Feykir - 11.06.2015, Page 4
4 22/2015
Dagana 31. maí – 6. júní var 58 tonnum landað á Skagaströnd, fimm tonnum á Hofsósi, tæpum
tíu tonnum á Hvammstanga og 180 tonnum á Sauðárkróki. Alls gera þetta rúm 250 tonn á
Norðurlandi vestra. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 8.524
Mars HU 41 Grásleppunet 1.335
Alls á Hvammstanga 9.859
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 8.040
Akraberg ÓF 90 Landbeitt lína 11.437
Alda HU 112 Grásleppunet 6.386
Auður SH 94 Handfæri 1.499
Ásdís HU 24 Handfæri 528
Bogga í Vík HU 6 Grásleppunet 931
Eiður EA 13 Handfæri 1.278
Elín ÞH 82 Handfæri 866
Félaginn KÓ 25 Handfæri 149
Garpur ST 44 Handfæri 669
Geiri HU 69 Handfæri 1.121
Guðmundur á Hópi Landb.lína 7.584
Guðrún Petrína GK Landb.lína 4.812
Gyðjan EA 44 Handfæri 1.193
Hafdís HU 84 Handfæri 1.516
Hafrún HU 121 Dragnót 3.150
Hafsteinn ZZ 0 Grásleppunet 36
Hjördís HU 16 Handfæri 208
Húni HU 62 Handfæri 1.075
Jenný KE 32 Handfæri 145
Nonni HU 9 Handfæri 1.505
Slyngur EA 74 Handfæri 758
Smári HU 77 Handfæri 591
Stefanía HU 136 Handfæri 1.559
Aflatölur 31. maí – 6. júní
Fjöldi báta leggur upp frá Skagaströnd
Steini GK 34 Handfæri 101
Sveinbjörg HU 49 Handfæri 269
Sæborg HU 80 875
Sæunn HU 30 Handfæri 1.234
Alls á Skagaströnd 58.326
HOFSÓS
Álborg SK 88 Handfæri 1.014
Ásmundur SK 123 Landb. Lína 1.002
Hafbjörg SK 58 Handfæri 1.238
Hóley SK 132 Grásleppunet 589
Skáley SK 32 Handfæri 747
Von SK 21 Handfæri 503
Alls á Hofsósi 5.093
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Handfæri 1.118
Fannar SK 11 Grásleppunet 1.304
Hafey SK 10 Grásleppunet 678
Hrappur SK 121 Grásleppunet 254
Kristín SK 77 Handfæri 816
Málmey SK 1 Botnvarpa 169.958
Nona SK 141 Handfæri 2.597
Óskar SK 13 Grásleppunet 401
Séra Árni Grásleppunet 112
Steini G SK 14 Handfæri 1.659
Vinur SK 22 Handfæri 1.269
Þytur SK 18 Grásleppunet 663
Alls á Sauðárkróki 180.829
Ég elti mitt blóð yfir aldanna haf
að uppsprettu þeirri sem hóf það,
um farveginn langa sem lífið því gaf,
að lokastund hverri sem gróf það.
Ég hlekkur í keðju þar kynslóða er
og kærleikur til þeirra vakir í mér
sem kræktust þar áður og urðu sú hlíf
sem enst hefur til mín og gefið mér líf.
Ég elska hlýt blóð mitt með þakklæti því
sem þroskast og dafnar við verðmætin hlý,
sem uxu með huglægri hamingjuþrá
í hjörtum sem lifðu og fengu að slá.
Rúnar Kristjánsson
Blóðlínan
AÐSENT RÚNAR KRISTJÁNSSON SKRIFAR
Fimmtíu brautskráningar
frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum
Á sunnudag fór fram
brautskráning frá
Háskólanum á Hólum.
Brautskráð var frá öllum
deildum og fór athöfnin
fram í Menningarhúsinu
Miðgarði í Varmahlíð. Alls
voru það 49 einstaklingar og
þar af hlaut einn tvö
skírteini þannig að í það
heila tekið voru þær 50.
Í ávarpi sínu fór rektor skólans,
Erla Björk Örnólfsdóttir, m.a.
yfir helstu vörður í starfi
skólans undanfarið ár. Hún gat
sérstaklega um erlent samstarf
og þann fjölda erlendra nema
sem stundaði nám við skólann
á skólaárinu, ýmist sem
reglulegir nemar, í skiptinámi
eða gestanámi. Alls voru
nemendurnir af 20 mis-
munandi þjóðernum öðrum
en íslenskum.
