Feykir - 17.03.2011, Síða 4
4 Feykir 11/2011
Úttekt á Árskóla
Samkvæmt 38. grein laga
um grunnskóla frá 2008
gerir menntamálaráðu-
neytið reglulega úttekt á
grunnskólum landsins.
Skoðað er hvernig
grunnskólar framkvæma
ákvæði grunnskólalaganna
og reglugerða sem þeim
fylgja og aðalnámskrár.
Árskóli á Sauðárkróki var einn
þriggja skóla á Íslandi sem
menntamálaráðuneytið gerði
úttekt á að þessu sinni. Auk
þess að skoða skólann með
tilliti til laga og reglugerða, er
jafnframt lagt mat á ýmsa aðra
þætti skólastarfs eins og stefnu
og stjórnun, skipulag kennslu,
innra mat, námskröfur, fyrir-
komulag námsmats, sérfræði-
þjónustu sveitarfélagsins og
fleira.
Ráðuneytið fól tveimur
AÐSENT EFNI Bjarki Tryggvason skrifar tektaraðilar skólann tvisvar. Í
þessum heimsóknum var
húsnæði skoðað og fylgst með
vinnu nemenda. Þá voru tekin
viðtöl við fjölmarga aðila sem
að skólastarfinu koma. Í þeim
hópi voru fræðslunefnd og
fræðslustjóri, kennarar, deild-
arstjórar, annað starfsfólk en
kennarar, nemendaráð, stjórn
foreldrafélags o.fl.
Niðurstöður úttektarinnar
voru síðan birtar í skýrslu sem
hægt er að nálgast á heimasíðu
sveitarfélagsins, heimasíðu
skólans og heimasíðu ráðu-
neytisins. Í meginatriðum eru
niðurstöður þær að tekist hafi
á árangursríkan hátt að sam-
eina Barna- og Gagnfræða-
skólann á Sauðárkróki í eina
stofnun, Árskóla, og að í
Árskóla fari fram metnaðarfullt
og árangursríkt skólastarf. Í
samræmi við markmið skólans
þá er niðurstaðan einnig sú að
skólinn sé aðlaðandi og
hlýlegur vinnustaður, þar sem
nemendum líður vel og hafi þá
tilfinningu að skólinn sé
öruggur samastaður fyrir þá í
leik og starfi.
Í skýrslunni eru settar fram
10 tillögur til úrbóta. 9 af þeim
tillögum lúta að innra starfi
sem m.a. taka til aðlögunar
skólahalds að lögum frá 2008
og nýjum reglugerðum en
einnig að sjálfu skólastarfinu.
Verið er að vinna að úrbótum á
öllum þeim atriðum er varða
innra starf.
Veikasti hlekkurinn í skóla-
starfinu, að mati skýrsluhöf-
unda, er húsnæðismálin, sem
þeir telja óviðunandi. Þessi
ábending er ekki ný fyrir okkur
sem vinnum að skólamálum.
Úrbætur í húsnæðismálum
Árskóla hafa verið og eru eitt
brýnasta verkefnið í sveitar-
félaginu. Eitt af stefnumálum
þess meirihluta sem nú situr er
að byggja við Árskóla við
Skagfirðingabraut og sameina
allt skólahaldið þar. Á síðasta
kjörtímabili var unnið að
hönnun og áætlunum og fyrir
liggja teikningar að nýbyggingu
og endurgerð á eldri álmu
hússins. Á fundi byggðarráðs
þann 24. febrúar s.l. var síðan
samþykkt að skipa byggingar-
nefnd sem ætlað er að hafa
yfirumsjón með viðhaldi og
nýframkvæmdum í skólanum
á starfstíma hennar. Í nefndinni
skulu sitja þrír sveitarstjórnar-
fulltrúar, tveir frá meirihluta
og einn frá minnihluta. Auk
þeirra skulu sitja fundi nefnd-
arinnar, sveitarstjóri, fræðslu-
stjóri, sviðsstjóri umhverfis- og
tæknisviðs og fulltrúi Árskóla.
Þótt ekki liggi fyrir enn
nákvæm áætlun um fram-
kvæmdir við Árskóla er mikil-
vægt að ítreka að fullur vilji er
hjá meirihluta sveitarstjórnar
að leita allra leiða til að koma
framkvæmdum af stað sem
allra fyrst og búa þannig um
hnútana að því góða skólastarfi
sem nú þegar er unnið í Árskóla
sé í engu ógnað af ytri umgjörð
þess.
Bjarki Tryggvason
sérfróðum aðilum, þeim
Trausta Þorsteinssyni, lektor
við Háskólann á Akureyri og
Unnari Þór Böðvarssyni,
fyrrverandi skólastjóra, að
annast úttektina. Auk þess að
safna saman og fara yfir þau
skriflegu gögn sem til eru um
starfsemina, heimsóttu út-
Sönglög í Sæluviku
Jóhanna Guðrún og
Eyþór Ingi í Miðgarði
Stórsöngvararnir Jóhanna
Guðrún og Eyþór Ingi ásamt
fjölda skagfirskra söngvara
og hljóðfæraleikara munu
koma fram á Sönglögum í
Sæluviku sem fram fer í
Menningarhúsinu Miðgarði
föstudaginn 29. apríl nk.
