Feykir - 25.08.2011, Side 11
31/2011 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Sæunn Vigdís og Brynjar Már kokka
Fjársjóðssúpan
mikla
2 dl. kókosmjöl sett í pott ásamt
4 dl. af vatni, soðið í 5 mín
og hrært stöðugt í á meðan.
Leyfið aðeins að kólna, sett svo í
blandara og vinnið vel. Hellt svo
í pott og hráefni sett út í (hægt er
að sigta kókosmjölið frá en betra
er að hafa það með).
Grænmeti steikt lauslega á
pönnu áður en það er sett í
súpuna.
Í eftirrétt
Sæluostur úr sveitinni, fersk-
osturinn Kjúka er kjörinn
eftirréttur. Hægt er að fá með
pipar, hvítlauk og basil, með
sólþurrkuðum tómötum og
oregano, með graslauk og svo
hreinan.
Í uppáhaldi hjá mér þessa
stundina er hrein Kjúka og hella
yfir hana chilli sultu og hunang
Fjársjóðssúpa
*Heimatilbúið kókosvatn
2 gerlausir grænmetisteningar
1 tsk. turmeric
5 cm. ferskri engiferrót
2 fersk chilli (verður mun
sterkari með fræjum)
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 búnt brokkolí
1 haus blómkál
5 gulrætur
2 laukar
½ bakki af sveppum
Maldon salt og pipar að vild
1 tsk. rjómaostur eða sýrður
rjómi bætt út í þegar súpan er
komin á diskinn.
Heilir og sælir lesendur góðir.
Nú loks þegar langt er liðið á júlímánuð
Í síðasta þætti birtist vísa efitr Stefán
Vagnsson sem ort var um Gunnar
Bjarnason. Hef nú fengið þær upplýsignar
að hún hafði ekki verið rétt með farin og á
fyrsta lína hennar að vera þannig: Talaði
fátt um tölt og skeið.
Gaman að byrja þáttinn að þessu
sinni með ágætri vísu eftir okkar góða
vin og húnvetning Pétur læknir, frá
Höllustöðum. Veit reyndar ekki við
hvern hann talar þar.
Merkan sér hann markar bás
mjög úr andans sáldum.
Braghendunna burðarás
ber af öðrum skáldum.
Margir vísna vinir kannast við kveðskap
eftir Brynjólf í Núpstúni. Held að þessi
snjalla hringhenda sé eftir hann.
Geðið hlýna glöggt ég finn
gáska sýnir Blesi.
Nóg skal vínið, vinur minn
verða í Svínárnesi.
Önnur hringhenda kemur hér eftir
Brynjólf.
Ef að fjandans ellin köld
að þér vanda setur.
Súptu á landa sérhvert kvöld
svo þér standi betur.
Jón Sigurðsson bóndi í Skollagróf var
andans maður engu síður en Brynjólfur.
Þessi fallega vísa mun vera eftir hann.
Hljóðar stundir heilla mig.
Hér má reynslan sanna,
síst af öllu svíkur þig,
seiðmagn öræfanna.
Hef trúlega birt áður í þessum þáttum
þessa kunnu vísu Jóns. Samt gaman að
rifja hana upp nú.
Hægt að ósi feigðar flýt
fátt ég um það skrifa.
Meðan ég get mokað skít
mun ég glaður lifa.
Svo kemur fyrir flestum að ævin fer
að styttast í annan endan. Guðlaugur
Einarsson kenndur við Sauðholt mun
hafa ort þessa.
Ævi hallar ört ég finn
út er lít um skjáinn.
Hérna bak við bæinn minn
brýnir einhver ljáinn.
Hreiðar Eyjólfsson Geirdal mun hafa ort
næstu vísu.
Sólin vorsins sæludraum
sveipar logarúnum.
Lætur gullin geislastraum
guða á fjallabrúnu.
Vorið kallar eygló enn
yfir fjallaskörðin.
Geislafallið græðir senn
grund og vallarbörðin.
