Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 25
11/2015 25
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Hólmfríður Sveinsdóttir.
ÁRGANGUR: 1972.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Stefáni Friðrikssyni og á með honum þrjú
dásamleg börn; Friðrik Þór, Herjólf Hrafn og Heiðrúnu Erlu.
BÚSETA: Sauðárkrókur.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Svenna Siffa og
Heiðrúnar Friðriks og er alin upp á Króknum.
STARF: Framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarfyrirtækis-
ins Iceproteins ehf. Ég er með meistaragráðu í næringarfræði
frá Justus Liebig háskólanum í Giessen í Þýskalandi og
doktorsgráðu í lífvísindum frá Háskóla Íslands.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Vinnulega eru ýmis mál í deiglunni en
þeirra efst er að koma þorskpróteininu sem við hjá Iceprotein
erum búin að vera að þróa á markað sem fyrst. Einnig eru
rannsóknir tengdar ofurkælingarbúnaðinum í Málmey SK-1
og vinnslu á hráefni úr skipinu mjög ofarlega í huga mínum.
Í prívat lífinu er einnig ýmislegt í deiglunni, eins og t.d. að
ferma Herjólf Hrafn og fylgja Heiðrúnu Erlu í gegnum næsta
skref í hennar verkefni.
Hvernig nemandi varstu? -Ég held
að ég hafi verið ágætis nemandi.
Pínu óþekk í restina af Gagganum
en bætti það upp seinna á mennta-
veginum.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? -Appelsínugula
draktin og appelsínugulu mokka-
síurnar gleymast seint. Síðan fannst
mér dagurinn pínu neyðarlegur,
skyldi ekki almennilega allt þetta
uppistand.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? -Eftir að vera búin
að vera í sveit á Syðra-Skörðugili
var ég ákveðin í að verða bóndi.
Það breyttist þegar ég fór að læra
efnafræði hjá Ásbirni og Steinunni
í FNV (sem hét reyndar FÁS þá)
og var ég harðákveðin í að verða
lyfjafræðingur. Ég þurfti svo að
endurskoða þessi plön þegar ég flutti
til Þýskalands þar sem lyfjafræði var
ekki í boði í háskólanum í bænum
sem ég bjó í og ákvað ég því að
prófa næringarfræði og líkaði það
bara andsk... vel þannig að ég
kláraði það.
Hvað hræðistu mest? -Að eitthvað
komi fyrir börnin mín.
Besti ilmurinn? -Ætli það sé ekki
bara ilmurinn af hafinu. Einnig finnst
mér ilmur af nýslegnu grasi mjög
góður.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? -Líklega bara
það vinsælasta á þeim tíma hvað
íslenska tónlist varðar eins og
Ný-dönsk, Sálina og SSSól. Hvað
erlenda tónlist varðar þá hlustaði ég
töluvert á Big Country, U2, Queen
o.fl. á þessum tíma. Ég er ekki
mikill sérfræðingur í tónlist og hlusta
yfirleitt bara á það sem verið er að
spila í útvarpinu hverju sinni.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? -Ég ætla að vona að
ég komi aldrei til með að syngja í
kareókí.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? -Breskum sakamála-
þáttum.
Besta bíómyndin? -Ég hef horft á
margar góðar bíómyndir og finnst
erfitt að gera upp á milli þeirra.
Myndir sem mér hafa þótt góðar eru
t.d. Amores Perros, Blood Diamond
og Hotel Rwanda.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? -Að pússa silfrið.
Hættulegasta helgarnammið?
-Fljótandi brauð.
Hvernig er eggið best? -Þegar það
er soðið í 12 mín. í gufuofni – alla
vegana segja stelpurnar í vinnunni
það.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? -Væri til í að vera
skipulagðari en verð samt að
segja að óskipulagið hefur svo oft
komið sér vel þar sem hlutirnir fara
stundum ekki á þann veg eins og
þeir eiga að fara að ég er farin að
telja þetta kost.
Hófí Sveins
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? -Óheilindi og ósann-
girni.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? -Gott er að eiga góða að.
Þessi málsháttur á alveg ótrúlega
vel við mig.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? -Þegar ég reiddist við mömmu
og ákvað að flytja að heiman, ég
hef líklega verið 3-4 ára. Mér hefur
líklega mislíkað eitthvað og fokið í
mig og tók ég ákvörðun um að flytja
að heiman í bræði en dauðsá eftir
því nokkrum mínútum seinna þegar
ég labbaði út af lóðinni og snéri
náttúrulega við. Ég þurfti að éta
ofaní mig að ég væri nú alveg til í að
búa aðeins lengur heima.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? -Ég hef gaman
af því að lesa bækur sem byggðar
eru á heimildum eins og bækur eftir
Vilborgu Davíðsdóttur, einnig fannst
mér bókin um Guðríði Símonardóttur
góð sem og bækurnar sem Böðvar
Guðmundsson skrifaði um Vestur-
Íslendinga.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? -Ha, fyrirgefðu, ég heyrði
ekki hvað þú sagðir.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? -Ég
myndi halda að Alexander Fleming
sem uppgötvaði penisillín væri ansi
hátt á þeim lista.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, hvert
færirðu? -Ég myndi fara til Nýja-
Sjálands. Mig hefur alltaf langað til
að fara þangað og vonandi rætist
það einhvern tímann.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? -Tölvuna, símann og
þorskpróteinhylki, nema hvað!