Feykir


Feykir - 28.01.2016, Qupperneq 12

Feykir - 28.01.2016, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 04 TBL 28. janúar 2016 36. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 N1 í Varmahlíð Breytingar vegna olíugeyma N1 hf. hefur sótt um heimild til að afleggja neðanjarðarbirgðaolíugeyma N1 í Varmahlíð og setja tvo ofanjarðargeyma í staðinn, 20 þúsund lítra hvorn. Sótt er um leyfið tímabundið. Þetta kemur fram í fundargerð Skipulags- og bygginganefndar Svf. SKagafjarðar 22. janúar sl. Það er Hafsteinn Guðmundsson, deildarstjóri fram- kvæmdadeildar N1 hf, sem sækir um leyfið f.h. N1. Fyrir fundinum lágu umsagnir heilbrigðisfulltrúa og slökkvi- liðsstjóra. Fallist var á að veita leyfi fyrir ofangreindri framkvæmd gegn því að athugasemdir og ábendingar slökkviliðsstjóra og heilbrigðisfulltrúa verið virtar. Veitt var tímabundið leyfi til 31. janúar 2017. /BÞ Í lok 19. aldar var farið að huga að byggingu sjúkrahúss á Sauðárkróki. Stofnaður var sjúkrasjóður til að standa undir framkvæmdunum. Til að byrja með gekk hægt að safna í sjóðinn en á tímabilinu 1903-1905 stækkaði hann umtalsvert, ekki síst fyrir tilstilli tveggja einstaklinga sem arfleiddu hluta eigna sinna til sjóðsins. Fyrir vikið var árið 1905 kosin nefnd til að huga að því hvort mögulegt væri að ráðast þá þegar í byggingu sjúkrahússins. Nefndin taldi svo vera og samþykkti sýslunefndin þá niðurstöðu. Byggingarnefnd var skipuð sem valdi hússtæði og sá um alla framkvæmd byggingarinnar. Í henni sátu Guðmundur Björnsson, oddviti sýslunefndar, Sigurður héraðslæknir og Stefán Jónsson faktor. Teikningu gerði Jón Þorláksson landsverkfræðingur. Samningur var gerður við J. Gunnarsson & S. Jóhannesson á Akureyri að byggja húsið sumarið 1906. Húsið var tekið í notkun í byrjun árs 1907. Fullgert mun það hafa haft rúm fyrir 14 sjúklinga. Árið 1922 var byggt við suðurstafn hússins. Viðbyggingin var ein hæð með kjallara undir og loftsvölum yfir, 7 x 12 ½ alnir. Teikningu gerði Steindór Jónsson. Hlutverk hússins breyttist árið ( HÚS MEÐ SÖGU OG SÁL ) berglind@feykir.is Gamla Sjúkrahúsið á Króknum er nú Safnaðarheimili Sjúkrahúsið, Spítalinn, Safnaðarheimilið við Aðalgötu 1, Sauðárkróki Byggt árið 1906 1961 er nýtt sjúkrahús var tekið í notkun á Sauðárkróki. Í kjölfarið keypti Sauðárkróksbær hlut sýsl- unnar í húsinu og hafði það til ýmissa afnota um sinn. Árið 1965 keypti sóknarnefnd Sauðárkróks- kirkju húsið og nýtir það sem safnaðarheimili. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga, Gísli Þór Ólafsson skrásetti. Bakhlið sjúkrahússins. Myndin tekin á árunum 1910-1912. MYND: HSK Sauðárkrókskirkja og Safnaðarheimilið. MYND: ÓAB og pantið áburðinn hjá okkur fyrir 1. febrúar Björn Magni, sölumaður áburðar og sáðvöru tekur við pöntunum BÆNDUR nýtið ykkur bestu kjör Verð og úrval afar gott eins og áður Sjáumst hress!

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.