Feykir - 28.06.2012, Síða 6
6 Feykir 25/2012
„Hópurinn hittist einu sinni
í viku með það að markmiði
að fylgja eftir viðburðum sem
þátttakendur hafa áhuga á að
taka þátt í eða framkvæma.
Þátttakendur eru hvattir til að
sækja viðburðina og aðstoða
sjálfboðaliðar við skipulagn-
ingu og framkvæmd,“ útskýrir
Auðbjörg og bætir við að
fundirnir stuðla að auknum
og innihaldsríkari samskiptum
þátttakenda og styrkir félags-
færni þeirra sem þá sækja.
Síðast liðin ár hefur hópurinn
notið góðs af styrkjum frá
ýmsum félagasamtökum og
fyrirtækjum sem hefur gert
þeim mögulegt að fara í lengri
og styttri ferðir án þess að
þurfa sjálf að standa straum af
kostnaði við að hafa með sér
aðstoðarfólk.
Auðbjörg segir Kaupfélag
Skagfirðinga hafa skipt sköpum
fyrir starfsemi hópsins og
færir miklar þakkir fyrir þá
styrki sem það hefur gefið til
tómstunda fyrir fatlað fólk.
Hópurinn hefur notið góðs af
þessum styrkjum bæði beint
frá Kaupfélagi Skagfirðinga og
í gegnum ferðasjóð fatlaðra í
Skagafirði, sem var stofnaður
árið 2007. „Sjóðnum hefur
verið haldið við þrátt fyrir
þrengingar í þjóðfélaginu
og er það von okkar að svo
verði áfram því hann hefur
gert hópnum kleift að ferðast
til útlanda, auk minni ferða
innanlands. Farið var í ferð til
Mývatns fyrir jólin fyrir styrk úr
sjóðnum,“ segir hún. Þá færir
Tómstundahópurinn einnig
Sveitarfélaginu Skagafirði
þakkir fyrir gera því fólki sem
býr yfir sérþekkingu, og starfar
hjá sveitarfélaginu, kleift að
fara með þegar hópurinn fer á
flakk en samkvæmt Auðbjörgu
hefur það reynst afskaplega vel.
Hér koma nokkrar færslur úr
ferðadagbók Tómstundahóps
Rauða krossins.
Usli og fjaðrafok
Aðventuferðin til Mývatns var
farin þann 19. nóvember, áður
en allt fór á fullt fyrir jólin.
Gist var á Sel Hótel Mývatn í
eina nótt. Þegar við komum á
hótelið og vorum að týna inn
farangurinn, þá var allt í einu
kominn jólasveinn í hópinn
og olli hann miklum usla og
fjaðrafoki á svæðinu.
Um kvöldið var risa-
hlaðborð á sérstyrktum borð-
um til að bera þungann af
kræsingunum, þetta kvöld
fór enginn svangur í rekkju.
Um morguninn örlaði varla á
svengd og hungur var víðsfjarri.
Eftir morgunhressingu var
raðað í langferðabílinn og ekið
hringinn í kringum Mývatn
með smá stoppi í Dimmu-
borgum, þar sáust engir jóla-
sveinar þrátt fyrir gott skyggni,
kannski of langt til jóla og
þeir flestir ennþá heima í
helli sínum. Á leiðinni heim
var farið í gegnum Dalvík,
Ólafsfjörð, Siglufjörð og skoð-
aðar jólaskreytingar.
Blíðviðri, keyrsla og
snæðingur
Þann 1. júní síðastliðinn lagði
Tómstundahópurinn upp í
sumarferð. Ferðin lá suður
yfir heiðar, á suður undir-
lendið. Sólin kom upp með
meðfylgjandi hita og gaf
forsmekkinn af því sem beið
hópsins yfir helgina. Fyrsti
dagur ferðarinnar einkenndist
af áframhaldandi blíðviðri,
keyrslu og snæðingi. Fyrsta
stopp var tekið við Egilsgarð
í Borganesi þar sem sá gamli
góði siður var tekinn að borða
heimalagað nesti. Við verðum
reyndar að viðurkenna að
Svalinn fékk að sigra vatnið
að þessu sinni. Leiðin lá svo á
Selfoss þar sem fallega uppábúin
rúm biðu okkar í aðgengileg-
um og rúmgóðum herbergjum.
