Feykir - 07.06.2012, Side 4
4 Feykir 22/2012
Smá í Feyki ::
Síminn er 455 7171
smá
AUGLÝSINGAR
Kvígur til sölu
Til sölu kvígur. Burðartími júní – júlí.
Upplýsingar í síma 862 5653. - Halldór
RAV 4 til sölu
Eldhress 3ja dyra RAV4 er til sölu. Bíllinn er árgerð 2004, ekinn 66
þúsund kílómetra og afar vel með farinn.
Upplýsingar í síma 893 5417. - Brynjar
Hvolpar til sölu
Gullfallegir, hreinræktaðir Labradorhvolpar til sölu.
Upplýsingar í síma 892-1803 eða á
helga1967@hotmail.com
Sigursagan
Ljóða-, smásögu- og
ljósmyndakeppni Húss frítímans
Hús frítímans efndi til ljóða-, smásögu- og
ljósmyndakeppni fyrir Sæluviku þar sem
þema keppninnar var að leyfa sköpunar-
gleði Skagfirðinga að njóta sín í máli og
myndum.
Dæmt var eftir því hvernig höfundar náðu
að fanga skagfirska sælu í verkum sínum.
Feykir birtir verðlaunaverkin og nú er
komið að smásögunni „Sveitasæla“ eftir
Eddu Vilhelmsdóttir en fyrir hana fékk hún
fyrstu verðlaun. /PF
EDDA VILHELMSDÓTTIR
Sveitasæla
Dagurinn var hlýr, glampandi sól og sunnan-
þeyr.
Ég horfi á grasið bylgjast í golunni, nýt
ilmsins af nýslegni og þurrkaðri töðunni.
Ýti tánni í nýsleginn skárann og velti
honum við, skelkaður ánamaðkur hraðar sér
niður undir yfirborðið.
Hrokafull könguló skrönglast á milli stráa,
upphafin á sínum ódauðleika. Slapp við ljáinn.
Sólin lækkar á lofti, skuggar líða um
brekkurnar og teygja langa dökka fingur út
með ásnum.
Dúnmjúk grá slæða, liðast um fjalltoppana,
smá þéttist og verður að feimnum dansandi
hnoðrum sem stækka og hoppa, létt fram
og til baka.Vita að þeim er óhætt fram að
sólarupprás.
Niður vatnanna virðist hækka í kyrrðinni,
færist nær og nær, uns ég hverf inn í hann,
samsamast honum.
Ég finn ekki þyngdarlögmálið, verð sviflétt
og finn ólýsanlega vellíðan og birtan er engu
lík.
Í fjarlægð vellur spóinn hvellt, ég kem snöggt
inn í veruleikann, finn vonbrigði og söknuð.
Ég hef skynjað eitthvað ólýsanlegt, eitthvað
himneskt.
Var þetta brot af eilífðinni?
Já þetta var hún. Nú kvíði ég engu.
Edda Vilhelmsdóttir (t.v.) tekur við verðlaunum fyrir bestu smásöguna.
Fyrsta ferðin
ógleymanleg
Gengið um Austurdal
Gísli Rúnar hefur boðið upp
á eina til tvær ferðir á sumri
frá árinu 2005 en áhugann
segir hann hafi kviknað um
tveimur árum áður. „Ég fór
sem leiðsögumaður fyrir
Ferðafélag Skagfirðinga niður
dalinn sumarið 2003 og upp úr
kviknaði áhugi á að bjóða upp á
svipaðar ferðir.“
Gísli Rúnar sem er borinn
og barnfæddur Skagfirðingur,
frá Frostastöðum í Blönduhlíð,
fór í fyrsta sinn í Austurdalinn
haustið 1983. Hann rifjar upp
þegar þeim Stefáni Hrólfssyni á
Keldulandi kom saman um að
hann myndi fara með þangað
í göngur. „Ég var við fjárdrátt
í Silfrastaðarétt á mánudegi,
hafði verið í göngum í
Silfrastaðaafrétt þá um helgina.
