Feykir - 20.08.2015, Qupperneq 4
4 31/2015
Körfubolti : 1. deild kvenna
Dagana 9.–15. ágúst var rúmum 758 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var landað tæpum 29
tonnum á Hofsósi, rúmum 2,5 tonnum á Hvammstanga og rúmum 407 tonnum á Sauðárkróki.
Alls gera þetta tæplega 1000 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 9.–15. ágúst á Norðurlandi vestra
Nærri 1000 tonn að landi
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 2.512
Alls á Hvammstanga 2.512
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landbeitt lína 4.380
Arnar HU 1 Flotvarpa 314.750
Auður SH 94 Handfæri 1.683
Ásdís HU 24 Handfæri 1.731
Bergur sterki HU Landb.lína 628
Bjartur í Vík Handfæri 1.360
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.774
Diddi GK 56 Handfæri 928
Dúddi Gísla GK Lína 5.391
Eiður EA 13 Handfæri 2.533
Elín ÞH 82 Handfæri 1.847
Félaginn KÓ 25 Handfæri 1.995
Fjöður HU 90 Handfæri 1.769
Garpur ST 44 Grásleppunet 2.748
Geiri HU 69 Handfæri 2.592
Guðbjörg GK 666 Landb.lína 15.255
Guðmundur á Hópi Landb.lína 16.934
Guðrún R. HU 162 Handfæri 3.012
Gyðjan EA 44 Handfæri 718
Hafdís HU 85 Handfæri 2.539
Hafrún HU Dragnót 9.461
Hjördís HU 16 Grásleppunet 804
Húni HU 62 Handfæri 840
Jenný HU 36 Handfæri 1.570
Katrín GK 266 Landb.lína 20.674
Kristbjörg SH 112 Lína 20.633
Kristborg SH 108 Handfæri 2.421
Kristinn SH 812 Landb.lína 10.239
Muggur Hu 57 Landb.lína 8.077
Nonni HU 9 Handfæri 3.288
Ólafur Magnússon Net 199
Óli á Stað GK 99 Lína 43.761
Slyngur EA 74 Handfæri 2.747
Smári HU 7 Handfæri 1.716
Stefanía HU 136 Handfæri 3.180
Steini GK 34 Handfæri 256
Stella GK 23 Landb.lína 8.529
Sveinbjörg HU 49 Handfæri 2.229
Sæborg HU 80 Handfæri 2.027
Sæunn HU 30 Handfæri 3.275
Alls á Skagaströnd 530.493
HOFSÓS
Álborg SK 88 Handfæri 2.953
Ásmundur SK 123 Landb.lína 5.836
Hafbjörg SK 58 Handfæri 2.452
Skáley SK 32 Handfæri 2.455
Von SK 21 Handfæri 2.010
Þorgrímur SK 27 Handfæri 2.447
Þorleifur EA 88 Dragnót 10.735
Alls á Hofsósi 28.888
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Handfæri 2.534
Fannar SK 11 Lína 2.422
Hafey SK 10 Handfæri 1.703
Helga Guðm. SK 23 Handfæri 1.587
Klakkur SK 5 Flotvarpa 81.754
Kristín SK 77 Handfæri 1.552
Málmey SK 1 Botnvarpa 306.563
Maró SK 33 Handfæri 869
Már SK 90 Handfæri 2.964
Nona SK 141 Handfæri 1.689
Óskar SK 13 Handfæri 387
Vinur SK 22 Handfæri 1.831
Þytur SK 18 Grásleppunet 1.218
Alls á Sauðárkróki 407.073
NLM Open í skotfimi lokið
Skotfimi
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
NLM open mótið í skotfimi var
haldið á skotsvæði Ósmann í
Skagafirði um helgina en
mótshald var í höndum
Skotfélagsins Markviss.
Heppnaðist það vel og veðrið
lék við keppendur og mótsgesti,
þrátt fyrir stöku skúr, vindhviðu
og haglél, eins og segir á fés-
bókarsíðu Skotfélagsins Mark-
viss.
Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
B-flokkur
Brynjar Þ Guðmundsson MAV
Hörður Sigurðsson SÍH
Helga Jóhannsdóttir SÍH
A-flokkur
Grétar Mar Axelsson SA
G. Bragi Magnússon SA
Guðmann Jónasson MAV
Í fyrsta skipti í ár var krýndur
Norðurlandsmeistari kvenna.
Ekki var háð hörð barátta um
titilinn þar sem að Snjólaug M.
Jónsdóttir MAV var eini kvenkyns
keppandinn. Baráttan var hins
vegar aðeins meiri í karlaflokki en
fór svo að Grétar Mar Axelsson
var hæstur að fimm hringjum
loknum, G. Bragi Magnússon í
öðru sæti og Guðmann Jónasson í
þriðja sæti. /KSE
Keppendur á mótinu. MYND: FÉSBÓKARSÍÐA MARKVISS
SveitaSælu-
mót
Hestamannafélögin í
Skagafirði
SveitaSælu-mót verður
haldið laugardaginn 22.
ágúst nk. á félagssvæði
Léttfeta. Keppnisfyrir-
komulag er á þann veg að
þrír eru inná í einu.
Keppt verður í eftirtöld-
um flokkum:
A-flokkur =
Tölt, Brokk, Skeið.
B-flokkur =
Hægt tölt, Brokk, Yfirferðar-
tölt.
C flokkur – Nýr flokkur =
Tölt eða Brokk, Stökk
100m Skeið.