-Það verður vel í lagt að
þessu sinni þar sem um 20
manns koma að herleg-
heitunum, segir Stefán Gísla-
son einn forsvarsmaður tón-
leikanna í samtali við Feyki.
-Sönglög í Sæluviku er
orðin árlegur viðburður og er
alltaf að festa betur rætur í
menningu héraðsins. Nú að
þessu sinni fáum við ein-
faldlega tvo fremstu dægur-
lagasöngvara landsins af
yngri kynslóðinni til að
syngja saman í fyrsta skipti
opinberlega og með okkar
frábæra tónlistarfólki, segir
Stefán.
Öllum þeim er á hlýddu,
er í fersku minni heimsókn
Eyþórs Inga í fyrra, en eigum
við von á svipaðri dagskrá?
-Ég held ég megi segja að í ár
verði hún af lífi og sál í
bókstaflegri merkingu, segir
Stefán leyndardómsfullur á
svip en gefur ekkert meira út
á það að svo stöddu.
En verður forsala? -Já það er
ákveðið og þeir sem vilja
tryggja sér miða geta það í
Ábæ, KS Varmahlíð og KS
Hofsósi og hefst forsalan
þann 25. mars, segir Stefán
að lokum.
Feykir mælir með því að
fólk taki daginn frá og upplifi
þennan magnaða viðburð.
Jóhanna Guðrún ásamt Evróvisjónfélögum vorið 2009, hér í menningarhúsi í Moskvu.
Skagaströnd
Háskóli unga fólksins
Háskóli unga fólksins, HUF,
hefur verið starfræktur á
vegum Háskóla Íslands frá
árinu 2004 og notið mikilla
vinsælda. Í tilefni aldar-
afmælis HÍ 2011 verður
starfsemi HUF með hátíðar-
sniði og skólinn á faralds-
fæti.
Þar ber hæst ferð Háskóla
unga fólksins með svokallaðri
Háskólalest sem heimsækir
níu áfangastaði á landinu í
samstarfi við Rannsóknarsetur
HÍ á landsbyggðinni, grunn-
skóla, sveitarfélög o.fl.
Frá og með 29. apríl til 28.
ágúst 2011 verða valin nám-
skeið HUF, ætluð börnum frá
12 – 16 ára, haldin víðs vegar
um landið undir formerkjum
Háskólalestarinnar. Til við-
bótar við námskeið fyrir unga
fólkið verður fjölþætt dagskrá
fyrir alla aldurshópa á hverjum
áfangastað, viðburðir, uppá-
komur, örfyrirlestrar og margt
fleira.
Háskólalestin verður stað-
sett á Skagaströnd einhvern
tímann á tímabilinu 23. – 27.
maí í vor.
Húnaþing vestra
Hefurðu smakkað kanínukjöt?
Gæludyr, gulrætur, Kalli
kanína, fjölgun – þetta er
bara sýnishorn af þeim
svörum sem komu við
spurningunni „Hvað er það
fyrsta sem þér dettur í hug
þegar kanínur eru nefndar?“
Þessi spurning og fleiri voru
lagðar í formi könnunar fyrir
viðskiptavini Kringlunnar
þann 5. mars s.l. en
markmið með könnunni var
að fá innsýn í viðhorf
almennings gagnvart
kanínukjöti.
Uppi eru hugmyndir um
stofnun fyrirtækis í Húnaþingi
vestra með það að markmiði
að rækta holdakanínur og selja
afurðir þeirra, s.s. kanínukjöt,
til veitingahúsa og neytenda.
Stefnt er að uppbyggingu
ræktunarstofns sem saman-
stendur af 250 læðum viður-
kenndrar ræktunartegundar,
en fyrstu 23 dýrin munu
væntanlega koma erlendis frá.
Að baki viðskiptahugmyndinni
stendur Birgit Kositzke, fædd í
Þýskalandi en búsett á
Hvammstanga.
Kanínukjöt er ljóst kjöt,
meyrt og hollt, enda fitusnautt,
og því auðmeltanlegt. Það er
mjög bragðgott, og hægt er að
matreiða það á margvíslegan
hátt. Sérstaklega fyrir þá sem
hugsa um heilsuna eða kjósa
létt fæði er kanínukjöt góður
valkostur á móti svína-, nauta-
og lambakjöti.
Niðurstöður ofannefndrar
könnunar munu hafa áhrif á
stærð fyrirtækisins. Til stendur
að safna fleiri svörum, m.a. í
gegnum heimasíðu, sem þegar
er í smíðum.