Feykir


Feykir - 28.01.2016, Side 1

Feykir - 28.01.2016, Side 1
BLS. 6–7 BLS. 8 Árni Gunnarsson fylgdi sýrlenskum flóttamönnum frá Beirút til Íslands Hlustuðum á margar sögur, flestar afskaplega sorglegar BLS. 9-10 Feykir heimsækir Leikskólann Barnaból á Skagaströnd Yndislegt að heyra litlar raddir kalla: Bíddu kæri vinur Sólmundur Friðriksson svarar fyrir sig í Tón-lystinni Féll fimm ára fyrir lagi með Hendrix 04 TBL 28. janúar 2016 36. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. Skagfirskir hestamenn ætla að taka vel á móti gestum sem koma með hross til keppni á Landsmótinu á Hólum næsta sumar. Á opnum fundi um skipulag mótsins sl. laugardag tilkynnti Ingimar Ingimarsson sem unnið hefur að skipulagi hesthúsmála fyrir mótið að skagfirskir hestamenn hyggist bjóða keppendum á Landsmótinu ókeypis hesthúspláss á meðan á mótinu stendur. Í tilkynningu frá Landsmóti hesta- manna segir að framtakið endurspegli enn og aftur þá miklu samstöðu sem er um verkefnið í Skagafirði þar sem allir ætla að leggjast á eitt til að gera Landsmót-ið á Hólum að glæsilegum viðburði. „Þó það sé mikill húsakostur á Hólum þá dugir hann ekki til og er þörf á að skipuleggja nýtinguna. Við fengum það verkefni að finna pláss hér í héraði og þessi hugmynd kviknaði strax hjá okkur, hvort við gætum ekki verið svolítið rausnarlegir Skagfirð- ingar og það gekk eftir. Hestamenn tóku vel í það,“ sagði Ingimar í samtali við Feyki. Hann segir að von sé á bilinu 600 til 700 keppnishrossum á mótið, hugmyndin sé að nýta Brúnastaði, stóra hesthúsið á Hólum, fyrir þau hross sem eru að keppa hverju sinni, svo fari hrossin á náttstað. Auk þess sem boðið verður upp á pláss þá verður einnig skaffaður undirburður og hey, því sem til er að dreifa. „Mér heyrist á bændum að þeir sæju ekki eftir tveim til þrem rúllum en kannski í einhverjum tilfellum vantar hey,“ sagði Ingimar. Áskell Heiðar Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri Landsmóts segir þetta mjög höfðinglegt boð hjá skagfirskum hesta- mönnum. „Þetta skiptir verulegu máli fyrir okkur sem erum að skipuleggja mótið og auðvitað þá sem munu koma hingað með hesta í keppni. Það er frábært að finna þessa jákvæðni sem þetta verkefni mætir og endurspeglast í þessu boði og líka í þeim frábæru viðtökum sem miðasalan hefur fengið“. Vinna stendur yfir varðandi skipulag á nýtingu þess mikla hesthúspláss sem er á mótssvæðinu á Hólum og verður niður- staða þeirrar vinnu kynnt innan tíðar. En sem fyrr segir er stefnt að því að bjóða aðstöðuna þar fyrir keppendur á keppnis- degi og að engin langtímapláss verði í boði inni á mótssvæðinu. Ennfremur er unnið að skipulagi beitarhólfa fyrir keppendur á mótssvæðinu. /BÞ Skagfirðingar bjóða ókeypis hesthúspláss á Landsmóti S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6 FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN! ÚTSÖLULOK 28.–31. JANÚAR allt að 70% AFSLÁTTUR Glæsi legt úrval á pier. is Vertu vinur okkar á Facebook Ljósadýrð við minnisvarðann um Klettafjallaskáldið Stephan G. Stephansson á Arnarstapa í Skagafirði. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON Samstaða um að gera Landsmótið á Hólum sem glæsilegast Norðurljósadans við Arnarstapa 35 ára Ingimar Ingimarsson, fyrrum kennari við Bænda- skólann á Hólum, og Lárus Ástmar Hannesson, fyrrverandi nemandi hans og formaður LSH á fundinum í Tjarnarbæ sl. laugardag. MYND: ÁHÁ

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.