Feykir - 23.08.2012, Qupperneq 11
31/2012 Feykir 11
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Fúsi Ben / gítar og trommur
Hefur rosalega
gaman af
að hlusta á
Beethoven
Sigfús Arnar Benediktsson,
betur þekktur sem Fúsi Ben,
ólst upp á Víðigrundinni
á Króknum, fæddur 1989
og býr núna í næstu götu
við. Fúsi segir gítarinn vera
númer 1, 2 og 3 hjá sér en
hann spilar einnig á trommur
með Contalgen Funeral og
segist geta glamrað á hitt og
þetta. Fúsi er upptökustjóri
og hljóðmaður hjá Stúdíó
Benmen á Sauðárkróki og
er einn af skipuleggjendum
tónlistarhátíðarinnar
Gærunnar.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Helstu tónlistarafrek: Að vinna
músíktilraunir 2009 með Bróðir
Svartúlfs, spila í böndum eins og
Fúsaleg Helgi, Contalgen Funeral,
Multi Musica og fleirum. Taka upp
og produsera nokkrar plötur.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Ég hef rosalega gaman af því að
hlusta á Beethoven og þessa
kappa sem voru á þeim árum
með þessi gullfallegu píanó og
strengjaverk og svo er það íslenska
dægurlagatónlistin sem var í gangi
upp úr 1900 til cirka 1970.
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana? Burt
Bacharach, Tommy Emmanuel,
David Gilmour, The National og
Gunnar Þórðarsson.
Hvers konar tónlist var hlustað
á á þínu heimili? Geirmundur var
aðalmálið á mínu heimili þegar ég
var gutti og gat maður ekki annað
en glamrað með á hljómborðið.
Svo kom fyrir að Bjöggi bróðir taldi
í nokkra slagara.
Hver var fyrsta platan/
diskurinn/kasettan/niðurhalið
sem þú keyptir þér? Ég man nú
ekki hvaða disk ég keypti fyrst
en gömlu gáfu mér nokkra diska
með Geirmundi og einhvern disk
með Kristjáni Jóhannssyni. En svo
birtist Nevermind með Nirvana
einn daginn og ég er ekki frá því
að annað eistað hafi leitað niður.
Hvaða græjur varstu þá með?
Það voru einhverjar Philips græjur
sem voru til heima.
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
Syng ekki í sturtu.
Wham! eða Duran? Hvorugt.
Uppáhalds Júróvisjónlagið? Ég
fylgist lítið sem ekkert með Júró-
visjón og held að þessi keppni sé
komin í ruglið.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? Earth
Wind & Fire og Fjólublátt ljós við
barinn.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu
helst heyra? Gunnar Þórðar, Jeff
Buckley, Tom Waits.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér? Mig hefur alltaf langað til að
fara til New York og þá færi ég á
Foo Fighters eða David Gilmour og
sá sem býður best fær að koma
með!
Hvaða tónlistarmann hefur þig
dreymt um að vera? Dave Grohl
eða David Gilmour.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Þessari
spurningu get ég ekki svarað :)
Gæran 2012 : Dúkkulísurnar
Prýddu plakat í
skagfirsku sólarlagi ́ 84
Stelpnabandið ódauðlega
Dúkkulísurnar ætla að
spila á Tónlistarhátíðinni
Gærunni um helgina og geta
ekki beðið! Feykir heyrði í
stelpunum og spurði þær út í
pönkið og rokkið.
Hvenær var hljómsveitin
stofnuð og hvað heita
hljómsveitarmeðlimir? -Þann
10. október 1982. Við erum
orðnar sjö Dúkkulísurnar í
dag og heitum: Adda María
slagverk, Erla Ingadóttir bassa-
leikari, Erla Ragnarsdóttir
söngur, Gréta Sigurjónsdóttir
gítarleikari, Guðbjörg Pálsdóttir
trommur, Harpa Þórðardóttir
hljómborð og Hildur Ásta
Viggósdóttir hljómborð.
Hvernig mynduð þið lýsa
tónlist ykkar? -Pönkskotið
stelpurokk!
Hefur einhvern tímann
eitthvað skondið átt sér stað
á tónleikum hjá ykkur? -Já,
heilmargt. Og af því að við erum
á Norðurlandinu þá getum við
auðveldlega rifjað upp gömlu
og góðu Freyvangsböllin
sem haldin voru á 9. áratug
síðustu aldar! Þau böll voru
þau einu þar sem við þurftum
lífverði upp á svið hjá okkur -
Freyvangur var alltaf troðinn
og þá helst af karlmönnum,
sem við flissuðum auðvitað
oft yfir! Annars spiluðum
við líka á ógleymanlegu balli
á Króknum 1984 - mjög
vel heppnuðu. Eftir ball var
okkur þeytt út í skagfirska
sólarlagið í myndatöku sem
síðan varð að plakati ABC -
barnablaðsins og prýddi víst
mörg unglingaherbergin það
sumarið.
