Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 8
8 11/2015
Utanlandsferð eða snjóbretti er
óska fermingagjöfin
Bergljót Ásta Pétursdóttir á
Sauðárkróki verður fermd af sr. Sigríði
Gunnarsdóttur í Sauðárkrókskirkju
þann 29. mars. Sóley María er dóttir
Gróu G. Haraldsdóttur og Péturs
Björnssonar.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Til að
staðfesta trú mína.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Já, já,
ég hef töluvert verið að spá í trúarmálin. Ég trúi
því að Guð sé til og hann taki á móti okkur þegar
við deyjum. Ég veit að það er líka til fólk sem er
ekki kristinnar trúar og ber ég líka virðingu fyrir
þeim.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið
háttað? -Ég hef farið í fermingarfræðslu og
messur til Siggu og við fórum í fermingarferð í
Vatnaskóg.
Hvar verður veislan haldin? -Í matsalnum á heimavist FNV.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já, kökuveisla.
Er búið að finna fermingarfötin? -Já, fermingarfötin mín verða hvítur kjóll og svartur jakki,
svo verð ég í svörtum skóm.
Hver er óska fermingargjöfin? -Utanlandsferð eða snjóbretti.
FERMINGIN MÍN / Bergljót Ásta Pétursdóttir
Skundað margar búðirnar í
fermingarundirbúningnum
Þórkatla Björt Sumarrós Þrastardóttir
á Birkihlíð verður fermd af sr. Gísla
Gunnarsyni í Reynistaðarkirkju á
pálmasunnudag. Þórkatla er dóttir
Ragnheiðar Láru Brynjólfsdóttur og
Þrastar Heiðars Erlingssonar.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Til að
staðfesta skírn mína og trú mína á Guði.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Já,
ég hef gert það. Í skólanum erum við líka í
fermingarfræðslu og ég hef líka lesið Biblíuna.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið
háttað? -Við höfum skundað í margar búðir og
keypt ýmist skraut. Einnig keyptum við kjólinn
og fórum við í myndatöku í byrjun mars til Sollu
frænku í Keflavík.
Hvar verður veislan haldin? -Veislan verður
haldin í Félagsheimilinu Melsgili.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Það verður kjúklingasúpa, graflax, heitt
folaldakjöt og meðlæti.
Er búið að finna fermingarfötin?-Já, ég valdi mér hvítan kjól, dökkbleikar ermar og silfraða skó.
Hver er óska fermingargjöfin? -Mig langar óskaplega mikið í úr og skartgripi.
FERMINGIN MÍN / Þórkatla Björt Sumarrós Þrastardóttir
Lambakjöt og fiskisúpa
á matseðlinum
Símon Pétur Borgþórsson á Hofsvöllum
í Skagafirði verður fermdur af sr. Döllu
Þórðardóttur í Goðdalakirkju skírdag, 2. apríl.
Gísli er sonur Guðrúnar Bjarkar Baldursdóttur
og Borgþórs Braga Borgarssonar.
Hvers vegna valdir þú að fermast? Til að staðfesta skírnina.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Já, aðeins.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið háttað?
-Fermingarfræðsla, mætt í messur og sent út boðskort.
Síðan verður aðal undirbúningur fyrir veisluna viku fyrir
ferminguna.
Hvar verður veislan haldin? -Í Árgarði.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? Lambakjöt
og fiskisúpa.
Er búið að finna fermingarfötin? -Já.
Hver er óska fermingargjöfin? -Ég bara veit það ekki.
UMSJÓN með FERMINGIN MÍN Berglind Þorsteinsdóttir
FERMINGIN MÍN / Símon Pétur Borgþórsson
Harður á því að hafa kökuveislu
Alexander Snær Jökulsson frá
Blönduósi verður fermdur af sr.
