Feykir


Feykir - 20.08.2015, Qupperneq 13

Feykir - 20.08.2015, Qupperneq 13
31/2015 13 Hvernig nemandi varstu? -Ég held að ég hafi verið nokkuð þægilegur nemandi, var t.d. einungis tvisvar sendur til skólastjórans. Í báðum tilfellum fyrir litlar sakir. Svo var ég kladdavörður í Versló. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? -Ætli það hafi ekki verið fermingin sjálf og gjöfin frá foreldrum mínum en það var forláta úr en svoleiðis hafði ég ekki eignast fyrr en þarna. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? -Smiður eins og pabbi en það er nokkuð djúpt á smíðagenin í mér en þó er það aðeins að breytast á síðustu árum. Hvað hræðistu mest? -Að fara einn um borð í rússneskan togara, gerði það einu sinni í denn þegar ég seldi þeim bíl sem ég átti. Hélt ég myndi skíta í mig af hræðslu og geri það aldrei aftur. Besti ilmurinn? -Af nýþvegnum þvotti úti á snúru, það er magnað. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? -Madness, Clash og Duran Duran. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? -Born to be Wild, söngla þetta alltaf við rjúpnaveiðar. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? -Beinum útsending- um frá leikjum Man.Utd. Besta bíómyndin? -Uncle Buck með John Candy. Maðurinn var hreint út sagt dásamlegur í þessari mynd. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? -Guðjóni Val Sigurðssyni. Óli Stef kemst nálægt honum en Guðjón Valur er legend. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? -Strauja þvott. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? -Að ganga frá og vaska upp. Meistari í því. Hættulegasta helgarnammið? -Allt með lakkrís. Hvernig er eggið best? -Hrært á pönnu. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? -Á stundum erfitt með að segja nei. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? -Lygi og óheiðarleiki. Uppáhalds málsháttur eða til- vitnun? -Sælir eru þeir sem geta klórað sér í gegnum götin. Hver er elsta minningin sem þú átt? -Þegar yngri bróðir minn hrinti mér niður stigann heima. Við erum að tala um 15 steyptar tröppur. Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? -Tinni og Kolbeinn kapteinn. Skemmtilega ruglaðar persónur. Hvaða fræga manneskja mundir FERSKUR Á NETINU Feykir.is Hvað er að frétta? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is Þær eru ýmsar dellurnar sem maður fær í lífinu. Ein er sú sem ég sýktist af á fermingaraldri og hrjáir mig enn í dag. Verkefnaleysi eitt sumarið varð til þess að unglingurinn mætti á Jaðarsvöll á Akureyri og ekki varð aftur snúið. Ekki það að ég hefði ekki komið á golfvöllinn áður, því mér hafði nokkrum sinnum verið úthlutað það verkefni að vera „kaddý” hjá pabba þegar hann var að spila með körlunum. Man enn eftir hvað mér fannst brekkurnar á annarri og fimmtu holu erfiðar og golfsettið þungt að draga. Á unglingsaldri var keppnin og þjálfunin aðalmálið, skorið átti að vera frábært og forgjöfin að lækka. Annað var dálítið svekkelsi en tekið á þolinmæðinni (oftast) og æft af kappi. Seinna finnur maður að það sem eftir stendur, fyrir utan keppnina og líkamsræktina, eru kynnin af öllu þessu frábæra fólki af öllu landinu sem mér hefur auðnast að spila með og kynnast. Þegar ég var að byrja þá skipti það fljótt litlu máli að fáar stelpur voru á mínum aldri að spila, konur og karlar tóku vel á móti mér og fljótlega var ég byrjuð að spila og keppa með þeim. Þær eru ekki margar íþróttirnar þar sem ungir og aldnir keppa á jafnréttisgrundvelli en vegna forgjafarkerfisins geta kylfingar á öllum aldri, óháð kyni eða getu, leikið saman. Golf er