Hvernig leggst í ykkur að spila
á Gærunni 2012? -Frábærlega
– við getum ekki beðið! Við
ætlum að mæta snemma og
njóta alls þess sem Skagafjörður
hefur upp á að bjóða. Og sjá
Gildruna!
Hvað er á döfinni? -Risastór
afmælisveisla í október - á Kaffi
Rósenberg! Þar verður 30 ára
afmælinu fagnað með stæl!
Eitthvað að lokum? -Munum
við ekki örugglega komast á
bak um helgina?? /BÞ
frh. af forsíðu : Skagfirska kirkjurannsóknin
Flutningur beina eldri
siður en áður var talið
Fornleifarannsókn á 11.
aldar kirkjugarði í landi
Stóru-Seylu á Langholti í
Skagafirði lauk í vikunni
sem leið og leiddi
rannsóknin afar forvitnilegar
niðurstöður í ljós. Að sögn
Guðnýjar Zoëga fornleifa-
og mannabeinafræðings
hjá Fornleifadeild Byggða-
safns Skagfirðinga fundust
leifar kirkjugarðs og kirkju
sem aflögð hafði verið
líklega nokkru fyrir
gjóskufallið mikla úr
Heklu 1104.
„Garðurinn hefur verið
hringlaga, um 17m í þvermál
og virðist hafa legið rétt um sex
metrum sunnan við 11. aldar
bæjarhúsin. Grjótlögð stétt
hefur legið frá norðvesturhorni
garðs að bæjarhúsum og hefur
hlið hans því ekki legið til
vesturs eins og síðar varð
alsiða,“ útskýrði Guðný.
Kirkjan fyrir miðju garðsins
var að öllum líkindum af
svokallaðir stólpagerð sem er
með elstu gerð stafverkshúsa.
Guðný segir leifar samskonar
trékirkna hafa fundist við
fornleifarannsóknir að Neðra-
Ási í Hjaltadal og í Keldudal í
Hegranesi.
„Forsaga rannsóknarinnar
er sú að sumrið 2009 kom
hringlaga mannvirki óvænt í
ljós við jarðsjárrannsóknir á
vegum bandarískra sérfræð-
inga, sem stundað hafa jarð-
sjár- og fornleifarannsóknir í
Skagafirði undanfarinn áratug,
en engin merki voru um þessar
elstu byggðaleifar á yfirborði
jarðar,“ sagði Guðný og bætir
við að það sem er óvænt við
þennan fund er að á Seylu var
annar kirkjugarður frá mið-
öldum 50m vestan og ofan
garðsins en sá var vel greinan-
legur á yfirborði.
Ýmislegt forvitnilegt kom í
ljós við rannsóknina en alls
hafa sjö grafir verið rann-
sakaðar. Í tveimur gröfum
sunnanvert í garðinum voru
annarsvegar heilleg beinagrind
fullorðins karlmanns og hins-
vegar illa varðveitt beinagrind
ungbarns. Í tveimur gröfum
nyrst í garðinum fundust vel
varðveitt bein konu og stálpaðs
barns. Úr öðrum gröfum
virðast beinin, hinsvegar, að
mestu hafa verið fjarlægð.
„Í kristnirétti lögbókarinn-
ar Grágásar, sem ritaður var á
fyrri hluta 12. aldar, er ákvæði
um að bein skuli flutt úr
kirkjugörðum séu þeir ein-
hverra hluta vegna lagðir
niður. Víst er að kirkjugarð-
urinn á Seylu hefur verið
aflagður áður en lögin eru
rituð en flutningur beina úr
honum kann að vera vís-
bending um að siðurinn sé
nokkru eldri,“ segir Guðný og
bætir við að þessu ákvæði
virðist þó ekki almennt hafa
verið fylgt þar sem fáar tómar
grafir hafa fundist við
rannsóknir á skagfirskum
kirkjugörðum. „Ætla má að
beinin hafi verið færð og grafin
á ný í yngri kirkjugarðinum
þegar að bæjarstæðið var flutt
og nýr garður gerður,“ segir
hún.
Vonast er til að uppgreftri
kirkjugarðsins á Seylu ljúki
næsta sumar og mun þá
skýrast enn fremur sú mynd
sem við höfum garðinum og
innihaldi hans. /BÞ