Eina vandamál ferðarinnar
kom upp strax þegar verið var
að koma ferðatöskunum, og
öðru dóti sem við þurfum á
að halda, inn á hótelið. Þegar
persónulyftarinn rúllaði inn
á hótelið þá uppgötvaðist að
seglið hefði gleymst. Lyftarinn
gerir lítið gagn án seglsins
þar sem hann er notaður til
að aðstoða þá sem þurfa að
komast úr hjólastól sínum yfir í
rúm eða aðra stóla og myndar
sæti fyrir þann sem þarf að
hefja á loft. Næturvörður Hótel
Selfoss tók sig þá til og hringdi
stanslaust fyrir okkur þar til
hann fann segl sem við gátum
nálgast. Hann er með sama
mottó og Tómstundahópur
Rauða kross Íslands: Það er allt
hægt, hið ómögulega tekur bara
örlítið lengri tíma og það eru
enginn vandamál, bara lausnir.
Á meðan að næturvörður
Hótel Selfoss var að finna lausn
á vandamálinu okkar kom
hópurinn sér fyrir á fyrstu hæð
hótelsins og rölti svo í mat þar
sem beið þeirra dýrindis súpa
og kjúklingabringur. Þar sem
hópurinn var frekar seint á ferð,
og matur ekki snæddur fyrr en
kl. 20:30, þá lá leiðinn í rúmið
fljótlega eftir að kvöldverður
hafði verið snæddur.
Kynjóttar kerlingar,
ljúfir tónar og
fataleppar
Laugardagurinn 2. júní var
tekin passlega snemma. Eftir
glæsilegt morgunverðarhlað-
borð, sem bar engin ummerki
af niðurskurði síðustu ára,
rölti hópurinn út í rútu þar
sem leiðinn lá að Sólheimum
í Grímsnesi. Þegar mætt var
í rútuna var veðurblíðan svo
mikil að miðstöðin í rútunni var
stillt næstum á alkul. Bílstjórinn
okkar, Steinn Sigurðsson, var
beðin um að íhuga þessháttar
búnað í bílinn, því enn var
mjög heitt í bílnum þrátt fyrir
að topplúgur bifreiðarinnar
væru einnig opnar.
Á Sólheimum var opnunar-
hátíð Menningarveislu Sól-
heima og verður hún í gangi í
allt sumar. Áður en opnunar-
hátíðin hófst keyrðum við um
svæðið eins og aðstæður leyfðu
og skoðuðum okkur um.
Næst á dagskrá var að næra
hópinn á dýrindis steiktum
fiski, ásamt meðlæti. Eftir
matinn rölti hópurinn um
svæðið með öðrum gestum
hátíðarinnar. Þá skoðuðum við
sýningarnar: Svona gerum við
og Svona erum við, auk þess
að hlýða á tónlistarflutning í
VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir
Ferðasaga Tómstundahóps Rauða kross Íslands
Skagafjarðardeild Rauða krossins starfrækir verkefni sem kallast Tómstundahópur Rauða kross
Íslands. Markmið hans er að fjölga tómstunda tækifærum fyrir fatlað fólk en hópurinn fór í tvær
ferðir á starfsárinu 2011 til 2012, annars vegar aðventuferð til Mývatns og hins vegar sumarferð
á suðurlandið. Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir, sjálfboðaliði hjá RKÍ, sagði Feyki frá starfsemi
Tómstundahópsins og deilir ferðasögu hans með lesendum.
Góðar stundir á
ferð um landið