Veðurspáin fyrir laugar-
daginn er ekki amaleg en
reikna má með skýjuðu en
stilltu veðri og hitastigi
eitthvað á annan tuginn. Það
ætti því ekki að væsa um
keppendur og áhorfendur á
SveitaSælunni. /BÞ og ÓAB
„Lífsins skák“ komin út
Minningar Önnu P. Þórðardóttur
Út er komin bókin Lífsins
skák, sem inniheldur
minningar Önnu P.
Þórðardóttur á Sauðárkróki.
„Mig langar að til að segja
sögu mína sem er að mörgu
leyti all sérstæð,“ er haft eftir
Önnu sjálfri á bókarkápu. Auk
minninga Önnu segja nokkrir
samferðamenn frá kynnum
sínum af henni í sérstökum
bókarköflum.
Anna, sem fagnaði áttatíu ára
afmæli sínu síðastliðið vor, hefur
unnið að ritun bókarinnar og
notið til þess aðstoðar Þóru
Kristjánsdóttur og Ingibjargar
Hafstað, auk þess sem Krist-
mundur Bjarnason hvatti hana
mjög til að færa sögu sína í letur.
Í tilefni af útgáfu bókarinnar
taka Anna, og aðrir sem að út-
gáfunni standa, á móti gestum í
sal Dvalaheimilis aldraðra á
Sauðárkróki á morgun, föstu-
daginn 21. ágúst, kl. 16-18.
Þar verða fyrstu eintök
bókarinnar til sölu og kostar hún
3.500 krónur. Bókin verður
síðan til sölu hjá Önnu
Þórðardóttur í síma 892 4619,
Þóru Kristjánsdóttur í síma 453
5405 og Ingibjörgu Hafstað í
síma 453 5531. /KSE
Fjórir Íslandsmeist-
arar frá UMSS
Meistaramót Íslands 15–22 ára á Sauðárkróki
Fjölmennt Meistaramót
Íslands 15-22 ára í frjálsum
íþróttum fór fram í góðu veðri
á Sauðárkróki um helgina.
Um 200 keppendur tóku þátt
í mótinu og þar af voru
nokkrir skagfirskir keppendur
sem áttu gott mót.
Í hóp keppenda frá UMSS
voru fjórir Íslandmeistarar; þau
Gunnar Freyr Þórarinsson sem
var í 1. sæti í sleggjukasti 16-17
ára, Ísak Óli Traustason sigraði í
110m grindarhlaupi 20-22 ára,
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir
sigraði í hástökki 18-19 ára og
100m grindahlaupi 18–19 ára en
hún stökk 1,63 m í hástökk sem
er mótsmet. Laufey Rún Harðar-
dóttir varð Íslandsmeistari í
kúluvarpi 20-22 ára.
Úrslit keppenda UMSS voru
eftirfarandi:
Gísli Laufeyjarson Höskuldsson
var í 10. sæti í langstökki pilta 15
ára og í 5. sæti í kúluvarpi 15 ára.
Gunnar Freyr Þórarinsson sigr-
aði í sleggjukasti 16-17 ára,
Vésteinn Karl Vésteinsson varð í
3. sæti í þeim flokki og Rúnar
Ingi Stefánsson í fimmta.
Gunnar hafnaði einnig í 4. sæti í
kúluvarpi 16-17 ára og Rúnar
Ingi í 5. sæti. Gunnar Freyr
keppti einnig í kringlukasti 16-
17 ára og varð í 7. sæti og Rúnar
Ingi í því 9. Drengirnir kepptu
jafnframt í spjótkasti 16-17 ára,
þar varð Rúnar Ingi í 6. sæti og
Gunnar í því sjöunda.
Kristinn Freyr Briem Pálsson
var í 6. sæti í 200m hlaupi pilta
16-17 ára. Þá varð Sveinbjörn
Óli Svavarsson í 2. sæti bæði í
100m og 200m hlaupi 18-19 ára.
Hákon Ingi Stefánsson varð í 4.
sæti í spjótkasti 18-19 ára og 6.
sæti í kringlukasti 18-19 ára.
Sem fyrr segir varð Ísak Óli
Traustason Íslandsmeistari í
110m grindarhlaupi 20-22 ára
en þar að auki var hann í 3. sæti í
100m og 400m hlaupi 20-22 ára,
í 4. sæti í langstökki pilta og 5.
sæti í kringlukasti. Jóhann Björn
Sigurbjörnsson hreppti 2. sætið í
100m og 200m hlaupi 20-22 ára.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
var í 2. sæti í kúluvarpi stúlkna
16-17 ára, 4. sæti í kringlukasti
og 3. sæti í sleggjukasti. Vala Rún
Stefánsdóttir var í 4. sæti í
spjótkasti 16-17 ára. Ragna
Vigdís Vésteinsdóttir var í 5. sæti
100m hlaupi 18-19 ára, 7. sæti í
kúluvarpi 18-19 ára, 7. sæti í
kringlukasti, 4. sæti í spjótkasti
og í 3. sæti í sleggjukasti. Þá varð
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir
Íslandsmeistari í hástökki 18-19
ára, 100m grindahlaupi, 2. sæti í
þrístökki 18-19 ára, 5. sæti í
kúluvarpi og í kringlu. Laufey
Rún Harðardóttir varð Íslands-
meistari í kúluvarpi 20-22 ára, 3.
sæti í kringlukasti og 2. sæti í
spjótkasti. /BÞ