Feykir - 11.06.2015, Qupperneq 5
22/2015 5
Sigur gegn Sindra
1. deild kvenna : Tindastóll - Sindri 3-0
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
Leiktímabilið fer vel af stað
hjá Stólastúlkum en þær
sigruðu lið Sindra á
Sauðárkróksvelli sl.
sunnudag, 3-0. Með sigrinum
skaust liðið, sem leikur í 1.
deild, því í efsta sæti C-riðils.
Leikurinn var markalaus í
fyrri hálfleik en í seinni hálfleik
færðist fjör í leikinn. Fyrsta mark
Stólastúlkna kom á 56. mínútu
þegar Hrafnhildur Björnsdóttir
setti boltann í netið. Guðlaug
Rún Sigurjónsdóttir skoraði á
64. mínútu og Kolbrún Ósk
Hjaltadóttir skoraði þriðja
markið á lokamínútum leiksins,
á 79. mínútu. /BÞ
Stólarnir lagðir á heimavelli
2. deild karla : Tindastóll - ÍR 0-2
Meistaraflokkur karla tók á
móti ÍR á Sauðárkróksvelli sl.
laugardag og mætti segja að
um „fyrsta“ heimaleik
Stólanna var að ræða þar
sem fyrri heimaleikir hafa
ýmist farið fram á Hofsósi og
Akureyri.
Úrslit urðu 2-0 fyrir ÍR-
ingum. Fyrra markið skoraði
Jón Gísli Ström á 38. mínútu en
seinna mark ÍR-inga kom í
seinni hálfleik, á 72. mínútu, og
var það Guðfinnur Þórir
Ómarsson sem setti boltann í
netið.
Hart var barist í leiknum og
fóru nokkur gul spjöld í loftið. Í
liði Tindastóls fengu Arnar Skúli
Atlason, Ragnar Þór Gunnars-
son, Michael Christopher
Bathurs og Konráð Freyr
Sigurðsson áminningu. Konráð
fékk annað spjald á 61. mínútu
sem þýddi brottvísun. ÍR-ingur-
inn Már Viðarsson fékk einnig
að líta gula spjaldið. /BÞ
Baldur og Alli í öðru sæti
Íslandsmótið í rallý
Dagana 5. – 6. júní í
var ekin fyrsta
umferð Íslands-
mótsins í rallý. Það
var Akstursíþrótta-
félag Suðurnesja
sem skipulagði
keppnina en
fimmtán áhafnir
mættu til leiks
seinnipart föstu-
dags.
Það voru 10 áhafnir
sem luku keppni en
sigurvegarar urðu þeir
Valdimar Jón Sveins-
son og Skafti Skúlason
á Mitubishi Evo 7 en í
öðru sæti urðu þeir
Baldur Haraldsson og
Aðalsteinn Símonarson á Subaru Impreza Sti, einungis sextán
sekúndum á eftir. Í þriðja sæti urðu svo þeir Eyjólfur Melsteð og
Heimir Snær Jónsson á Cherokee en þeir sigruðu einnig í jeppaflokki.
Næsta umferð íslandsmótsins er áætluð í byrjun júlí. Er það
Bifreiðaklúbbur Reykjavíkur sem stendur að henni en áætlað er að
aka um Snæfellsnes ef veður og færð leyfa. /BÞ & KSE
GUÐNI ÞÓR
Einarsson
árgangur 1988
HLYNUR
Hlöðversson
árgangur 1996
HÓLMAR DAÐI
Skúlason
árgangur 1995
KONRÁÐ FREYR
Sigurðsson
árgangur 1995
BJARNI SMÁRI
Gíslason
árgangur 1992
ÓSKAR SMÁRI
Haraldsson
árgangur 1994
BENJAMÍN J.
Gunnlaugarson
árgangur 1992
BEN J.
Griffiths
árgangur 1990
ÁGÚST
Friðjónsson
árgangur 1997
BJARKI MÁR
Árnason
árgangur 1978
MICHAEL
Bathurst
árgangur 1990
ARNAR SKÚLI
Atlason
árgangur 1991
FANNAR FREYR
Gíslason
árgangur 1991
FANNAR ÖRN
Kolbeinsson
árgangur 1992
HALLGRÍMUR I.
Jónsson
árgangur 1991
INGVI HRANNAR
Ómarsson
árgangur 1986
JÓNAS ARON
Ólafsson
árgangur 1999
JULIANO J.B.
Pereira
árgangur 1992
Strákarnir hans Sigga Donna
Mfl. Tindastóls – 2. deild karla 2015
PÁLMI
Þórsson
árgangur 1998
SIGURVIN
Reynisson
árgangur 1995
PÁLL SINDRI
Einarsson
árgangur 1992
SIGURÐUR
Halldórsson
þjálfari
Baráttan um boltann. MYND: HELGA DÓRA LÚÐVÍKSDÓTTIR
Aðalsteinn Símonarson og Sauðkrækingurinn Baldur
Haraldsson, sem skipa TímOn. MYND: GUÐNÝ GUÐM.
Lið Tindastóls féll sem kunnugt er úr 1. deild í
fyrra eftir erfitt sumar og um tíma leit reyndar
allt eins út fyrir að Stólarnir drægu lið sitt úr
keppni áður en mótið hófst. Sú varð þó ekki
raunin en ljóst að á brattann yrði að sækja
þar sem hópurinn hafði veikst töluvert frá
sumrinu áður. Mikil og erfið meiðsli
lykilmanna urðu ekki til að bæta ástandið og
fór svo að liðið náði ekki að vinna leik í
deildinni þrátt fyrir nokkra ágæta leiki þar
sem heppnin var ekki með Stólunum í liði.
Bjarki Már Árnason þjálfaði liðið í fyrra en að
þessu sinni er það reynsluboltinn Sigurður
Halldórsson, Siggi Donna, sem stýrir skútunni.
Aðstoðarþjálfarar hans eru Michael Bathurst og
Juliano J B Pereira sem einnig leika með liðinu.
Miklar breytingar eru á leikmannahópnum frá
árinu 2014. Alls eru það þrettán leikmenn sem hafa
horfið á braut og munar um minna. Þessir
leikmenn eru: Anton Ari Einarsson, Árni Einar
Adolfsson, Atli Arnarson, Björn Anton
Guðmundsson, Ívar Guðlaugur Ívarsson, Jose
Figura, Kári Eiríksson, Kristinn J. Snjólfsson,
Loftur Páll Eiríksson, Mark Magee, Rodrigo
Morin, Stefán Árnason og Terrance William
Dieterich.
Þegar þetta er skrifað er fimm umferðum af 22
lokið í 2. deildinni og Stólarnir hafa tapað öllum
sínum leikjum. Það þýðir auðvitað aðeins að það
styttist í fyrstu stigin. Áfram Tindastóll! /ÓAB