Feykir - 17.03.2011, Blaðsíða 9
11/2011 Feykir 9
Um þessar mundir
ljúka um 60 börn
námskeiði í ungbarna og
krakkasundi í sundlaug
Heilbrigðisstofnunar á
Sauðárkróki.
Yngstu börnin á námskeið-
inu voru um þriggja mánaða
þegar þau hófu námskeiðið,
en það er upplagður aldur
til að hefja sundnám. Elstu
börnin eru hinsvegar að
hefja skólagöngu í haust og
nokkur þeirra hafa stundað
námskeið hjá Dóru Heiðu
Halldórsdóttur, leiðbeinanda
námskeiðsins, frá því þau
voru nokkurra mánaða.
Aðrir nemendur í þessum
hópi hafa mis langan sund-
feril og nokkrir jafnvel bara
byrjendur í sundi, en Dóra
Heiða segir aðdáunarvert
hvað þeir hafa náð miklum
árangri og fengið mikla
reynslu við umgengni við
vatnið.
Dóra Heiða segir að sund
séu upplagt fyrir börn, en það
efli hreyfiþroska, styrki þau
og efli einnig tilfinningatengsl
milli foreldra og barns. Að
auki geri sundþjálfunin þau
öruggari í umgengni við
vatn og sundlaugar. Aðspurð
segir hún að þriggja mánaða
börnin bregðist mjög vel við
að koma í vatnið, þetta sé
þeim nokkuð eðlislægt.
Þetta er ellefti veturinn
sem Dóra Heiða hefur
staðið fyrir námskeiðum í
ungbarna/krakkasundi á
Sauðárkróki og hjá henni
hefur fjöldi barna tekið fyrstu
sundtökin. Eftirspurnin eftir
námskeiðum hefur sjaldan
verið meiri en núna. Ný nám-
skeið hefjast í næstu viku.
Ungir sundgarpar
Þriggja mánaða
sundgarpar
Menning – Fréttir frá H.U.H.
Mesta púðrið fór í
endurbætur á Ósbæ
Það hefur verið mikið líf í
starfi harmonikkuunnenda
í Húnaþingi sl. ár en auk
árlegrar harmonikkuhátíðar í
Húnaveri hefur félagið staðið
í endurbótum á húsnæði
sínu á Blönduósi, er að
skipuleggja hátíð sumarsins
auk hagyrðingakvölds
sem haldið verður síðasta
vetrardag. Feykir fékk
sendan þennan skemmtilega
pistil frá félögum.
Harmonikkuhátíð í Húnaveri
var haldin 25. – 27. júní 2010
í samstarfi við Skagfirðinga
og var með hefð bundu
sniði. Gestir komu flestir á
föstudag og var dansleikur
þá um kvöldið þar sem hinn
landsþekkti Geirmundur spil-
aði á harmonikku ásamt Jóa
trommuleikara og gerðu þeir
góða lukku. Skemmtidagskrá
var svo á laugardag og ball
um kvöldið, þar spiluðu tvær
grúbbur úr Skagafirði og fl.
Hátíðin tókst mjög vel og var
fjölsótt.
Í byrjun árs 2010 var ráðist
í það verkefni að endurbæta
verulega húsnæði félagsins
Ósbæ Þverbraut 1 Blönduósi.
Húsnæðið sem er 163 m2
að stærð er í eigu klúbbsins
og nokkurra einstaklinga.
Innréttuð var ný snyrting,
með mjög góðri aðstöðu fyrir
fatlaða og aðalinngangur í
húsið færður.
Eftir vatnstjón var lagt
parket á sal, eldhús fært og
stækkaði salurinn talsvert við
það. Nú er rými fyrir 90 manns
í sæti auk dansgólfs.
Laugardaginn 5. mars s.l.
var endurbætt húsið formlega
tekið í notkun með veislu-
kaffi og harmonikkuballi
þar sem Aðalsteinn Ísfjörð,
Jóhann Viðar og Jón Kristjáns
sáu um að allir skemmtu sér.
Gestir kvöldsins voru á einu
máli um að húsið væri allt hið
glæsilegasta og öll aðstaða eins
og best verður á kosið.
Jón Gissurarson skrifaði
þessa vísu í gestabókina.
Ykkar haga höndin snjöll
hannar listaverkin flott.
Að breyta þessu húsi í höll
hygg ég vera býsna gott.,,
Húsið hentar mjög vel fyrir
smærri veislur, fundi og dans-
leiki.
Síðasta vetrardag 20. apríl er
að venju stefnt á hagyrðinga-
kvöld og gömlu dansa ball
í Ósbæ og gefst þá fleirum
kostur á að njóta gleði í þessu
glæsilega húsi. Þar ætla að spila
fyrir okkur Hermann og Elín
úr Skaga-firði.
Harmonikkuhátíð verður
síðan í Húnaveri 24. – 26. júní,
væntanlega með líku sniði
og verið hefur undanfarin
ár. Nokkrar myndir fylgja
sem Valur Haraldsson tók 5.
mars. Þar sjást heiðurshjónin
Helga og Kristján dansa
fyrsta dansinn eftir breytingu
hússins, harmonikkuleikarana
spila saman, einnig mynd úr
eldhúsi og sal.
Af þessu sést að mesta
púðrið í félagsstarfinu fór í
endurbætur Ósbæjar.
Kærar kveðjur frá
Húnvetningum
Magalega.
Kafað.
Baklega.
Einbýlishús til sölu
Einbýlishús að Fornósi 10 er til sölu.
Húsið er 202 m2 að meðtöldum bílskúr, fjögur svefnher-
bergi eru í húsinu, stór garður og heitur pottur.
Nánari upplýsingar í síma 849 6519 Steina
eða 771 9169 Sorin.
Aðalsteinn, Viðar og Jón.
Ingibjörg í eldhúsinu.