Feykir - 13.11.2014, Blaðsíða 6
6 43/2014
Geirmundur verður hugsi dá-
litla stund þegar blaðamaður
spyr hvað ferillinn spanni
orðið langan tíma. Hann er þó
alveg með það á hreinu að hafa
spilað á sínu fyrsta balli aðeins
15 ára. Geirmundur rifjar í þessu
samhengi upp að gárungur hafi
einhvern tímann sagt að hann
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
farinn að spila á hann á böllum
eftir svona ár,“ segir Geirmundur
og bætir við að hann hafi farið
suður tvo vetrarparta og lært hjá
Berta Möller á gítar og Gretti
Björns á harmónikku. „Í dag,
eftir öll þessi ár, sér maður eftir
að hafa ekki lært meira. Hafa til
dæmis farið í píanónám. En
hljómsveitirnar voru númer eitt,
tvö og þrjú á þessum tíma.“
Árið 1965 lagði hljómsveit
væri búinn að spila svo lengi að
Grettir Ásmundsson í Drangey
hafi náð einu af fyrstu böllun-
um. En til að halda sig við stað-
reyndir byrjuðu Geirmundur
og Gunnlaugur bróðir hans að
læra á harmónikku þegar
Geirmundur var ellefu ára,
fengu hana lánaða á næsta bæ
og síðar var fjárfest í einni slíkri.
Þeir bræður ólust upp við mikla
tónlist og söng á heimilinu,
móðir þeirra söng í kirkju-
kórnum og faðir þeirra í
Karlakórnum Heimi.
Fljótlega stofnuðu bræðurnir
hljómsveit og fengur til liðs við
sig sveitunga í Sæmundarhlíð-
inni, Jón á Fosshóli, sem spilaði
á trommur. Fékk hljómsveitin
nafnið Rómó og Geiri. „Eftir ár
fékk ég mér gítar, það var ekki
nógu sniðugt að vera að skjögta
með tvær harmónikkur. Ég var
þeirra bræðra upp laupana en
stofnuð var hljómsveitin Geislar,
og starfaði hún eitt sumar.
„Síðan fór ég í hljómsveit sem
var starfandi á Sauðárkróki og
hét hljómsveit Hauks Þorsteins-
sonar, Haukur var nú ekki í
henni nema eitt ár, þá var hún
skírð upp og hét Flamingó. Hún
starfaði til ársloka 1970. Síðan
1971 varð hljómsveit Geirmund-
ar til,“ rifjar Geirmundur upp.
Hann segist þó einn eftir úr
hinni upprunalegu hljómsveit,
en miðað við hvað þetta sé
orðinn langur tími hafi ekki
orðið miklar breytingar á mann-
skap í gegnum tíðina. Segja má
að hljómsveit Geirmundar hafi
strax slegið í gegn, en árið 1972
kom út tveggja laga plata með
laginu Bíddu við. Gefin var út
önnur tveggja laga plata, en hún
innihélt lagið Nú er ég léttur.
Bæði lögin slógu í gegn og fór
hljómsveitin að spila um allt
land.
Um nokkurra ára skeið, upp
úr 2000, hélt Geirmundur úti
tveimur hljómsveitum, einni
norðan heiða og annarri sunnan
heiða. „Strákagreyin þeir þreyt-
Geirmundur Valtýsson, fjármálastjóri, bóndi og tónlistarmaður á Sauðárkróki
Skagfirðinginn Geirmund Valtýsson þekkja flestir landsmenn. Sveitastrákinn sem heitir í höfuðið á
bænum þar sem hann ólst upp og stundar sjálfur búskap í dag. Fjármálastjórann sem hefur unnið
hjá KS í 38 ár og er ekkert að hætta þó hann sé nýlega orðinn sjötugur. Tónlistarmanninn sem ennþá
þeytist um landið og spilar um hverja helgi og hefur alltaf jafn gaman af. Feykir náði Geirmundi í
kaffisopa í lok hefðbundins vinnudags hjá KS þar sem hann stýrir fjármálum, svona rétt áður en
hann skrapp fram í sveit að hirða um annars konar fé.
„Það kostar skipulagningu,
en þessi störf fara vel saman“
Geirmundur lítur glaður yfir farinn veg í viðtali við Feyki. MYND: PÉTUR INGI