Feykir - 28.06.2012, Blaðsíða 9
25/2012 Feykir 9
Ekki aftur snúið
( ÁSKORENDAPENNINN ) berglindth@feykir.is
Svanhildur Guðmundsdóttir skrifar frá Sauðárkróki
Upplifunin endurraðar tilverunni
Ólýsanleg vellíðunartil-
finning greip um sig inni í
mér í fyrir nokkrum vikum
þegar ég, sem stödd var
í geymslunni minni í allt
öðrum erindagjörðum,
kom auga á svörtu
talnalása flugtöskuna...
töskuna, sem ég í eina
tíð skildi aldrei við mig,
töskuna sem ég ýtti aftur
upp í hillu með þjósti
fyrir nokkrum vikum,
eftir margítrekaðar
árangurslausar, verulega
pirringskveikjandi
tilraunir á bölvuðum
talnalásnum.
„Allt gott bara“ – já, frábært
Já en... hva... auðvitað...
hugsaði ég um leið og breitt
bros breiddist út yfir varir
mínar og tók sér varanlega
stöðu þar. Ég gleymdi um
leið öllum öðrum erindum
í geymsluna, henti frá mér
kassanum sem ég var ný
búin að taka upp og horfði
með andakt á töskuna í
hillunni.
Hún birtist mér allt í einu í
einhverjum sérkennilegum
ljóma - skyldi vera eitthvað
merkilegt í henni eftir allt
saman?
Spennan magnaðist inni
í mér og allt í einu fór
tilveran að hreyfast í „slow
motion“ ég sá hvar ég
sjálf teygði fram höndina
og snerti töskuna, greip
þétt utanum ferlíkið og
tosaði hana ákveðið út úr
fylgsni sínu milli hrörlegs
jólaskrautskassa sem hékk
saman af gömlum vana
og úttroðinnar skærgulrar
bangsatösku, sem varð
verulega fegin þessari
skyndilegu aukningu á
andrými og flýtti sér að ná
sér í sinn skerf.
YESSSSSSSSS - ég var
verulega uppi með mér,
hreykin og hróðug þegar ég
byrjaði að rúlla tölunum á
fyrri lásnum - klikk, klikk,
klikk - hjartað tók smá auka
kipp þegar ég bjó mig undir
að smella... og viti menn -
þetta virkaði - hehehehehe
já maður! að sjálfsögðu
virkaði þetta - hvernig gat
ég svo sem mögulega
nokkurn tíma hafa valið
einhverjar aðrar tölur
:) :) :)
Ég fann sæluvímuna færast
yfir mig og hríslast frá tám,
í gegnum hnén, upp lærin,
eftir hryggjarsúlunni og alla
leið upp í gagnaugu á sama
tíma og ég með talsverðri
ákefð byrjaði að rúlla
tölunum á seinni lásnum -
klikk, klikk, klikk mmmmm
hraðinn var mun meiri núna
- OHHH ja! - ó já snillinn þú
- það er ekki að spyrja að
því - auðvitað small þetta
allt saman.
Ég þrykkti upp lokinu,
opnaði töskuna og var
eldsnögg að kíkja, áður
en ég skoðaði hvort þarna
væru geymdir gleymdir
leyndardómar lífs míns - en
svo reyndist að sjálfsögðu
ekki vera - skynsama ég
hafði að sjálfsögðu tæmt
hana áður en henni var
lokað síðast, svona ef... og
bara sko EF svo ólíklega
skyldi vilja til að lykilorðið
myndi gleymast... sem
eiginlega aftur er orðin
raunveruleiki! Úbs!
- - - - -
Ég skora á hina frábæru
Sigrúnu Heiðu Pétursdóttur
Seastrand að leyfa okkur að
njóta skrifa sinna.
Guðný lifir og hrærist í Rallýinu
Starf keppnisstjóra er fjölþætt
en Guðný ber ábyrgð á allri
keppninni frá upphafi til enda.
