Feykir - 11.06.2015, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
22
TBL
11. júní 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Bjórhátíðin á Hólum
Skyrgosi sigurvegari Bjórhátíðarinnar
Bjórhátíðin á Hólum í Hjaltadal er orðin árviss
viðburður í Skagafirði og var haldin fimmta árið í
röð sl. laugardag, þann 6. júní. Að sögn Guðmundar
Björns Eyþórssonar frá Bjórsetri Íslands var uppselt á
hátíðina og komust færri að en vildu.
„Öll brugghús landsins mættu eins og vanalega og
voru um 30 bjórar á boðstólnum fyrir gesti hátíðarinnar.
Eins og venjulega þá voru grillaðar bratwurzt-pylsur
ásamt toguðum grís (e. pulled-pork) og grillspjót (þ.
fackel). Saltkringlur (þ. Pretzel) voru auðvitað í boði,
enda ómissandi á bjórhátíðum,“ sagði Guðmundur í
samtali við Feyki.
Sigurvegarar þessarar hátíðar voru:
1. Skyrgosi frá Gæðingur - Öl
2. Leifur Saison frá Borg - Brugghús
3. Sif frá Ölvisholti Brugghús
Borg Brugghús fékk svo verðlaun fyrir besta básinn.
Ljósmyndirnar tók Guðmundur Björn Eyþórsson. /BÞ
Frá verðlaunaafhendingu. Grillað í tilefni af Bjórhátíð á Hólum.
Félagar í Alþýðulist
verða með ýmiskonar handverk við hús félagsins
í Varmahlíð frá kl. 14-17. Til dæmis verður kennt að
þæfa utanum sápu. Pönnukökur og heitt á könnunni
Kaffi í tilefni dagsins
Í tilefni dagsins bjóða nokkrir veitingastaðir upp á þjóðhátíðarkaffi
eða glæsileg kaffihlaðborð sem Skagfirðingar og gestir geta
keypt sér og bragðað brot af því besta!
Þjóðhátíðarkaffihlaðborð Kaffi Krókur frá kl. 14-17
Þjóðhátíðarkaffi og kaka dagsins að hætti Áskaffis,
Glaumbæ frá kl. 15-17
Hið vinsæla 17. júní kaffihlaðborð í Ljósheimum frá kl. 15-17
Heitt súkkulaði og rjómaterta
í Lónkoti frá kl. 14-16:30
Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu
er bannað að fara með hunda á almennar útisamkomur.
Vinsamlegast virðið bannið!
Hátíðar- og skemmtidagskrá
á Sauðárkróki í tilefni
af þjóðhátíðardegi Íslands
12:30 Andlitsmálun við Skagfirðingabúð
Félagar úr Skátafélaginu Eilífsbúum
selja gasblöðrur á vægu verði
13:40 Skrúðganga frá Skagfirðingabúð
að íþróttavelli
14:00 Hátíðardagskrá á íþróttavellinum
- Hátíðarræðu flytur Sigríður Svavarsdóttir,
forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
- Fjallkonan flytur ljóð
- Jón Arnór töframaður með sýningu
- Útitónleikar þar sem koma fram Hafdís Huld,
Róbert og Guðmundur, Pétur Örn og Einar
úr Buffinu taka nokkur lög
- Hús Frítímans með leiki og þrautir
- Hoppukastalar
14:30 Skátatívolí á Flæðunum norðan sundlaugar
- Candy Floss til sölu
17. júní!
Hæ hó jibbí jeij, það er kominn...
www.skagafjordur.is
Bjórinn rann í stríðum straumum á Bjórsetrinu. MYNDIR: GBE