Feykir - 17.03.2011, Page 2
2 Feykir 11/2011
Svínavatnsleið
Akureyrarbær vill fund um málið
Bæjarráð Akureyrarbæjar
hefur falið bæjarstjóra að
óska eftir fundi með bæjar-
stjóra Blönduósbæjar og
sveitarstjóra Húnavatns-
hrepps til þess að ræða
mismunandi hagsmuni
sveitarfélaganna varðandi
styttingu hringvegarins með
hinni svokölluðu Svínavatns-
leið/Húnavallaleið.
Í fundargerð bæjarráðs
Akureyrarbæjar frá 10. mars
síðastliðnum kemur fram að
fulltrúar L-lista og D-lista fóru
á fund umhverfisráðherra 8.
mars síðastliðinn. Tilgangur
fundarins var að koma sjón-
armiðum Akureyrarbæjar á
framfæri varðandi styttingu
leiðarinnar á milli Akureyrar
og Reykjavíkur, en umhverfis-
ráðherra á eftir að úrskurða
um málið.
Rætt var um umhverfisleg-
an ávinning sem og fjár-
hagslegan ávinning íbúa
Akureyrar í formi flutnings-
kostnaðar, en ekki hvað síst
um umferðaröryggi á um-
ræddum köflum leiðarinnar,
að því er fram kemur í fundar-
gerðinni.
Dægurlagakeppni í Sæluviku á Sauðárkróki
Dægurlagakeppnin
endurvakin
Sæluvikan, árleg lista- og
menningarhátíð í Skaga-
firði verður haldin 1.-7.maí
nk. Meðal stærstu við-
burða þetta árið verður
dægurlagakeppni Sæluviku
sem fram fer á Sauðár-
króki, föstudaginn 6. maí.
Keppnin er öllum opin og
eru allir lagahöfundar landsins
hvattir til að senda inn lög.
Dómnefnd mun velja 10 lög
sem keppa á úrslitakvöldinu
um titillinn Sæluvikulagið
2011.
Dægurlagakeppni á sér ára-
tuga langa hefð á Sauðárkróki
og þá lengst af í tengslum við
Sæluviku. Kvenfélag Sauðár-
króks stóð lengst af fyrir
keppninni, þeirri fyrstu árið
1956, en sigurlagið í þeirri
keppni átti Eyþór Stefánsson,
tónskáld og síðar heiðursborg-
ari Sauðárkróks. Dægurlaga-
keppnin varð smátt og smátt að
heilmiklum viðburði í bæjar-
lífinu og ýmis lög sem þar hafa
komið fram hafa lifað. Meðal
sigurvegara í keppnum fyrri ára
má nefna Geirmund Valtýsson
sem hefur sigrað fjórum
sinnum, fyrst á sjötta áratugnum
og síðast árið 1996.
Meðal annarra þekktra
flytjenda sem komið hafa fram
í keppninni á síðustu árum og
sumir stigið þar sín fyrstu skref
má nefna Hreindísi Ylfu Garð-
arsdóttur, Aðalheiði Ólafs-
dóttur, Regínu Ósk, Guðrúnu
Gunnarsdóttur, Eyjólf
Kristjánsson, Friðrik Ómar og
marga fleiri.
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir – gudny@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 861 9842
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur: Karl Jónsson
Áskriftarverð: 317 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Feykir
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Sauðárkrókur
Sjóveita í rækjuvinnsluna
Í síðasta mánuði var Rækjuvinnslan Dögun
tengd við sjóveitu og notar nú sjó úr bor-
holum á sandfangaranum við Sauðárkróks-
höfn við framleiðslu sína en rækjuvinnsla er
mjög vatnsfrek framleiðsla og hefur valdið
mörgu byggðalaginu höfuðverk við að út-
vega það magn af köldu vatni til fram-
leiðslunnar sem þarf, bæði hér á landi sem
erlendis.
Það er vel þekkt erlendis að nota sjó til
plokkunar rækju þar sem vatn er ekki í boði og
vegna þessa fóru Skagafjarðarveitur út í það að
bora eftir sjó við höfnina á Sauðárkróki til að
létta á kaldavatnsnotkuninni sem hefur verið
höfuðverkur nú um nokkur ára skeið vegna sí
minnkandi úrkomu á svæðinu.
