Feykir - 25.08.2011, Side 10
10 Feykir 31/2011
Sérfræðikomur
í september
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Orri Ingþórsson
kvensjúkdómalæknir 1. og 2. sept.
Sigurður Albertsson
skurðlæknir 12. og 13. sept.
Haraldur Hauksson
alm/æðaskurðlæknir 26. og 27. sept.
Tímapantanir í síma 455 4022.
www.hskrokur.is
Bænda- og landbúnaðarsýning í Skagafirði
Alsælir með
Sveitasælu
Að Háholti í Skagafirði er rekið meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu og sér
Brúarskóli um kennslu þar. Kennari er með allt að 5 nemendur á unglingastigi hverju sinni.
Mikið samstarf er við meðferðarheimilið og fer hluti vinnunnar fram inn á heimilinu.
Allt nám er einstaklingsmiðað. Kennari verður að vera búsettur nálægt starfstöð.
Óskað er eftir kennara sem:
-hefur uppeldisfræði-, kennara-, tómstunda- eða iðnmenntun
-hefur reynslu af því að vinna með börn og unglinga í alvarlegum vanda
-hefur þekkingu á því að takast á við erfiða hegðun
-sjálfstæður í vinnu
-er öflugur og sveigjanlegur í samstarfi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björk Jónsdóttir, skólastjóri, bjork.jonsdottir@reykjavik.is,
sími 520 6000 og 664 8440 og Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður Háholti, s:453-8300
Skriflegar umsóknir sendist í Brúarskóla, Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 2. september 2011.
Laun samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Kennari óskast að Brúarskóla á starfstöð að
Skóla- og meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði
Barnaverndarstofa
Bændahátíðin og
landbúnaðarsýningin
Sveitasæla fór fram í
Reiðhöllinni Svaðastöðum
um síðustu helgi. „Hátíðin
tókst vonum framar og
voru allir mjög ánægðir.“
sagði Eyþór Jónasson,
framkvæmdarstjóri Flugu
hf, sem sér um rekstur
reiðhallarinnar.
Margir lögðu leið sína á hátíð-
ina og gaf þar að líta fjölmargt
fróðlegt og skemmtilegt.
Mun fleiri komu
en von var á
Að sögn Eyþórs lögðu um 2500
manns leið sína á Sveitasælu og
eru það þúsund fleiri en í fyrra.
„Það kom talsvert fleira fólk
en við áttum von á. Allir voru
geysilega ánægðir með daginn,
bæði gestir og sýnendur.“
Eyþór bætti við að talsvert
meiri sala hefði verið nú en
í fyrra og virðist allt vera að
glæðast í þeim efnum.
Á bændahátíðinni var
margt að skoða og þar var
meðal annars sveitamarkaður,
leiktæki fyrir börn, húsdýra-
garður, vélasýningar og véla-
sala, kynningar á fyrirtækjum
tengdum landbúnaði og margt
fleira.
Dýrin stór og smá
Í húsdýragarðinum mátti sjá
alls konar dýr, svo sem geitur,
minka, kanínur, svín, kýr,
kindur, hunda og ketti. Einnig
boðið upp á ýmsar sýningar
tengdar dýrunum, eins og
hrútasýningu, kálfasýningu,
smalahundasýningar og svo
var HRFÍ með hundasýningu.
Einnig var hægt að sjá hvernig
klaufskurður á kúm fer fram
og skeifnasmíði.
Fornar vinnsluaðferðir
Gestir hátíðarinnar fengu að
sjá ýmis forn handbrögð í
verki. Þar má nefna mjaltir og
mjólkurvinnslu þar sem skyr
var unnið á gamla mátann og
einnig smjörstrokkun. Sýndur
var rúningur og ullarvinnsla
þar sem ullarband var spunnið
með rokk og sömuleiðis var
sýnt hvernig unnið var úr
geitafiðu, eða geitahári.
Frá morgni til kvölds
Framan við Reiðhöllina var
hægt að skoða fjölmargar
vinnuvélar. Þar fór fram hæfi-
leikakeppni gröfumannsins og
keppni í dráttarvélaakstri. Þétt
dagskrá bændahátíðarinnar
stóð frá morgni til kvölds og var
grillveisla um kvöldið þar sem
skagfirskir bændur buðu upp
á gómsætt lambakjöt. Mikið
fjör var á kvöldvökunni þar
sem keppt var í bændafitness
og ýmsir skagfirskir skemmti-
kraftar stigu á stokk.