Feykir - 20.08.2015, Síða 5
31/2015 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
við Hesteyri 550 Sauðárkróki Sími 455 9200 www.tengillehf.is
við Hesteyri 550 Sauðárkróki Sími 455 7900 www.fjolnet.is
Borgarmýri 1 Sími 453 5433 www.stettarfelag.is
Skagfirðingabraut 45 550 Sauðárkróki Sími 510 7716 www.momentum.is
Eyrarvegi 21 550 Sauðárkróki Sími 455 4610 www.ks.is
skagFIRÐINGAR!
til hamingju með sveitasælu 2015
Austurvegur 69 800 Selfoss Sími 480 0400 www.jotunn.is
Kjarnanum við Hesteyri Sími 455 4500 www.ks.is
Verslunarmannafélag Skagafjarðar
Verslun KS í Varmahlíð Sími 455 4680 www.ks.is
VARMAHLÍÐ
Borgarteigi 15, 550 Sauðárkróki Sími 455 6200 www.skv.is
Eyrarvegi 20 550 Sauðárkróki Sími 455 4500 www.ks.is
Aðalgötu 19 550 Sauðárkróki
Sími 467 3133
Sláturhús KVH Hvammstanga
Sími 455 2330
Aðalgötu 21 550 Sauðárkrókur Sími 453 5050 www.stodehf.is
VERKFRÆÐISTOFA
Hesteyri 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 4500
Aðalgötu 15 550 Sauðárkrókur Sími 453 6454 www.olafshus.is
Ógleymanleg ferð
Stúlkurnar í Tindastóli/Hvöt fóru á Gothia Cup
Dagana 10. – 18. júlí fórum
við stelpurnar í 3. flokki
Tindastóls/Hvatar í langþráð
fótboltaferðalag á Gothia Cup
í Svíþjóð. Ýmislegt var brallað
í ferðinni þó að fótboltinn hafi
alltaf verið númer eitt.
Við flugum út föstudaginn 10.
júlí og gistum í Lyndby skóla
sem var vel staðsettur því það var
stutt í sporvagnana, búðir og
skólann sem við borðuðum í. Í
skólanum gistu fjögur íslensk lið
og lið frá Indlandi, Tékklandi og
Þýskalandi. Við spiluðum á móti
liðum frá Svíþjóð, Eistlandi, Abu
Dhabi og Noregi. Þetta voru allt
mjög flott lið og allir leikir sem
við spiluðum voru baráttuleikir.
Það var mikil upplifum að spila á
móti svona rosalega góðum
liðum og við lærðum mjög
mikið sem við munum taka með
okkur í restina af leikjunum
hérna heima.
Yfir 50.000 manns lögðu svo
leið sína á opnunarhátíðina sem
var rosalega flott! Á opnunar-
hátíðinni eru öll lönd sem taka
þátt í mótinu kynnt og labbar eitt
lið frá hverju landi inn á völlinn
fyrir þeirra hönd. Fyrir Íslands
hönd var það lið Stjörnunnar.
Það var virkilega gaman að sjá
alla þessa ólíku menningarheima
koma saman á Ullevi því stemn-
ingin var gríðarleg og maður var
með gæsahúð allt kvöldið.
Við nýttum hvert einasta
tækifæri, þegar við vorum ekki
að fara að spila, í að fara í
verslunarmiðstöðina og versla
eða fara í tívolíið í Liseberg sem
við fengum sérstakan vikupassa
í. Það sem gerði þessa ferð svona
góða var skemmtilegt fólk, gott
veður og síðast en ekki síst,
skemmtilegur fótbolti og and-
stæðingar.
Þessi ferð verður alveg
ógleymanleg og við viljum nota
tækifærið og þakka öllum þeim
fyrirtækjum og einstaklingum
sem styrktu okkur kærlega fyrir
að taka svona vel á móti okkur
þegar við vorum í fjáröflunum.
TEXTI: Áróra Árnadóttir
MYNDIR: Alexandra Guðjónsd.
Farið yfir málin í Svíþjóð.
Svekkelsi í
Breiðholtinu
2. deild karla
Tindastólsmenn fóru enga
frægðarför í Breiðholtið þar
sem þeir mættu toppliði ÍR í
2. deildinni sl. föstudag.
Heimamenn voru snöggir
upp á lagið og voru komnir
yfir eftir fjórar mínútur en
staðan í hálfleik var 3-0. Í
síðari hálfleik gerði síðan
fyrrum fyrirliði Stólanna,
Björn Anton Guðmundsson,
eina markið og sendi kveðju
heim á Krók. Lokatölur 4-0
og staða Stólanna þyngdist
þar sem önnur úrslit voru
ekki hagstæð. Stólarnir eru í
10. sæti með 16 stig og
óhagstæða markatölu. Næsti
leikur er gegn Sindra á
Króknum nk. laugardag. /ÓAB
Stólastúlkur
óheppnar á
Húsavík
1. deild kvenna
Tindastólsstúlkur heimsóttu
Völsung Húsavík í síðustu
viku en fyrirfram var
reiknað með erfiðum leik
þar sem Húsvíkingar höfðu
unnið alla sína leiki það
sem af var sumri.
Heimastúlkur komust
yfir á 21. mínútu með marki
frá Hafrúnu Olgeirsdóttur
en Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
jafnaði metin á 38. mínútu.
Sunna Atladóttir kom
Stólunum yfir snemma í
síðari hálfleik og allt stefndi
í frábæran Tindastólssigur.
Það varð þó ekki því þegar
fjórar mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leik-
tíma jafnaði Dagbjört
Ingvarsdóttir metin fyrir
Völsung.
Lokatölur því 2-2 sem
verða að teljast góð úrslit en
engu að síður svekkjandi.
Lið Tindastóls er nú í 3ja
sæti C-riðils í 1. deild
kvenna og á eftir að spila
einn leik í sumar. Hann fer
fram í Boganum á Akureyri
á föstudaginn kl. 18:30 en þá
mætir Tindastóll liði Hamr-
anna sem getur með sigri
skotist upp fyrir Stóla-
stúlkur í riðlinum. Það
verður því spilað upp á
þriðja sætið á Akureyri. /ÓAB