Feykir - 11.06.2015, Side 3
22/2015 3
Hafðu
samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
SAMVINNUBÓKIN og
KS-BÓKIN
3 góðir
kostir
til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 2% vexti,
bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu
yfir 20 milljónir, 3,30% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu,
óverðtryggð og óbundin 3% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS INNLÁNSDEILD
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
www.skagafjordur.is
Sveitarfélagið Skagafjörður
Breyting á
Aðalskipulagi
2009-2021
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann
13. maí 2015 tvær tillögur að breytingu á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021. Tillögurnar
bera heitið, Gönguskarðsárvirkjun, aðrennslisgöng og nýtt
stöðvarhús og Deplar í Austur Fljótum, landbúnaðarsvæði
verður verslunar- og þjónustusvæði.
Tillögurnar voru auglýstar frá 10. mars til 29. apríl 2015.
Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunum og
hafa þær verið sendar Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til
skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, Jóns Arnar Berndsen
Sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Ásta Pálmadóttir
Prjónastofan Kidka á
Hvammstanga er nýlegt
fyrirtæki á gömlum grunni
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Vörurnar hannaðar og
framleiddar á staðnum
Prjóna – og saumastofan Kidka á Hvammstanga
og er staðsett í iðnaðarhverfi sunnarlega í þorpinu. Þar eru
framleiddar fjölbreyttar vörur úr vélprjónaðri ull, bæði fyrir
innlendan markað og til útflutnings. Ferðamannaverslun
er á staðnum og eru renndar hettupeysur ein vinsælasta
söluvara fyrirtækisins. Blaðamaður Feykis heimsótti Kidka
á björtum maídegi og fékk að valsa um verksmiðjuna og
kynna sér starfsemina.
Saumastofa hefur verið rekin á
Hvammstanga síðan árið 1972
en núverandi eigandi, Kristinn
Karlsson hóf rekstur árið
2007. Reksturinn hefur aldrei
lagst niður á þessu tímabili en
eigendaskipti orðið oftar en einu
sinni. Saumaskapurinn lagðist
þó nánast af um tíma en kom
sterkur inn aftur um það leyti
sem núverandi eigendi tók við.
Í sumar eru tíu til tólf
starfsmenn hjá Kidka en þeir
eru um sjö um vetrartímann.
Tvo starfsmenn þarf til að sjá
um ferðamannaverslun sem er
rekin samhliða verksmiðjunni,
í norðurhluta hússins. Nóg
hefur verið að gera í fram-
leiðslunni að undanförnu
og ferðamannasumarið var
að hefjast á Hvammstanga
þegar blaðamaður átti leið
um. Kristinn telur að fólk sé
almennt farið að nota ullarflíkur
miklu meira en áður. Hann
leggur áherslu á að varan sem
Kidka býður upp á sé alfarið
íslensk framleiðsla, hönnuð og
framleidd á Íslandi.
Bandið í vörurnar sem
framleiddar eru hjá Kidka
kemur tilbúið og litað frá Ístex
og er prjónað í vélum sem verið
hafa í verksmiðjunni frá upphafi.
Til að voðin verði mýkri er hún
burstuð í vél sem með ekta
trjákönglum frá Spáni. Þegar
voðin er tilbúin eru sniðnar
úr henni ýmsar flíkur, teppi
eða aðrar nytjavörur. Kristinn
segist ekki vera með hönnuði á
sínum snærum. „Við hönnum
þetta nú bara sjálf, maður
kann orðið á kúnnann.“ Ekki
er þó sérframleitt að óskum
viðskiptavina nema í stærri
pantanir, enda borgar slíkt sig
ekki.
Í verslun Kidka má finna
Verslun Kidka er í norðurenda verksmiðjunnar.
fjölbreytt úrval, t.a.m. peysur
og teppi. Teppin segir Kristinn
„mokast“ út og einnig séu
renndar hettupeysur að koma
sterkar inn. Þá segir hann hafa
komið á óvart hvað svokölluð
„ponsjó“ séu vinsæl, bæði
meðal íslenskra og erlendra
viðskiptavina. Reglulega er
nýjum vörum bætt við fram-
boðið. „Maður hendir ekki
út því sem er að seljast en við
reynum að vera með nýjungar,“
segir Kristinn og bætir við að
vörunar séu sígildar en sniðin
útfærð eftir tískusveiflum hverju
sinni.
Þrátt fyrir að Kidka sé ekki
alveg í alfaraleið ferðamanna á
Hvammstanga skila ferðamenn
sér þangað, enda eru þeir oft að
leita eftir ullarvörum. Kristinn
segir hópa geta pantað leiðsögn
um verksmiðjuna og það sé
vinsælt að sjá framleiðsluferlið
á þeim vörum sem þeir kaupa
og hafa með sér heim. „Fólki
finnst gaman að skoða það sem
er lifandi og þar sem er verið að
búa eitthvað til,“ útskýrir hann
og segir verslunina alltaf verða
stærri og stærri þátt í rekstrinum
sem skipti orðið verulegu máli.
„Við erum að auglýsa okkur
meira og meira og svæðið í heild
er að verða betur kynnt.“ Þá hefur
verið boðið upp á dagsnámskeið
þar sem þátttakendur geta komið
dagspart og fengið að sníða og
sauma flík. Hefur það mælst vel
fyrir.
Um helmingur af framleiðslu
Kidka fer á innanlandsmarkað.
Þegar blaðamann bar að garði
var nýbúið að landa samningi
um framleiðslu á vörum fyrir
Þýskalandsmarkað. Einnig
berast pantanir frá Banda-
ríkjunum. Kristinn segir ekki
mikið selt gegnum netið í
dag en það sé þó að aukast og
stefnan sé að verða stærri á
slíkum markaði. Auk verslunar
Kidka á Hvammstanga er mikið
selt í ferðamannaverslanir á
höfuðborgarsvæðinu. Það var
nóg að gera hjá Kidka á þessum
vordegi og þegar Kristinn
kvaddi blaðamann sagðist hann
bjartsýnn á framhaldið.
Starfsmaður í þjálfun. MYND: KSE
Kristinn ræðir málin við starfsmann.