Feykir - 19.03.2015, Síða 16
16 11/2015
Ráðleggja öllum að
prófa að flytja
út á land
Í nóvember í fyrra fluttu þau Guðmundur Hólmar Jónsson frá Syðra-Ósi í Húnaþingi vestra og
Þórey Edda Elísdóttir, úr Hafnarfirði á Hvammstanga ásamt sonum sínum á fjórða og sjötta ári.
Þeim fannst tímabært að kúppla sig út úr amstri höfuðborgarsvæðisins og prófa eitthvað nýtt
og hafa góða reynslu af því hingað til. Þessari reynslu deildu þau með blaðamanni Feykis sem
heimsótti þau á Melaveginn á Hvammstanga á dögunum.
Guðmundur Hólmar Jónsson og Þórey Edda Elísdóttir á Hvammstanga
fótboltaleik á ganginum. Sá
eldri ljómar þegar hann trúir
blaðamanni fyrir því að hann sé
að fara að keppa í fótbolta og sá
yngri biður blaðamann að taka
að sér dómarastörf í leiknum,
meðan hinkrað er eftir að Þórey
Edda skili sér heim. Á
dómarahlutverkið reynir þó
ekki því hún snarast fljótlega
inn úr dyrunum en Guðmund-
ur hefur verið heima að gæta
drengjanna um morguninn.
Guðmundur er fæddur og
uppalinn á Syðra-Ósi í Húna-
þingi vestra, en bærinn stendur
skammt frá afleggjarnum þar
sem beygt er frá þjóðvegi 1 á
Hvammstanga og er hann því
heimavanur á staðnum. Hann
hefur raunar starfað á Hvamms-
tanga undanfarin sextán ár,
með eins árs hléi, og því ekið
eða tekið strætó að sunnan til
að kenna tvo daga vikunnar.
Þórey Edda er hins vegar úr
Hafnarfirði og bjó þar, utan
nokkurra ára þar sem hún
stundaði íþróttir erlendis. Þau
útskýra að tímabært hafi verið
að flytja eða breyta þessu
fyrirkomulagi.
Margir muna eftir Þóreyju
Eddu úr frjálsum íþróttum,
enda er hún meðal íslenskra
afrekskvenna á því sviði. Keppti
Synirnir tveir, Bragi Hólmar og
Ingi Hólmar, sem eru á leik-
skólaaldri eru báðir heima
þegar blaðamann ber að garði,
enda búnir að vera með flensu
eins og gengur og gerist á
þessum árstíma. Þeir eru þó
rólfærir og eru að undirbúa
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
hún m.a. þrisvar sinnum á
Ólympíuleikum; í Sidney 2000,
Aþenu 2004 þar sem hún
hafnaði í fimmta sæti og í
Peking 2008. Meðfram íþrótt-
unum lauk hún BS námi í verk-
fræði og síðan mastersnámi í
umhverfisverkfræði. Þórey
Edda hætti keppni árið 2008 en
starfaði sem verkefnastjóri
landsliðsmála hjá Frjálsíþrótta-
sambandi Íslands meðfram
mastersnáminu, þar til hún
fluttist á Hvammstanga. Þar
starfar hún hjá verkfræði-
stofunni Ráðbarði. Guðmund-
ur hefur stundað nám í tónlist
við Tónlistarskóla Sigursveins
og FÍH og hefur verið við
kennslu í sextán ár eða síðan
1998.
Leiðirnar
lágu saman á
frjálsíþróttavellinum
„Við hittumst fyrst í æfinga-
búðum 2003 úti á Spáni,“ segir
Þórey Edda þegar blaðamaður
forvitnast um hvar leiðir þeirra
hafi legið saman, en Guð-
mundur var einnig keppnis-
maður í frjálsum íþróttum. Var
hann meðlimur í landsliðshópi
FRÍ til margra ára og varð hann
tvisvar Íslandsmeistari í spjót-
kasti karla. Þórey Edda bætir
Guðmundur með Inga Hólmar og
Þórey Edda með Braga Hólmar.