„Keppnisstjóri sér um að finna
leiðir, að leyfi fáist fyrir þeim
hjá veghöldurum og lögreglu,
fá starfsfólk, tryggingar,
keppnisskoðun, leiðalokanir
og fleira. Hann finnur fólk til
að starfa með sér því umfang
svona keppni er mjög mikið og
nauðsynlegt að margir hjálpist
að við framkvæmdina,“ útskýrir
Guðný. „Miðsumarrallý BÍKR
verður keyrt í Borgarfirði,
nánar tiltekið um Kaldadal, inn
að Surtshelli og Uxahrygg. Við
munum hefja keppni klukkan
22:00 í Reykjavík og áætlað er
að enda í Borgarnesi um 03:00
um nóttina,“ segir Guðný en þar
munu tvær skagfirskar áhafnir
þreyta keppni, þær eru Baldur
Haraldsson og Aðalsteinn
Símonarson annars vegar og
Þórður Ingvason og Björn Ingi
Björnsson hins vegar.
Rallý hefur löngum verið
talin hættuleg íþrótt þar sem
þátttakendur þeytast áfram á
ógnarhraða í kappi við hvorn
annan. Samkvæmt Guðnýju er
Rallý í raun mun öruggari íþrótt
en margir halda en vissulega geti
orðið óhöpp eins og allstaðar
annarstaðar. „Keppnisbílarnir
er sérstaklega byggðir til að
verja ökumenn ef óhöpp verða,
það er í þeim veltibúr og mjög
öflug öryggisbelti og keppendur
eru með öryggishjálma,“
útskýrir hún og heldur áfram:
„Við þurfum að fara eftir
mjög ströngum kröfum frá
lögreglu og ekki síður frá
samtökum í akstursíþróttum
en rallý allstaðar í heiminum
er haldið eftir reglum Alþjóða
akstursíþróttasambandsins
FIA, sem eru sömu samtök
og sjá m.a. um Formúla 1
keppnirnar.“
Fann ástina í Rallýinu
Guðný býr nú á Borgarnesi með
eiginmanni sínum Aðalsteini
Símonarsyni, en hún flutti
þangað af Króknum sumarið
2010 eftir sjö ára búsetu í
Skagafirðinum. Hún segir frá því
hvernig hún kynntist Rallýinu
og í kjölfarið ástinni í lífi sínu.
„Einn góðan sumarmorgun
í júlí 2009 hringdi góð kona í
mig, Katrín María og plataði
mig í tímavörslu. Það var ekki
aftur snúið, þetta sport er mjög
heppilegt fyrir adrenalínsfíkil
eins og mig,“ segir hún og hlær.
„Um haustið fórum við
nokkrar skvísur úr Skagafirði
að aðstoða við BÍKR-rallý á
Snæfellsnesi en þar fann ég
manninn minn, Aðalstein,
hann keppti þar. Síðan þá hef
ég unnið við flestar keppnir,
bæði sem skipuleggjandi og
tímavörður. Einnig keyptum
við hjónin okkur rallýbíl sl.
vor og höfum keppt saman á
honum,“ segir hún. Aðspurð
um hvort margar konur stundi
íþróttina segir hún þær ekki
vera margar. „Þó er kona efst
að stigum í íslandsmótinu
hjá aðstoðarökumönnum,
Dagbjört Guðmundsdóttir.
Nokkrar konur eru tímaverðir
í hverri keppni en aðkoma
kvenna að þessu sporti er að
mínu mati of lítið ef litið er á
heildina,“ segir Guðný.
„Næsta keppni verður svo
haldin af BS í Skagafirði, helgi-
na 27.-29. júlí en sú keppni er
alltaf mjög skemmtileg, fólk
mætir á föstudegi með alla
fjölskylduna í útilegu og góð
tengsl myndast á milli fólks,“
segir hún í lokin. /BÞ
Guðný Guðmarsdóttir er keppnisstjóri Miðsumarrallýs BÍKR, sem er þriðja umferð í
Íslandsmótinu í Rallý og fer það fram nk. föstudagskvöld, 29. júní í Borgarfirðinum.
Næsta keppni verður svo haldin af BS í Skagafirði, helgina 27. – 29. júlí. Feykir ræddi við
Guðnýju og spurði hana út í Rallýið og hvernig áhugi hennar kviknaði á sportinu.
Guðný ásamt eiginmanni sínum, Aðalsteini.