Næstur tók einmitt til máls
erlendur gestur, Philippe
O’Quin sendiherra Frakklands
á Íslandi. Í máli hans kom fram
að það hefði komið honum á
óvart að finna svo marga
Frakka við nám og störf hér
norður í landi, en í augna-
blikinu telja þeir tíu manns.
Deildarstjórar önnuðust
brautskráningu sinna nem-
enda. Úr hestafræðideild voru
13 brautskráðir, allir með BS í
reiðmennsku og reiðkennslu.
Ein stúlka brautskráðist úr
fiskeldis- og fiskalíffræðideild,
með meistaragráðu í sjávar- og
vatnalíffræði. Brautskráningar
úr ferðamáladeild voru alls 36.
Þar af hlutu 22 BA-próf í
ferðamálafræði og einn dipl-
ómu í sömu fræðigrein. Dipl-
ómunám í viðburðastjórnum
nýtur nokkurra vinsælda um
þessar mundir, og að þessu
sinni luku 13 manns slíku
námi.
Viðurkenningar fyrir hæstu
meðaleinkunn hlutu eftirfar-
andi: Á BS-prófi í reiðmennsku
og reiðkennslu Hanna Rún
Ingibergsdóttir, á BA-prófi í
ferðamálafræði Berglind
Ragnarsdóttir og fyrir dipl-
ómunám í viðburðastjórnun
var það Guðrún Gígja Jóns-
dóttir. /KSE
Brautskráning frá Hólum. MYND: GUÐMUNDUR B. EYÞÓRSSON
Málið til meðferðar
hjá ríkissaksóknara
Lögreglumaður ákærður fyrir kynferðisbrot
Samkvæmt heimildum RÚV
hefur Ríkissaksóknari til
meðferðar nauðgunarkæru
gegn lögreglumanni sem
starfar í umdæmi lögregl-
unnar á Norðurlandi vestra.
Á Rúv.is segir að stúlka um
tvítugt hafi kært manninn, sem
er á sextugsaldri, til lögreglunnar
á Akureyri sem yfirheyrði vitni
og tók skýrslu af lögreglumann-
inum. Málið hefur verið sent til
ríkissaksóknara þar sem það er
enn til meðferðar og segir á Rúv.
is að ekki hafi fengist frekari
upplýsingar hjá ríkissaksóknara
um framgang málsins. Mað-
urinn hefur verið í launalausu
leyfi frá störfum frá því þegar
málið kom upp í nóvember í
fyrra. /BÞ
Endurbætur á skotsvæði
Skotfélagið Markviss
Undanfarnar vikur hafa
félagsmenn Skotfélagsins
Markviss unnið hörðum
höndum að endurbótum á
skotsvæði félagsins. Búið er
að tyrfa völlinn og nánasta
umhverfi, leggja hellur, grafa
niður staura og svo mætti
lengi telja.
Undirbúningur fyrir Landsmót
50+ er langt kominn og standa
vonir til að skotsvæði félagsins
skarti sínu fegursta þann 26. júní
næstkomandi þegar keppni í
skotfimi fer fram. Enn frekari
framkvæmdir eru fyrirhugaðar
eftir Landsmót 50+ og er vonast
við til að þeim verði að mestu
lokið fyrir Landsmót STÍ sem
fram fer á Blönduósi dagana 18.-
19. júlí. /KSE
Þóranna Ósk gerði gott mót
Smáþjóðaleikarnir
Frjálsíþróttakeppni fór fram á
Smáþjóðaleikunum í
Reykjavík 4. júní. Á meðal
keppanda var Þóranna Ósk
Sigurjónsdóttir frá Sauðár-
króki og keppti hún í
hástökki.
Samkvæmt vef Smáþjóða-
leikanna, Iceland2015.is, voru
aðstæður á Laugardalsvelli
ágætar, skýjað og 10 stiga hiti
með smá skúrum. Almennt gekk
íslenskum keppendum vel.
Á Facebook-síðu frjálsíþrótta
deildar Tindastóls segir að
Þóranna Ósk hafi stokkið 1.65
sm og hafnað í 4.-5. sæti ásamt
keppanda frá Luxemburg. /BÞ