Feykir - 07.06.2012, Blaðsíða 1
fff
BLS. 5
BLS. 6-7
Sumarsýning Heimilis-
iðnaðarsafnsins á Blönduósi
Fínlegir og
fagrir bútar
úr fortíð
BLS. 10
Körfuboltakonan Helga
Einarsdóttir er íþróttagarpur
Væri til í
vítakeppni við
Alla Munda
Hannes Bjarnason og
baráttan um Bessastaði
Fylgdi minni
réttlætiskennd
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
22
TBL
7. júní 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
BílamálunRéttingar
Tjónaskoðun
Bílamálun & réttingar
*Bílamálun *Réttingar *Tjónaskoðun
Borgarröst 5, Sauðárkrókur - S: 453 6760 / 698 4342
Fax: 453 6761 - Netfang: malverk550@simnet.is
Bessastaðahjónin á hringferð um landið
Ætlar að tryggja að vilji fólks-
ins ráði um inngöngu í ESB
Forsetahjónin Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Moussaieff gerðu
stans í Skagafirði á ferð sinni um
landið sl. mánudagskvöld og héldu
fund í Ljósheimum. Heimamenn
fjölmenntu á fundinn og hlýddu á
málflutning forsetans og hugleiðingar
hans um framboð sitt til embættisins
sem hann sækist eftir að gegna
áfram næstu fjögur árin.
Ólafur flutti ræðu og fjallaði um
ýmis mál er varða forsetaembættið og
stjórnartíð hans þau sextán ár sem
hann hefur gegnt því. Talaði hann um
þá tíma er eldar loguðu við Alþingis-
húsið þegar óvíst var í upphafi dags
hvernig honum lyki að kveldi.
Bornar voru fram fyrirspurnir sem
hann svaraði skilmerkilega, m.a.
hvort nauðsynlegt væri að skipta um
stjórnarskrá lýðveldisins.
Svaraði hann því til að ekki þyrfti
þess endilega en vel mætti breyta
þeirri sem nú er við lýði sem hefði
staðið af sér þá eldraun sem kom í
kjölfar hrunsins. Benti hann á að
norska stjórnarskráin myndi ekki
þolað þá raun. Íslenska stjórnarskráin
hefur tekið breytingum í gegnum
tíðina og enn er hægt að bæta hana og
vildi Ólafur helst sjá breytingar í
sambandi við dómskerfið. Þær
myndu styrkja það og bæta.
Þá var Ólafur spurður að því
hvernig hann hygðist beita áhrifum
sínum varðandi umsókn Íslands í
ESB. Þar vildi hann meina að hann
teldi það eðlilegt að hann segði sína
skoðun á því máli svo þjóðin velktist
ekki í vafa um hvað forsetanum
finnist um það mál. Þá ætlaði hann
sér að tryggja það að vilji fólksins í
landinu fengi að ráða. Benti hann á að
þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB yrði
einungis ráðgefandi fyrir Alþingi en
ekki bindandi og þannig ræður
ríkisstjórnin hvort gengið verði til
samninga hvernig sem þjóðar-
atkvæðagreiðsla færi. Ætlaði hann að
beita málsskotsréttinum færi Alþingi
ekki að vilja fólksins í landinu. /PF
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
BenQ
RÉTTI SKJÁRINN FYRIR ÞIG
Glæsilegir FULL HD skjáir frá BenQ
með 1920x1080 upplausn
ásamt SensEye tækni sem tryggir
ótrúlega skerpu og litadýpt.