Feykir - 11.10.2012, Blaðsíða 5
38/2012 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
Dominos-deildin : Tindastóll - Stjarnan 79-90
Stjörnumenn voru
sterkari í Síkinu
FRÍ velur í landsliðshóp
Tveir Skagfirðingar
valdir í hópinn
Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ
hefur nú valið nýjan
landsliðshóp að loknu
utanhússtímabili 2012.
Hefur einnig verið myndaður
nýr Ólympíuhópur.
Skagfirðingarnir Jóhann
Björn Sigurbjörnsson sprett-
hlaupari og Björn Margeirs-
son millivegalengda- og
langhlaupari sem keppa
undir merkjum UMSS eru í
hópnum.
Þeir nafnar Jóhann Björn
og Björn hafa verið kallaðir í
landsliðshitting þann 27.
október næstkomandi en
um kvöldið verður haldin
uppskeruhátíð FRÍ. /PF
Tindastóll spilaði sinn fyrsta
leik í hinni splunkunýju
Dominos-deild á
sunnudagskvöldið en þá kom
sterkt lið Stjörnunnar úr
Garðabæ í heimsókn í Síkið.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en í síðari
hálfleik reyndust gestirnir
sterkari og unnu öruggana
11 stiga sigur, 79-90.
Það var fín mæting í Síkið
og stuðningsmenn Tindastóls
spenntir að sjá nýja leikmenn
fara á kostum. Að venju voru
menn spenntir að sjá
Bandaríkjamennina tvo, þá
George Valentine og Isaac
Miles, en þeir voru báðir afar
daprir, nánast hlédrægir, og
náðu sér engan vegin á strik.
Stólarnir kláruðu annan
leikhluta sterkt en Rikki hélt
okkar mönnum inni í leiknum.
( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is
Nafn: Gísli G. Magnússon.
Heimili: Staðarbakki 2, Húnaþingi vestra.
Starf: Bóndi.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af
hverju? Arsenal. Þegar ég ungur með hár og tennur fór
að fylgjast með enska boltanum fannst mér Arsenal
flottasta nafnið í efstu deild. Þess vegna var ákveðið
að fylgja þeim. Ekki skemmdi fyrir að liðið varð tvöfaldur
meistari fæðingarárið mitt og hefur reyndar afrekað það
tvisvar sinnum síðan.
Ertu sáttur við stöðu liðsins? Nei, liðið sem spilar
besta boltann á að vera á toppnum.
Hefur þú einhverntímann lent í deilum vegna
aðdáunar þinnar á umræddu liði? Nei, deili ekki nema
dæmið sé þess eðlis.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? Dennis
Bergkamp.
Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? Nei, búið að
vera á döfinni síðan 11. júní 2011. Koma tímar, koma
ráð.
Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? Já, búinn að
opna marga pakka síðan ég gekk í Arsenalklúbbinn á
Íslandi. Var að enda við að opna einn sem innihélt trefil
með áletrun vegna 30 ára afmælis klúbbsins, fána með
sömu áletrun o.fl.
Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp
í stuðningi við liðið? Yngri dóttirin er búin að skreyta
flesta húskofa á bænum að innan með myndum og
texta sem vísa til þess hverjir eru bestir, þannig að
einhver áhrif hefur maður haft á hana. Nema því aðeins
að hún hafi áttað sig á því sjálf hvaða lið kann að spila
fótbolta. Sonurinn, eldri dóttirin og konan forða sér
yfirleitt í hinn enda hússins eða hreinlega út úr húsinu á
meðan leikur er sýndur.
Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag?
Nei, en glerplatan á sófaborðinu hefur oft verið í hættu
um helgar.
Uppáhalds málsháttur? Öll él styttir upp um síðir.
Einhver góð saga úr boltanum? Sumarið 1992
kepptum við í meistaraflokksliði Kormáks m.a. við Þrym
frá Sauðárkróki. Tvennt stendur upp úr í minningunni
um þann leik. Örn Gunnarsson sem lék sem aftasti
varnarmaður tók aukaspyrnu frá miðju vallarins og
skoraði úr henni. Einhverra hluta vegna lét dómarinn
endurtaka spyrnuna og Örn gerði sér lítið fyrir og skoraði
aftur frá miðju. Sjálfur lék ég sem hægri kantmaður í
þessum leik sem og oft áður. Um miðjan
fyrri hálfleik barst boltinn út á vinstri
kant til Axels Rúnars Guðmundssonar,
framherja Kormáks. Ég tók hlaupið á
ská yfir völlinn, fékk sendingu frá Axel
Rúnari, tók eina snertingu með hægri
fæti og lét svo vaða með vinstri. Boltinn
fór í markslána, niður í jörðina og svo
upp í netið. Ég öskraði af geðshræringu
og fagnaðarlætin ætluðu aldrei að
byrja. Í búningsklefanum eftir leik sagði Axel Rúnar
við mig: Ég hefði aldrei fyrirgefið þér ef þú hefðir sett
þennan yfir. Þá kom Örn inn í umræðuna og sagði: Já,
þú laumaðir inn einu.
Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða
orðið fyrir? Einu sinni sem oftar fór ég á vínrauðum
Subaru okkar hjóna til Hvammstanga. Með í för var systir
konu minnar. Ég átti erindi í Byggingavöruverslunina
en þar fyrir utan stóð bíll af sömu gerð, með sama lit
og bílnúmerið ekki ósvipað. Ég vissi hver átti bílinn og
ákvað að leggja við hliðina á honum til að kanna hvað
eigandinn gerði þegar hann kæmi úr búðinni. Mágkona
mín beið í bílnum á meðan ég skaust inn í verslun.
Þegar konan sem átti bílinn kom út settist hún beint inn
í bílinn minn og sá þá sér til mikillar undrunar að það
var farþegi við hliðina á henni sem hún þekkti ekkert.
Konan áttaði sig loks á því að hún átti bílinn við hliðina
og var þá fljót að færa sig um set.
Spurning frá Sólrúnu Rafnsdóttur. – Hvenær á
að skella sér á leik með Arsenal og hefur þú átt
nautgrip sem hefur verið nefndur eftir einhverjum
leikmanni Arsenal? Svar: Eins og áður kom fram er það
á döfinni að fara á leik og verður vonandi framkvæmt
fljótlega ef einhver hefur ráð á að koma með.
Það vill nú þannig til að nautin verða yfirleitt ekki eldri
en tvævetur og tekur því varla að nefna þau. Hins
vegar er ég að verða uppiskroppa með nöfn á kýrnar
og ætti kannski að fara að fylgjast með
Arsenal „ladies“ enda hafa þær víst verið
langbestar í mörg ár.
Hvern viltu sjá svara þessum
spurningum? Axel Rúnar Guðmunds-
son, bónda í Valdarási.
Hvaða spurningu viltu lauma að
viðkomandi? Verður Robin van Persie
markakóngur annað árið í röð ?
Sumarið gert upp hjá 3.- og 4. flokki í fótboltanum
Skemmtilegu
sumri slúttað
Uppskeruhátíð Tindastóls
fyrir 3. og 4. flokka karla og
kvenna fór fram á Mælifelli
föstudagskvöldið 5. október
þar sem boðið var upp á
glæsilegt hlaðborð frá
Ólafshúsi.
Eftir matinn og verðlauna-
veitingar var dansað til kl. 24:00
og skemmtu krakkarnir sér vel.
Eftirtaldir aðilar fengu
viðurkenningar fyrir frábæra
frammistöðu:
3. fl.drengja
Mikilvægastur:
Pétur Rúnar Birgisson
Efnilegastur: Óli Björn Pétursson
Besta ástundun: Ágúst Friðjónsson
3. fl. stúlkna
Mikilvægust:
Sigurveig Anna Gunnarsdóttir
Efnilegust: Hugrún Pálsdóttir
Besta ástundun:
Bríet Guðmundsdóttir
4. fl. drengja
Mikilvægastur: Pálmi Þórsson
Efnilegastur:
Halldór Broddi Þorsteinsson
Bestu ástundun:
Jónas Aron Ólafsson
4. fl. stúlkna
Mikilvægust:
Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
Efnilegust:
Vigdís Edda Friðriksdóttir
Besta ástundun:
Elínborg Margrét Sigfúsdóttir /PF
Þú laumaðir inn einu
Gísli G. Magnússon heldur með Arsenal
Vörn Tindastóls var sterk og
Stjörnunni gekk illa að klára
sínar sóknir. Staðan jöfn í
hálfleik, 38-38.
Gestirnir voru firnasterkir í
byrjun þriðja leikhluta á meðan
sóknir Tindastóls gengu ekki
upp. Varnarleikurinn var skárri
en Stjarnan seig framúr og ekki
varð það til að bæta stöðu
Stólanna þegar Þresti Leó var
vikið úr húsi, fékk tvær
tæknivillur á tveimur sek-
úndum hjá röggsömu
dómaraþríeyki. Því síður var
það gott mál að Justin Shouse
fann fjölina sína og varð nánast
óviðráðanlegur. Barátta beggja
liða var í góðu lagi en Stjarnan
var yfir eftir þriðja leikhluta,
52-60.
Það voru Helgarnir tveir
sem héldu Stólunum inni í
leiknum í fjórða leikhluta en
því miður hrukku kanarnir
okkar aldrei í gang í leiknum og
áttu erfitt uppdráttar gegn
sterku Stjörnuliði. Stólarnir
náðu aldrei að nálgast gestina í
lokafjórðungnum og á end-
anum fór það svo að Stjarnan
sigraði sanngjarnt, 79-90. /ÓAB
Mikilvægastir, efnilegastir og bestir.