Feykir - 20.08.2015, Blaðsíða 13
31/2015 13
Hvernig nemandi varstu? -Ég held
að ég hafi verið nokkuð þægilegur
nemandi, var t.d. einungis tvisvar
sendur til skólastjórans. Í báðum
tilfellum fyrir litlar sakir. Svo var ég
kladdavörður í Versló.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? -Ætli það hafi
ekki verið fermingin sjálf og gjöfin frá
foreldrum mínum en það var forláta
úr en svoleiðis hafði ég ekki eignast
fyrr en þarna.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? -Smiður eins og pabbi en
það er nokkuð djúpt á smíðagenin í
mér en þó er það aðeins að breytast
á síðustu árum.
Hvað hræðistu mest? -Að fara einn
um borð í rússneskan togara, gerði
það einu sinni í denn þegar ég seldi
þeim bíl sem ég átti. Hélt ég myndi
skíta í mig af hræðslu og geri það
aldrei aftur.
Besti ilmurinn? -Af nýþvegnum
þvotti úti á snúru, það er magnað.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? -Madness, Clash
og Duran Duran.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? -Born to be Wild, söngla
þetta alltaf við rjúpnaveiðar.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? -Beinum útsending-
um frá leikjum Man.Utd.
Besta bíómyndin? -Uncle Buck
með John Candy. Maðurinn var
hreint út sagt dásamlegur í þessari
mynd.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? -Guðjóni Val
Sigurðssyni. Óli Stef kemst nálægt
honum en Guðjón Valur er legend.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? -Strauja þvott.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? -Að ganga frá og vaska
upp. Meistari í því.
Hættulegasta helgarnammið?
-Allt með lakkrís.
Hvernig er eggið best? -Hrært á
pönnu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? -Á stundum erfitt með
að segja nei.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? -Lygi og óheiðarleiki.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? -Sælir eru þeir sem geta
klórað sér í gegnum götin.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? -Þegar yngri bróðir minn hrinti
mér niður stigann heima. Við erum
að tala um 15 steyptar tröppur.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín? -Tinni og Kolbeinn
kapteinn. Skemmtilega ruglaðar
persónur.
Hvaða fræga manneskja mundir
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
Þær eru ýmsar dellurnar
sem maður fær í lífinu.
Ein er sú sem ég sýktist
af á fermingaraldri
og hrjáir mig enn í
dag. Verkefnaleysi eitt
sumarið varð til þess
að unglingurinn mætti
á Jaðarsvöll á Akureyri
og ekki varð aftur snúið.
Ekki það að ég hefði
ekki komið á golfvöllinn
áður, því mér hafði
nokkrum sinnum verið
úthlutað það verkefni að
vera „kaddý” hjá pabba
þegar hann var að spila
með körlunum. Man enn
eftir hvað mér fannst
brekkurnar á annarri
og fimmtu holu erfiðar
og golfsettið þungt að
draga.
Á unglingsaldri var keppnin
og þjálfunin aðalmálið,
skorið átti að vera frábært
og forgjöfin að lækka.
Annað var dálítið svekkelsi
en tekið á þolinmæðinni
(oftast) og æft af kappi.
Seinna finnur maður að
það sem eftir stendur,
fyrir utan keppnina og
líkamsræktina, eru kynnin
af öllu þessu frábæra fólki
af öllu landinu sem mér
hefur auðnast að spila
með og kynnast. Þegar
ég var að byrja þá skipti
það fljótt litlu máli að fáar
stelpur voru á mínum aldri
að spila, konur og karlar
tóku vel á móti mér og
fljótlega var ég byrjuð að
spila og keppa með þeim.
Þær eru ekki margar
íþróttirnar þar sem
ungir og aldnir keppa á
jafnréttisgrundvelli en
vegna forgjafarkerfisins
geta kylfingar á öllum
aldri, óháð kyni eða getu,
leikið saman. Golf er íþrótt
sem sameinar útivist,
heilbrigði, félagsskap og
fjölskylduna. Hún byggist á
heiðarleika einstaklingsins,
virðingu fyrir íþróttinni,
reglunum og umhverfinu.
