinnar Héraðs á Egilsstöðum. Gunnar segir skýlið henta vel í þetta verkefni en þar hefur öllum nauðsyn- legum búnaði verið komið fyrir. Þetta var ekki fyrsta vaktin sem Húnar hafa staðið í sam- bandi við eldgosið í Holu- hrauni en fyrr í september voru þeir við Tómasarhaga á Sprengisandi. Að þessu sinni er það Sigurpáll Aðalsteinsson, í daglegu tali nefndur Siggi Doddi, sem svarar Tón-lystinni. Siggi Doddi (1970) býr í Fellstúninu á Króknum en er alinn upp á Húsavík. Hann spilar á hljómborð og oftar en ekki með hljómsveitinni Von. Þá er kappinn í landsliðsflokki í veitinga- og skemmtanabransanum en Siggi Doddi rekur ásamt konu sinni veitinga- og skemmtistaði á Króknum og á Akureyri. Helstu tónlistarafrek: -Að fá að spila ball með Stjána Gísla. Uppáhalds tónlistartímabil? -1980 til 1990. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? -Íslensk tónlist. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? -Allt með Bo. Frú Unnur (mamma) keypti allt sem Bo gaf út. Hver var fyrsta platan/diskur- inn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? -Held að það hafi verið plata með Rut Reginalds, ekki man ég nú nafnið á henni. Hvaða græjur varstu þá með? -Gamlar Sharp. Hvað syngur þú helst í sturtunni? -Syng bara alls ekki í sturtu. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? -Glaðasti hundur í heimi. Uppáhalds Júróvisjónlagið? -Waterloo og Eitt lag enn eftir Bassa vin minn. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? -Sálina og jafnvel Stjórnina. Þegar mundi líða á þá kæmi Bon Jovi sterkur inn. Þú vaknar í rólegheitum á sunnu- dagsmorgni, hvað viltu helst heyra? -Vakna sjaldan snemma á sunnu- dagsmorgni, en yfirleitt sönglar í eyrunum á mér það sem ég var að spila um nóttina. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? -Ég myndi taka Kristínu með mér að sjálfsögðu – veit ekki hvert, bara þar sem Bon Jovi væri með tónleika. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? -Stebbi Hilmars. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? -Í bítið með Von. Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? -Ég læt Spotify sjá um að setja saman playlista fyrir mig svo listinn er mismunandi eftir dögum og tilefnum. Sigurpáll Aðalsteinsson / hljómborð Syngur bara alls ekki í sturtu ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Siggi Doddi og Baldur Þór systursonur hans reffilegir saman. MYND: ÚR EINKASAFNI

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.