Síðan rákum við safnið áleiðis
út Blönduhlíð og fyrir neðan
Sunnuhvol mættum við þeim
Sigurði Hansen og Þórólfi á
Hjaltastöðum, ríðandi með
hóp af hrossum. Þeir voru á leið
í Austurdalsgöngur og ég sneri
við og slóst í för með þeim,“
segir Gísli Rúnar en þá segir
hann að gangnatilhögun hafi
verið nokkuð önnur en í dag
því Hildarsel var ekki komið til
sögunnar. „Þennan dag riðum
við í Merkigil og gistum þar.
Daginn eftir riðum við fram
í Grána í glampandi sólskini
og sterkjuhita. Sá dagur er
mér ógleymanlegur og ætli
megi ekki segja að þá hafi ég
kolfallið fyrir dalnum,“ rifjar
hann upp. Gísli Rúnar segir
erfitt að benda á hvað það er
nákvæmlega sem gerir dalinn
svona einstakan en í hans huga
er það ekkert eitt atriði, heldur
spila ýmsir þættir þar inn í.
„Náttúrufegurðin er mikil, auk
þess ósnortin og metur fólk það
mikils. Þá er einstök veðursæld
í dalnum. Fyrrum var talsverð
byggð í Austurdal og margar
sögur til frá þeim tíma, bæði
af fólki og draugum. Sjálfsagt
er það einhver blanda af þessu
öllu, ásamt einhverju öðru, sem
gerir dalinn svona sérstakan og
upplifunina jafn áhrifamikla og
raun ber vitni.“
Fleiri og öðruvísi
gönguferðir
Gísli Rúnar ætlar að bjóða upp
á fimm gönguferðir í sumar, í
samstarfi við ferðaþjónustuna
á Bakkaflöt, með ólíku sniði
og áherslum. „Hingað til hefur
þetta verið tómstundagaman
hjá mér en í sumar ætla ég
að prófa að bjóða upp á fleiri
ferðir og öðruvísi,“ segir hann.
Tvær helgarferðir verða um
Austurdalinn og verður önnur
þeirra fjölskylduferð um
verslunarmannahelgina en þar
verða gengnar stuttar dagleiðir
um gott gönguland. Ein ferð
verður farin úr Hjaltadal í
Blönduhlíð og gist í tjöldum á
Austurdalurinn í Skagafirði er ósnortin náttúruperla
úr alfaraleið. Gísli Rúnar Konráðsson hefur boðið upp
á gönguferðir niður dalinn undanfarin ár en þetta árið
segist hann ætla að bjóða upp á fleiri ferðir og öðruvísi.
Tjaldeyrum á Vindárdal.
Dagana 23. - 27. júlí verða
síðan sérstakir göngudagar
sem hann kallar „Gönguvika -
gleðibragur og gamlar sagnir“.
Þá verða farnar dagsferðir vítt
og breitt um Skagafjörð alla
dagana, t.d. með Bólugili og
Kotagili og upp í Tryppaskál en
samkvæmt Gísla Rúnari verður
hægt er að velja einn dag eða
fleiri eftir áhuga hvers og eins.
Síðasta ferð sumarsins verður
svo farin í ágúst úr Eyjafirði í
Skagafjörð og verður þá farin
nokkuð óhefðbundin leið að
hluta til. „Gengið verður frá
Hólsgerði upp í Bergland fyrsta
daginn og næsta dag niður
á Fossárdal og í Hildarsel.
Síðasta daginn er haldið niður
úr og endað á Bakkaflöt,“ segir
Gísli Rúnar. Aðspurður um
hvort gönguferðirnar henti
öllum svarar hann að flestar
þeirra geri það en þó sé betra
að vera sæmilega á sig kominn
í ferðinni yfir Nýjabæjarfjallið,
þ.e. úr Eyjafirði í Austurdal.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Bakkaflatar, bakkaflot.
com undir Afþreying en hægt er
að skrá sig í ferðirnar í netfanginu
g.konradsson@gmail.com og eftir
28. júní í síma 893 6634. Einnig
er hægt að hafa samband við
Bakkaflöt í símum 453 8245
og 453 8099.
/BÞ
Gísli Rúnar Konráðsson fararstjóri og göngugarpur.
Gengið verður um fagra dali.