Á heimasíðu Skagafjarðaveitna segir að eftir
ráðgjöf Þórólfs Hafstað jarðfræðings hjá ÍSOR
voru boraðar tvær holur í Sandfangarann við
höfnina á Sauðárkróki með nokkrum árangri.
Holurnar eru fóðraðar með 14“ stálrörum og
eru rúmlega 30 metra djúpar. Efst var fóðrað í
gegnum ca. 8 metra þykkt malar- og sandlag þá
tók við mjög þéttur leir næstu 20 metra síðan
1,5 – 2 metra lag af möl en síðan klöpp í um 30
metra dýpi. Stálfóðringin var síðan götuð þar
sem malarlagið var.
Dælum var komið fyrir í holunum og gefa
þær hvor um sig um 8 l/sek af 22 ‰ söltum
sjó. Rækjuvinnslan Dögun er að nota um 12 l/
sek þegar vinnslan er í gangi og munar það
miklu í kaldavatnshallærinu.
Sigurvegarar í Dægurlagakeppnni Kvenfélags Sauðárkróks árið 2005.
Veiðisvæði Blöndu og Svartár
Til leigu
Heiðadeild Veiðifélags
Blöndu og Svartár hefur
óskað eftir tilboðum í
silungsveiði á vatnasvæði
veiðifélagsins sem er
Blöndulón og þær þverár
sem falla í lónið og Blöndu
ofan Blöndustíflu. Meðal
annars er netaveiði leyfð í
Blöndulóni.
Hægt er að gera tilboð í
vatnasvæðið allt eða skipta því
í tvennt, austara svæði sem er
hluti af Blöndulóni ásamt
Galtará, Haugakvísl og
Herjólfslæk eða vestara svæði
sem er hluti af Blöndulóni
ásamt Kúlukvísl, Seyðisá og
Stóralæk.
Tilboðsfrestur er til 10.
apríl 2011 og geta áhugasamir
skila tilboðum til formanns
félagsins, Jóhanns Guðmunds-
sonar, Holti, sem veitir allar
nánari upplýsingar. Innilegar þakkir til ykkar allra
sem sýnduð okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföðurs og afa
Halls Jónassonar,
bifreiðastjóra
Lindarbrekku, Varmahlíð
Sérstakar þakkir til Álftagerðisbræðra.
Guð blessi ykkur öll
Aðalbjörg Anna Jónsdóttir
Þ A K K I R
Steinunn Helga Hallsdóttir
Jónas Jón Hallsson
Hafdís Hallsdóttir,
Jónína Hallsdóttir
Gunnar Randver Ágústsson
Inga Hanna Dagbjartsdóttir
Bjarni Ingvarsson
Einar Einarsson
og öll afabörnin
Þessa dagana standa yfir
æfingar á leikritinu Einn
koss enn og ég segi ekki
orð við Jónatan eftir Marc
Camoletti en það er leik-
félag Ungmennafélagsins
Grettis í Miðfirði sem sér um
að koma leikritinu á fjalirnar.
Leikritið fjallar um Jónatan
og konur sem hann umgengst
ásamt Róberti vini sínum og
eins og gerist í góðum försum
þá má ætla að misskilnings
gæti í samskiptum við kven-
fólkið og skemmtilegar áætlanir
vegna þeirra fari út um þúfur.
Á Húnaþingsblogginu segir
að frumsýnint verði föstudags-
kvöldið 25. mars.
Húnaþing vestra
Einn koss
enn...
Gamlar kirkjur í Húnaþingi
Fá styrki úr Húsfriðunarsjóði
Blönduóskirkja eldri, Svína-
vatnskirkja og Vesturhóps-
hólakirkja eru á meðal verk-
efna sem Húsfriðunarsjóður
hefur styrkt fyrir árið 2011.
Blönduóskirkja eldri sem
byggð er árið 1894 og Svína-
vatnskirkja sem byggð er árið
1882 fengu 500 þúsund króna
styrk hvor og Vesturhópshóla-
kirkja sem byggð er árið 1877
fékk 350 þúsund króna styrk.
Hlutverk Húsafriðunarsjóðs
er að veita styrki til viðhalds og
endurbóta á friðuðum húsum
og mannvirkjum. Heimilt er að
veita styrki til viðhalds annarra
húsa en friðaðra sem að dómi
Húsafriðunarnefndar hafa
menningarsögulegt eða listrænt
gildi. Sjóðnum ber að stuðla að
byggingarsögulegum rann-
sóknum og útgáfu rita um
þær.