Feykir - 11.06.2015, Page 11
22/2015 11
aðeins, svo er öllu hellt fyrir
brauðið og ostinum dreift yfir.
Sett í ofninn við u.þ.b. 180°C, þar
til rétturinn er orðin gulbrúnn.
EFTIRRÉTTUR
Sælgætisterta
Botn:
2 egg
70 gr sykur
30 gr hveiti
30 gr kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
Aðferð: Þeytið egg og sykur mjög
vel saman. Sigtið saman hveiti,
kartöflumjöl og lyftiduft og
blandið varlega saman með sleif.
Setjið bökunarpappír í botninn á
22 sm hringlaga móti. Bakið
neðarlega í 175°C heitum ofni í
u.þ.b. 12 mín.
Marengs:
3 eggjahvítur
150 gr sykur
Aðferð: Stífþeytið eggjahvíturnar
og bætið sykrinum smá saman úti,
þeytið mjög vel. Teiknið 22 sm
hring á bökunarpappír og smyrjið
marengsinum þar á og bakið í
100°C heitum ofni í tvo tíma.
Krem:
3 eggjarauður
4 msk flórsykur
70 gr suðusúkkulaði
2 ½ dl rjómi
Aðferð: Þeytið saman eggjarauður
og flórsykur, bræðið súkkulaðið í
vatnsbaði, látið hitan rjúka úr og
hrærið saman við eggjarauðurnar.
Þeytið rjóman og blandið vandlega
saman við kremið.
Fylling og skraut:
3 dl rjómi
50 gr súkkulaði
Samsetning: Þeytið rjómann og
setjið tertu saman þannig. Fyrst
botn þá rjóma og svo krem,
marengs, rjóma og loks krem.
Látið tertuna standa í ísskáp í 6-8
tíma áður en að hún er borin fram.
Skreytið með bræddu súkkulaði.
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar hefur tíma til að
blása upp blöðrur fyrir 17. júní.
Spakmæli vikunnar
Að fyrirgefa ekki er líkt og að drekka eitur og bíða svo eftir
að óvinir þínir deyji. – Nelson Mandela
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... til að byrja með innihélt Coca Cola kókaín?
... fyrsti Burger King staðurinn opnaði á Miami í Flórída árið 1954?
... kettir eyða um 66% af lífi sínu sofandi?
... froskar geta ekki gleypt með augun opin?
... fílar eru einu spendýrin sem geta ekki stokkið?
... það eru 22 stjörnur í merki Paramount kvikmyndaversins?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
„Sá sem svarar næstu spurningu minni má fara heim,“ sagði kennarinn
við bekkinn. Einn strákurinn tekur þá töskuna sína og hendir henni út um
gluggann. „Hver gerði þetta?“ spurði kennarinn. „Ég,“svaraði strákurinn
og hélt áfram: „Og þar sem ég er búinn að svara spurningunni þinni er ég
farinn heim …“
Krossgáta
VIGNIR GUNNARSSON,
SAUÐÁRKRÓKI:
-Nei, ég hjóla ekki í vinnuna.
Uppáhalds uppskriftir
AÐALRÉTTUR
Humarsúpa
18 stk humarhalar (í skel)
2 ½ l vatn
1 stk lítill laukur
1 stk gulrót
1 stk sellerístilkur
1 stk lárviðarlauf
10 stk heil piparkorn
2 msk tómatmauk
2 dl hvítvín eða mysa
2 msk humarkraftur
Cayenne pipar á hnífsoddi
2 stk hvítlauksgeirar
2 ½ dl rjómi
steinseljustilkur eitt búnt
(má sleppa)
smjörbolla
70 gr smjörlíki
70 gr hveiti
Aðferð: Skelflettið humarinn og
brúnið skeljarnar í stórum potti í 2
msk af olíu þar til þær verða
gullbrúnar. Grófsaxið lauk, sellerí,
gulrætur og bætið í pottinn ásamt
tómatmaukinu og látið krauma í
smá stund. Bætið vatninu saman-
við ásamt afganginum af hráefn-
inu í soðuppskriftinni. Sjóðið upp
og fleytið froðunni ofanaf. Látið
sjóða áfram við vægan hita í um
4-5 klst. Sigtið soðið, mælið upp 1,5
lítra og bakið upp með smjörboll-
unni. Bætið rjómanum og bragð-
bætið með salti, pipar og fiskikrafti.
Rétt áður en að súpan er borin
fram er humarhölunum bætt í
ásamt fínt saxaðri steinselju. Ath.
að humarinn má ekki sjóða meira
en 2 mín. Berið fram með brauð-
kollum.
BRAUÐRÉTTUR
Heiti rétturinn
1 stk brauð
1 bréf skinka
1 bréf beikon
½ bréf hangikjöt
eða hangikjötskurl
1 dolla beikonostur
4-500 dl rjómi
ostur yfir
Aðferð: Brauðið rifið niður í
eldfast mót, skinka, beikon og
hangikjöt steikt á pönnu, beikon-
ostur og rjómi sett útá, látið malla
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Uppskriftirnar eru úr öllum
áttum en eiga það sameigin-
legt að vera í miklu uppáhaldi
hjá fjölskyldunni. Það eru engin jól nema að hafa humarsúpuna á
borðum. Og heiti rétturinn er eiginlega eini heiti rétturinn sem
að er gerður á þessu heimili þessa stundina,“ segja sælkerarnir
Jensína Lýðsdóttir og Bjarni Ottósson frá Skagaströnd.
„Við þökkum Jóni og Höllu fyrir að skora á okkur. Skorum á
Jóhönnu Sigurjónsdóttur og Eirík Lýðsson að koma með glæsilegar
uppskriftir.“
Feykir spyr...
[ spurt á Facebook ]
Hjólar þú í
vinnunna?
Jensína og Bjarni matreiða
mt... MYND: ÚR EINKASAFNI
UMSJÓN thora@nyprent.is
ÞÓRANNA ÓSK
SIGURJÓNSDÓTTIR,
SAUÐÁRKRÓKI:
-Já, ég geri það.
HALLA MJÖLL
STEFÁNSDÓTTIR,
AKUREYRI:
-Nei, nei, ég fer akandi.
JAKOB LOGI GUNNARSSON,
DANMÖRKU:
-Já, hjólið er mitt aðal farartæki
bæði í vinnu og skóla, enda frábær
hreyfing og góð leið til að koma sér í
gang á morgnana.
-
STEFANÍA GUNNARSDÓTTIR,
REYKJAVÍK:
-Nei, ég hef ekki lagt í það... en fer
samt alltaf á æfingar klukkan 6 á
morgnana til að bæta það upp.