Feykir - 20.08.2015, Qupperneq 1
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
á
BLS. 14
BLS. 11
Auðunn Sigurðsson á Blöndu-
ósi svarar Rabb-a-babbi
Hræðist mest að
fara einn um borð
í rússatogara
BLS. 13
Rætt við Maríu
Eymundsdóttur býflugna-
ræktanda í Skagafirði
Hunang í heima-
framleiðsluna
Rætt við Steinunni
Gunnsteinsdóttur
verkefnastjóra SveitaSælu
Hundakeppni og
rabbarbarastilkar
31
TBL
20. ágúst 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Hátíðleg stund á Hólum
Halla Rut vígð til prestsembættis
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Fangaðu sumarið
Þú færð réttu
Canon græjuna í
Græjubúð
Tengils
Skömmu fyrir hádegi á þriðjudag
hrundi efri brúin yfir Vatnsdalsá í
Austur-Húnavatnssýslu, skammt frá
bænum Grímstungu. Flutningabíll
með eftirvagni, sem var að flytja farm
vegna vegaframkvæmda í dalnum,
var rétt ókominn yfir brúna þegar
hún gaf sig.
Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi
vestra er um rúmlega 60 ára gamla brú
að ræða sem var orðin slitin og barns
síns tíma, þó ekki væru á henni sérstakar
þungatakmarkanir. Þegar Feykir ræddi
við lögregluþjón á Blönduósi á þriðju-
daginn var ekki ljóst hversu alvarleg
meiðsli bílstjórans væru, en félagar hans
komu honum undir læknishendur.
Brúin sem er fremst í Forsæludal er
efri brúin af tveimur yfir Vatnsdalsá.
Alla jafna er lítil umferð um hana og
komast allir leiðar sinnar þrátt fyrir að
hún sé nú með öllu ónothæf, en leiðir
Brúin gaf sig undan flutningabíl
Veðrið lék við gesti Hólahátíðar á sunnudag þegar hátíðarmessa var haldin í Hóladómkirkju. Við messuna var sr. Halla Rut Stefánsdóttir vígð til að gegna sóknarprests-
embætti í Hofsós- og Hólaprestakalli. Meðal viðstaddra voru sr. Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands og Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum, sem eru
hér með Höllu Rut á mynd. Eftir hátíðarmessuna var boðið upp á veislukaffi í Hólaskóla en síðan til hátíðarsamkomu þar sem Ólöf Nordal flutti hina árlegu Hólaræðu.
MYND: KSE
Óhapp í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
milli bæja sitt hvoru megin árinnar
lengjast talsvert fyrir vikið.
Þegar Feykir ræddi við lögreglu var
unnið að því að koma bifreiðinni upp úr
ánni en engar ákvarðanir höfðu verið
teknar um viðgerðir eða endurnýjun á
brúnni. Tæknimenn frá Vegagerð og
fulltrúar frá Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa voru einnig á leiðinni á
vettvang. /KSE
Eins og sjá má er brúin stórskemmd.