Feykir - 23.08.2012, Qupperneq 7
31/2012 Feykir 7
Plastrimlar
Jötunn Vélar 800 Selfossi Sími 4 800 400
www.jotunn.is
fyrir fjárhúsgólf
Verðum með prófíl til afgreiðslu
á SveitaSælu 2012
að Svaðastöðum
þann 25. ágúst.
Gæran 2012 : Lockerbie
Fáránlega skemmtilegt í fyrra
Hljómsveitin Lockerbie spilar
á Tónlistarhátíðinni Gærunni
á Sauðárkróki um helgina og
geta ekki beðið eftir að spila
á einni allra skemmtilegustu
tónleikahátíð sem þeir hafa
spilað á.
Hvenær var hljómsveitin
stofnuð og hvað heita hljóm-
sveitarmeðlimir? -Hljómsveitin
var stofnuð í október 2007 og
hefur verið starfandi síðan þá
með einu um það bil árshléi
frá sumrinu 2008 – sumarsins
2009. Hljómsveitina skipa
svo Davíð Arnar Sigurðsson
á píanó, Guðmund Hólm á
bassa, Rúnar Stein Rúnarsson
á trommur og Þórð Pál Pálsson
sem syngur og spilar á gítar.
Hvernig mynduð þið lýsa
tónlist ykkar? -Melódískt post-
popprokk. Blandið Sigur Rós
og Coldplay saman og það ætti
að getað gefið ykkur einhverja
smá hugmynd um hvernig
tónlist við spilum.
Hefur einhvern tímann eitthvað
skondið átt sér stað á tónleikum
hjá ykkur? -Já, það kemur
reglulega eitthvað fyndið uppá
hjá okkur. Í sumar vorum við til
dæmis að spila glænýtt lag sem
við vorum nýbúnir að gera texta
við svo að Doddi (söngvari) var
ekki alveg kominn með hann á
hreint. Hann hafði því skrifað
textann niður á blað til að
getað sungið lagið. Þegar kom
hinsvegar að því að spila lagið
föttuðum við að textinn hafði
gleymst á Faktorý, þar sem við
höfðum verið að spila daginn
áður. En í staðinn fyrir að hætta
við að spila lagið ákvað Doddi
bara að bulla heilan texta upp
sem að fjallaði að mestu leyti
um fólkið í salnum. Fólk tók
mjög vel í þetta en ég held að
ég hafi aldrei séð Dodda jafn
vandræðalegan áður.
Hvernig leggst í ykkur að spila á
Gærunni 2012? -Alveg ótrúlega
vel, við spiluðum líka í fyrra
og fannst það alveg fáránlega
skemmtilegt. Við fengum
símtal rétt fyrir hátíðina síðast
og vorum beðnir um að koma
norður og við höfðum ekki
hugmynd um hvað við værum
að fara útí en ákváðum að skella
okkur og sáum svo sannarlega
ekki eftir því. /BÞ
Gæran 2012 : Brother Grass
Propsið skeit
á fremsta bekk
Hljómsveitin Brother Grass
spilar á Tónlistarhátíðinni
Gærunni á Sauðárkróki sem
fer fram um helgina og segjast
hlakka afskaplega mikið til.
Feykir sendi Brother Grass
nokkrar spurningar til að
kynnast hljómsveitinni nánar.
Hvenær var hljómsveitin
stofnuð og hvað heita hljóm-
sveitarmeðlimir? -Hún var
stofnuð sumarið 2010 og heitum
við Hildur Halldórsdóttir, Sandra
Dögg Þorsteinsdóttir, Soffía Björg
Óðinsdóttir, Ösp Eldjárn og Örn
Eldjárn.
Hvernig mynduð þið lýsa tónlist
ykkar? -Alþýðutónlist er kannski
besta lýsingin. Svona bræðingur
af folk, bluegrass, blues og old
time mountain hillbilly music.
Hefur einhvern tímann eitt-
hvað skondið átt sér stað á
tónleikum hjá ykkur? -Einu sinni
vorum við að spila á tónleikum í
Vopnafirði þar sem okkur fannst
sniðugt að vera með svona lifandi
props, sem samanstóð af geit,
kálfi, hvolpum og hænu. Það var
sniðugt þangað til kálfurinn skeit
á fremsta bekk.
Hvernig leggst í ykkur að spila
á Gærunni 2012? -Við hlökkum
afskaplega mikið til, enda vorum
við í fyrra! /BÞ