íþrótt sem sameinar útivist, heilbrigði, félagsskap og fjölskylduna. Hún byggist á heiðarleika einstaklingsins, virðingu fyrir íþróttinni, reglunum og umhverfinu. Í golfi reynir á líkamann en ekki síður á hugann. Það verður að kunna að telja, fara eftir reglunum, hafa úthald og svo er það tæknin, baráttan við hana er endalaus. Það er gaman að fylgjast með því hvernig börn ná tökum á tækninni í golfinu. Í byrjun virðist kylfan bókstaflega sveifla þeim en smátt og smátt ná börnin að stjórna og mjúk sveiflan verður fínni með hverri æfingunni. Fullorðnir ná einnig tökum á sveiflunni þó aldrei verði hún eins og hjá þeim sem læra tæknina á barnsaldri, en það er allt í lagi því hver og einn stundar íþróttina á sínum forsendum. Við eigum ljómandi góða golfvelli á Norðvesturlandi; Hlíðarenda á Sauðárkróki, Vatnahverfisvöll á Blönduósi og Háagerði á Skagaströnd. Á Sauðárkróki er að auki hægt að æfa golf innandyra yfir veturinn. Það er nóg pláss fyrir alla og nýir meðlimir innilega velkomnir. - - - - - Ég skora á Jóhönnu Björnsdóttur að taka við pennanum. Árný Lilja Árnadóttir á Sauðárkróki skrifar Hugleiðingar um golf ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is Leitið upplýsinga á www.gardar.info Garðar byrjaði að mæla rafbylgjur úr jörðu og rafbylgjur sem kom úr tenglum, tölvum, gsm símum og ljósum. Allar þessar bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur og geta valdið ýmsum kvillum, svo sem: - Mígreni - Höfuðverk - Svefntruflunum - Vöðvabólgu - Exemi - Þurrk í húð vegna tölvu - Fótverkjum - Júgurbólgu - Myglusvepp - Skepnudauða - Fósturskaða í dýrum Rafbylgjumælingar og varnir! Kem á staðinn og framkvæmi fyrstu mælingu ókeypis. Upplýsingar gefur Garðar Bergendal í síma 892 3341 Verð í Skagafirð i næstu daga ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Auðunn Steinn Sigurðsson. ÁRGANGUR: 1966. FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona Magdalena Berglind Björnsdóttir, sonur Kristófer Skúli 18 ára og dætur Margret Rún 15 ára og Jóhanna Björk 11 ára. BÚSETA: Bý á Blönduósi. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Foreldrar mínir eru Sigurður Kr. Jónsson og Guðrún Ingimarsdóttir og ég er fæddur og uppalinn á Blönduósi. STARF / NÁM: Ég er útibússtjóri Arion banka á Blönduósi og kláraði stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands árið 1987. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Nú er stefnan sett á pallasmíði og Reykjavíkurmaraþon. Eftir það er lífið bara dásamlegt og fallegt. Auðunn Sig þú helst vilja vera? -Sir Bobby Charlton, þvílík goðsögn og virðist vera alveg niðri á jörðinni í sam- skiptum við annað fólk. Ljúfur sem lamb. Hver er uppáhalds bókin þín og/ eða rithöfundur (og af hverju)? -Maður sem heitir Ove. Djöfull sem mig langaði oft til að hrista kvikindið til við lesturinn. Enginn einn höfundur er í uppáhaldi. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? -Magnað. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? -Fyrir utan konuna og börnin þá gæti ég sagt Mandela. Held að hann hafi hrist vel upp í mannréttindamálum heimsins, ekki veitti af. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu (og af hverju)? Til áranna í Versló, það voru góðir og skemmtilegir tímar. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? -„Maður á næstum því leik í efstu deild“. Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Ítalíu með konunni Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? -Hníf, tjald og tannbusta. Auðunn og Magdalena Berglind. MYND: ÚR EINKASAFNI

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.