Sveinbirni R. Einarssyni í Blönduós-
kirkju þann 25. apríl. Gísli er sonur
Gretu Bjargar Lárusdóttur og Jökuls
Snæs Gíslasonar, makar þeirra eru
Snorri Snorrason og Oddný Svana
Þorláksdóttir.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Af því að ég
trúi á Guð og vill staðfesta það.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Nei,
eiginlega ekki.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið
háttað? –Síðastliðið haust fór ég með fermingar-
félögum mínum í fermingarbúðir að Vatnaskógi.
Síðan er fermingarfræðsla einu sinni í viku fram
að fermingu. Síðan sjá mamma og Oddný, kona pabba, alveg um undirbúning veislunnar,
en að sjálfsögðu fæ ég að ráða öllu sem við kemur henni.
Hvar verður veislan haldin: -Mamma og pabbi halda sameiginlega veislu í Félagsheimilinu
á Blönduósi á fermingardaginn.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum: -Ég er alveg harður á því að hafa kökuveislu,
en það verða einnig brauðtertur og brauðréttir á boðstólnum.
Er búið að finna fermingarfötin: -Já, ég er búin að kaupa þau, það tók ekki langan tíma.
Gallabuxur, skyrta og jakki.
Hver er óska fermingargjöfin: -Upplifun í öðru landi. Draumaferðin væri vika í Bobby Charlton
fótboltaskólanum í Manchester í Englandi. En annars þá fæ ég ferð til Florída í fermingargjöf
og fer þangað í sumar með pabba mínum og fjölskyldu.
FERMINGIN MÍN / Alexander Snær Jökulsson
Fermingin mín
Fermingarbörnin svara spurningum Feykis
Förgun fjár lokið á Neðra-Vatnshorni
Riða á Norðurlandi vestra
Eins og Feykir hefur fjallað um í
síðustu tölublöðum hafa að
undanförnu greinst þrjú riðutilfelli á
Norðurlandi vestra. Það fyrsta kom
upp á Neðra-Vatnshorni á Vatnsnesi
og hefur fénu þar nú verið fargað og
því verið komið til brennslu hjá Kölku í
Helguvík. Þá greindist nýlega riðusmit
í fé sem lógað var á bæjunum
Valagerði og Víðiholti í Skagafirði,
eftir að einkenna varð vart.
Að sögn Jón Kolbeins Jónssonar,
héraðsdýralæknis Norðurlands vestra
hjá Matvælastofnun, stendur til að halda
upplýsingafund fyrir bændur í Skagafirði
þriðjudaginn 24. mars kl. 20:30. Verður
fundurinn haldinn á Löngumýri. Þar
munu fulltrúar frá Sveitarfélaginu
Skagafirði og Matvælastofnun gera grein
fyrir stöðu mála og veita upplýsingar.
Einnig geta bændur komið á framfæri
fyrirspurnum á fundinum.
„Við erum vel á varðbergi og biðjum
bændur að hafa samband ef einkenna
verður vart, fé drepst eða því þarf að
lóga af einhverjum ástæðum,“ sagði Jón
Kolbeinn í samtali við Feyki á mánu-
daginn. „Við tökum sýni á kostnað Mat-
vælastofnunar ef ástæða þykir til og
hvetjum bændur til að hafa samband
við okkur.“
Þá sagði Jón Kolbeinn rétt að minna
bændur á að hafa fataskipti áður en
farið er úr útihúsum á aðra bæi og gæta
þess að flytja ekki hey á milli bæja án
leyfis Matvælastofnunar. „Það er líka
rétt að árétta að þrífa vel tæki sem eru
lánuð milli bæja og hafa hlífðarföt til
staðar fyrir talningarmenn, dýralækna
og aðra sem fara milli bæja vegna vinnu
sinnar.“
Jón Kolbeinn segir að niðurskurði sé
lokið á Neðra-Vatnshorni en fénu þar
var slátrað heima á bænum og það síðan
flutt til brennslu hjá Kölku í Helguvík.
Verið er að vinna að undirbúningi
aflífunar í Valagerði og Víðiholti í
Skagafirði. /KSE