Alltof fljótt fer að hausta og Hreiðar
yrkir.
Vísnaþáttur 552
Ægir bólginn byltir sér
brims í ólgudýjum.
Himinn fólginn allur er
yfir kólguskýjum.
Freistandi er að halda áfram með
haustvísur. Þá gaman að rifja upp þessar
kunnu gömlu góðu vísur Steingríms
Thorsteinssonar.
Vor er indælt ég það veit
þá ástar kveður raustin.
En ekkert fegra á fold ég leit
en fagurt kvöld á haustin.
Setjumst undir vænan við
von skal hugann gleðja.
Heyrum sætan svanaklið
sumarið er að kveðja.
Karl Friðriksson sem var kunnur
vegaverksstjóri á sinni tíð mun eftir því
sem ég best veit hafa ort þessa.
Haustsins nótt með hljóða þrá
harmar vorsins daga.
Leggst hún yfir land og sjá
líkt og raunasaga.
Magnús Jónsson frá Skógi yrkti svo
laglega hringhendu.
Grána rætur, blæs í ból
bítur nætur – gjóla.
Litlir fætur leita í skjól
litverp grætur fjóla.
Einn af þeim sem orti fallega um veðurfar
og árstíðir var Tryggvi Emilsson. Þessar
munu vera eftir hann.
Skýjaþykkni skyggir á
að skýni sól á hnjúkinn.
Þó var áðan geisli að gá
gegnum rósadúkinn.
Þannig er um þennan yl
þegar´ann hlær sem kátast,
og þykist vera að þrífa til
þá er hann bara að látast.
Í síðasta þætti birtust ágætar vísur
sem ortar voru í námunda við
Herðubreiðarlindir. Eftir þann þátt
rifjaðist upp þessi sem mig minnir að sé
eftir Theodór frá Bjarmalandi.
Ársól vermir aldnar brár,
eldi sveipast tindar.
Himinn faðmar heiður blár
Herðubreiðarlindar.
Eins og stundum áður á þessum
tímamótum langar mig til að leita til
lesenda með efni fyrir þáttinn sem
tengist hausttímanum, göngum og
réttum. Endilega sendið mér slíkar vísur
allavega, sama þótt þær séu gamlar.
Kannski of mikil svartsýni að enda með
þessa sönnu vísu Höllu Einarsdóttur en
geri það samt.
Þegar lýkur lífsins skák
laus frá öllum meinum.
Tek ég bleikan ferðafák
og flyt á honum einum.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Verið þar með
sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Mataruppskriftir vikunnar eru í boði Sæunnar Vigdísar
Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa og ostagerðakonu og Brynjars
Más Eðvaldssonar skipstjóri á Neista.
Sæunn er önnur Sæluosta-kvenna og mikill matgæðingur. Þau
hjón búa á Laugarbakka í Miðfirði. Þau Sæunn og Brynjar skora á
Lauru Ann Howser og munu uppskriftir hennar birtast í Feyki eftir
þrjár vikur.
Ástæða þessa nafns er að upprunalega varð hún til við leit hráefna
í eldhúsinu. Eftir grams í ísskáp og eldhússkápum varð útkoman þessi.
Hún er í miklu uppáhaldi því gott er að frysta hana og jafnvel bæta
fiski út í hana.
(á sitthvorn ostinn). Borðað með
kexi og döðlum,fíkjum og eplum.
Dásamlegur eftirréttur.
Verði ykkur að góðu!
- - - - -
Leiðrétting!
Þau leiðu mistök urðu í
matarþætti í síðasta Feyki
að aukatexti slæddist inn í
lýsingu á aðferð við salatgerð.
Rétt er þetta svona:
Salat sem er ómissandi með
liltum kjötbollum
200g hvítkál
1 epli
safi úr hálfri appelsínu eða
hreinn appelsínusafi
úr fernu.
Skera niður kálið og eplin
blanda saman og hella slatta
af safa yfir.