Feykir - 17.03.2011, Side 7
11/2011 Feykir 7
og er það ánægjulegt að geta öll
verið saman í búskapnum.
Sóknarfærin
eru til staðar
Á fundi sauðfjárbænda á
dögunum komu fulltrúar
þriggja búa í Skagafirði með
rauntölur úr sínum rekstri og
segir Atli ljóst að ef bændur
fái ekki talsvert betra verð
fyrir lömbin í haust þurfi
þeir að hugsa framhaldið
gaumgæfilega. „Þegar jafnvel
eldri bændur eru farnir að
ganga á eigin sjóði til þess að
láta enda ná saman þá hljóta
menn að hugsa sinn gang. Nú
þegar hefur verið mikil fækkun
í greininni en innleggjendum
á landinu fækkaði um 564 á
árunum 2000-2009. Við gerum
okkur grein fyrir að afurðastöðin
getur aldrei borgað hærra
verð en svo að þeir geti rekið
sína stöð líka. En miðað við
stöðuna á mörkuðum og gengi
krónunnar eins og það er þá
getur ekki orðið öllu hagstæðara
að flytja út kjöt en það er í dag.
Ef það er ekki hægt að borga
þokkalegt afurðaverð til bænda
þegar 40% af framleiðslunni
fer á erlendan markað á þessu
gengi, hvenær verður það
þá hægt? Sláturleyfishafar
eru bjartsýnir og vilja að við
aukum framleiðsluna um 20%,
segja markað fyrir því en við
getum bara ekki staðið undir
því endalaust að stækka búin
og auka vinnuna heimavið
samhliða því að þurfa að vinna
utan heimilis til að hafa efni á
að stækka við okkur. Við erum í
raun að borga með því sem ætti
að geta verið atvinnan okkar.“
Þrátt fyrir allt segist Atli hafa
trú á því að framtíðin geti verið
björt. „Mikill árangur hefur
náðst í sauðfjárrækt undanfarin
ár og menn að bæta afurðir sínar.
Flokkun lambanna hefur einnig
verið á uppleið og allt þetta skilar
betri afkomu búanna. Aukið
svigrúm er á heimsmarkaði
vegna samdráttar í framleiðslu
stærstu útflutningsþjóða sauð-
fjárafurða frá Ástralíu og
Nýja-Sjálandi. Það eru klárlega
sóknarfæri með hækkandi
heimsmarkaðsverði, auk þess
sem flest allir eru sammála um
að það stefni í matvælaskort
í heiminum. Þá ætti að vera
sóknarfæri fyrir okkur að
koma afurðunum á erlenda
markaði á góðum verðum og
einnig er svigrúm til hækkana
innanlands. Það þarf hinsvegar
eitthvað að fara að gerast fljótt
áður en við missum móðinn og
bregðum búi.“
Húnvetnska liðakeppnin
Glæsileg fimmgangskeppni
Stórglæsilegri fimmgangs-
keppni í Sparisjóðs-
liðakeppninni, lauk á
Hvammstanga s.l. föstu-
dagskvöld, með rosalegum
úrslitum í 1. flokki þar sem
5 stóðhestar öttu kappi.
Magnús Bragi Magnússon
á gæðingnum Vafa frá Ysta-
Mói sigraði með einkunnina
7,14, í öðru sæti varð Tryggvi
Björnsson á Kaftein frá
Kommu með einkunnina
7,07, en hann kom upp úr
B-úrslitum. Lið 3 sigraði
kvöldið með 39,5 stig.
Liðakeppnin stendur
þannig að lið 3 er enn efst
með 129,5 stig, í öðru sæti
er lið 1 með 113 stig, í þriðja
sæti er lið 2 með 103 stig og
Hestaumfjöllun Feykis Sjá fleiri hestafréttir á www.feykir.is/hestar
í fjórða sæti kemur lið 4 með
65,5 stig.
Úrslit urðu eftirfarandi í
A-flokki og 2. flokki og segir
fyrri talan um einkunn úr for-
keppni en sú seinni í úrslitum:
A – flokkur
1. Magnús Bragi Magnússon
og Vafi frá Ysta-Mó 6,67 / 7,14
2. Tryggvi Björnsson og Kafteinn
frá Kommu 6,47 / 7,07
3. Ísólfur Líndal Þórisson og
Kraftur frá Efri-Þverá 6,57 / 6,83
2. flokkur
1. Sveinn Brynjar Friðriksson og
Glaumur frá Varmalæk I 6,13 / 6.90
2. Patrik Snær Bjarnason og Sváfnir frá
Söguey 6,10 / 6,62
3. Pálmi Geir Ríkharðsson og Heimir
frá Sigmundarstöðum 6,10 / 6,33
Verðlaunahafar vígreifir eftir spennandi keppni. Mynd: Þytur
HROSSARÆKTARSAMBAND
SKAGFIRÐINGA
Geiri á Landi
í stjórn
Aðalfundur HSS var haldinn 8. mars s.l.
í anddyri reiðhallarinnar Svaðastaða á
Sauðárkróki.
Þær breytingar urðu á stjórn að
Sigurgeir Þorsteinsson á Varmalandi
tók sæti Eysteins Steingrímssonar sem
vék úr stjórn. Auk Sigurgeirs eru í stjórn
þeir Ingimar Ingimarsson formaður,
Eymundur Þórarinsson, Magnús B.
Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson.
Halli varð á rekstri HSS árið 2010 upp
á rúm 398 þúsund krónur og munar þar
lækkun vaxtatekna sem lækkuðu milli ára
um tæpar 475 þúsund krónur. HSS er nú
að hefja sitt 41. starfsár og telur nú um
180 félagsmenn. Á vegum sambandsins
munu þrír stóðhestar verða í boði fyrir
félagsmenn; þeir Galsi frá Sauðárkróki,
Sólon frá Skáney og Álmur frá Skjálg.
Frekari upplýsingar er á heimasíðu
HS, horse.is/hss
LÉTTFETI
Guðmundur hættir
sem formaður
Á stjórnarfundi Léttfeta fyrir skömmu
var ákveðið að aðalfundur félagsins
skyldi haldinn fimmtudaginn 31. mars
nk. kl. 20.30 í Tjarnarbæ.
Á fundinum tilkynnti Guðmundur
Sveinsson formaður félagsins að hann
gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi setu
á formannsstóli í Léttfeta. Guðmundur
hefur starfað sem formaður félagsins um
árabil og telur komið gott að sinni.
Áhugasamir formannskandídatar ættu
að dusta rykið af framtakshugsjónum sín-
um og mæta á aðalfundinn vel undirbúnir.
GRUNNSKÓLAMÓTIÐ
Þriðja mótið á
Sauðárkróki
20. mars
Sunnudaginn 20. mars nk. verður
Grunnskólamót hestamannafélaganna
á Norðurlandi vestra haldið í
reiðhöllinni Svaðastöðum á
Sauðárkróki og hefst mótið klukkan
13:00.
Keppt verður í:
1. – 3. bekkur: fegurðarreið
4. – 7. bekkur: tví- eða þrígangur (sjá grein nr.
6. í reglum)
8. – 10. bekkur: fjórgangur
8. – 10. bekkur: skeið
Eftir tvær keppnir leiðir Húnavallaskóli
með 29 stig.
Áskorendamót Riddara Norðursins
Narfastaðir unnu Áskorendamótið
Vel heppnað Áskorendamót
Riddara Norðursins fór
fram s.l. laugardagskvöld
í reiðhöllinni Svaðastöðum
á Sauðárkróki þar sem
fimm úrvalslið mættu og
reyndu með sér í hörku
keppni. Úrslit í annað sæti
fjórgangs náðust fram með
keppni í krók.
Riddari Friðrik Steinsson
og Hríshrímari Elvar Logi
Friðriksson stóðu jafnir í
öðru til þriðja sæti í fjórgangi
með einkunnina 6.53. Hluti
áhorfenda vildu að þeir reyndu
með sér í söng til að knýja fram
úrslit en Riddarar harðneituðu
þeirri bón og beittu króki á móti
bragði og settu á keppni í krók.
Það er styst frá því að segja að
Riddari Friðrik reyndist sterkari
í þeirri viðureign og hlaut því
annað sætið að launum.
Það var lið Narfastaða sem
fór heim með hinn eftirsótta
Riddarabikar.
Hinn ómþýði Riddarakór
steig á stokk í þau skipti er þótti
henta og söng hann afspyrnu
fallega og var óhemju góður
að sögn eins kórfélaga.
Riddarakórinn að störfum. Mynd: riddarar.123.is
SKAGFIRSKA MÓTARÖÐIN
Silvía Sigurbjörns-
dóttir sigraði
kennara sína
Spennandi og skemmtilegt
5 gangsmót fór fram í
Skagfirsku mótaröðinni
í liðinni viku. Keppt var
í 1. og 2. flokki og varð
Húnvetningurinn Greta B.
Karlsdóttir sigurvegari í 2.
flokki á Kátínu frá Efri-
Fitjum. Í B-úrslitum í 1. flokki
reið Ísólfur Líndal Þórisson á
Ræl frá Gauksmýri sig upp í
A-úrslitin.
Harður slagur var í A-úr-
slitum í 1. flokki, en svo
skemmtilega vildi til að þar
voru tveir kennarar við Hóla-
skóla og þrír nemendur af reið-
kennarabraut Hólaskóla sem
öttu kappi. Þeirri rimmu lauk
með því að nemandinn Silvía
Sigurbjörnsdóttir á Þresti frá
Hólum hafði sigur á kennurum
sínum með glæsisýningu.
Úrslit í 2. flokki:
1. Greta B Karlsdóttir
– Kátína frá -Fitjum 5,57
2. Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir
– Lyfting frá Hjaltastöðum 5,43
3. Herdís Rútsdóttir
– Vornótt frá Ásgeirsbrekku 4,43
4. Ásdís Ósk Elvarsdóttir
– Hrappur frá Sauðárkróki 3,80
A-úrslit 1. flokkur:
1. Silvía Sigurbjörnsdóttir
– Þröstur frá Hólum 6,80
2. Mette Mannseth
– Hnokki frá Þúfum 6,73
3. Eyrún Ýr Pálsdóttir
– Hreimur frá Flugumýri 6,67
4. Ísólfur Líndal Þórisson
– Ræll frá Gauksmýri 6,43