Í golfi reynir á líkamann
en ekki síður á hugann.
Það verður að kunna að
telja, fara eftir reglunum,
hafa úthald og svo er
það tæknin, baráttan við
hana er endalaus. Það er
gaman að fylgjast með því
hvernig börn ná tökum á
tækninni í golfinu. Í byrjun
virðist kylfan bókstaflega
sveifla þeim en smátt og
smátt ná börnin að stjórna
og mjúk sveiflan verður
fínni með hverri æfingunni.
Fullorðnir ná einnig tökum
á sveiflunni þó aldrei verði
hún eins og hjá þeim sem
læra tæknina á barnsaldri,
en það er allt í lagi því hver
og einn stundar íþróttina á
sínum forsendum.
Við eigum ljómandi góða
golfvelli á Norðvesturlandi;
Hlíðarenda á Sauðárkróki,
Vatnahverfisvöll á
Blönduósi og Háagerði
á Skagaströnd. Á
Sauðárkróki er að
auki hægt að æfa golf
innandyra yfir veturinn.
Það er nóg pláss fyrir alla
og nýir meðlimir innilega
velkomnir.
- - - - -
Ég skora á Jóhönnu
Björnsdóttur að taka við
pennanum.
Árný Lilja Árnadóttir á Sauðárkróki skrifar
Hugleiðingar um golf
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Leitið upplýsinga á www.gardar.info
Garðar byrjaði að mæla rafbylgjur
úr jörðu og rafbylgjur sem kom úr tenglum,
tölvum, gsm símum og ljósum.
Allar þessar bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur
og geta valdið ýmsum kvillum, svo sem:
- Mígreni
- Höfuðverk
- Svefntruflunum
- Vöðvabólgu
- Exemi
- Þurrk í húð vegna tölvu
- Fótverkjum
- Júgurbólgu
- Myglusvepp
- Skepnudauða
- Fósturskaða í dýrum
Rafbylgjumælingar
og varnir!
Kem á staðinn og framkvæmi
fyrstu mælingu ókeypis.
Upplýsingar gefur
Garðar Bergendal
í síma 892 3341
Verð í Skagafirð
i
næstu daga
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Auðunn Steinn Sigurðsson.
ÁRGANGUR: 1966.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona Magdalena Berglind Björnsdóttir,
sonur Kristófer Skúli 18 ára og dætur Margret Rún 15 ára og
Jóhanna Björk 11 ára.
BÚSETA: Bý á Blönduósi.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Foreldrar mínir eru Sigurður
Kr. Jónsson og Guðrún Ingimarsdóttir og ég er fæddur og
uppalinn á Blönduósi.
STARF / NÁM: Ég er útibússtjóri Arion banka á Blönduósi og
kláraði stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands árið 1987.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Nú er stefnan sett á pallasmíði og
Reykjavíkurmaraþon. Eftir það er lífið bara dásamlegt og
fallegt.
Auðunn Sig
þú helst vilja vera? -Sir Bobby
Charlton, þvílík goðsögn og virðist
vera alveg niðri á jörðinni í sam-
skiptum við annað fólk. Ljúfur sem
lamb.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur (og af hverju)?
-Maður sem heitir Ove. Djöfull
sem mig langaði oft til að hrista
kvikindið til við lesturinn. Enginn
einn höfundur er í uppáhaldi.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? -Magnað.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
-Fyrir utan konuna og börnin þá gæti
ég sagt Mandela. Held að hann hafi
hrist vel upp í mannréttindamálum
heimsins, ekki veitti af.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu (og af hverju)? Til
áranna í Versló, það voru góðir og
skemmtilegir tímar.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
-„Maður á næstum því leik í efstu
deild“.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu... til
Ítalíu með konunni
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? -Hníf, tjald og tannbusta.
Auðunn og Magdalena Berglind. MYND: ÚR EINKASAFNI