Feykir - 24.01.2013, Qupperneq 1
fff
BLS. 6
BLS. 11
Söngvarakeppni grunnskóla
Húnaþings vestra
Dagrún Sól og
Hrafnhildur Kristín
sigurvegarar
BLS. 9
Allan og Arnór
Pílagrímsferð til
syndaaflausnar í
máli og myndum
Jóhann og Ása eru
matgæðingar vikunnar
Kjúklingaréttur
og rommkúluís
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
03
TBL
24. janúar 2013
33. árgangur : Stofnað 1981
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Leikgleði á árshátíð Árskóla
Sauðárkrókur
Beðið eftir fundi með ráðherra
Rekstur Náttúrustofu í skoðun
Heildar fjárframlag ríkisins til
Náttúrustofu Norðurlands vestra
hefur verið skorið niður frá fyrri árum
og ljóst er að sveitarfélögin í
Skagafirði þurfa að hækka framlög
til stofunnar til að mæta kröfunni
um 30% mótframlag við
grunnframlag ríkisins. Sveitarfélagið
Skagafjörður og Akrahreppur eru
enn sem komið er einu
sveitarfélögin á Norðurlandi vestra
sem leggja stofunni til rekstrarfé
utan ríkissjóðs.
Að sögn Sigríðar Magnúsdóttur
formanns stjórnar Náttúrustofu NV er
mikil óánægja með þá ákvörðun
umhverfisráðherra að minnka framlag
til stofunnar til rannsóknarstarfa og
hefur verið beðið eftir því í þrjá mánuði
að ná fundi ráðherrans um samnings-
drögin og framtíð Náttúrustofunnar.
Sigríður segir að unnið sé að lausn
málsins m.a. með þátttöku fleiri
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem
og að afla stofunni meiri verkefna.
Sigríður segir að ekki hafi komið til tals
að grípa til uppsagna en einn
starfsmaður er nú starfandi á
Náttúrustofunni.
–Að mínu mati er mjög mikilvægt að
svona störf fari ekki úr héraði.
Markmiðið hlýtur alltaf að vera það að
halda í störf sem krefjast vel menntaðs
fólks og að það hafi hér atvinnu, segir
Sigríður. Í fjárlögum ríkisins er gert ráð
fyrir 15,1 milljón króna framlagi fyrir
þetta ár, örlítið hærra en á því síðasta en
fjármunir til rannsóknastarfa eru ekki
lengur hluti af fjárveitingum. Það þýðir
að vegna samnings sveitarfélaganna og
umhverfisráðuneytisins að sveitar-
félögin munu þurfa að tvöfalda framlög
sín til rekstrarins milli ára. Eins og áður
segir er verið að skoða hvernig það
verður gert en í dag verður haldinn
fundur með Svandísi Svavarsdóttur
umhverfisráðherra þar sem framtíð
stofunnar verður rædd. /PF
Árshátíð unglingastigs Árskóla fór fram í vikunni en þá
stigu nemendur 8. og 9. bekkjar á stokk og fluttu nokkur
leikrit í Bifröst. Að venju þá sáu nemendurnir sjálfir um að
semja handritin, um förðun, búningahönnun og fleira
sem tilheyrir því að setja leiksýningu á svið.
Leiksýningarnar voru fjórar talsins og fóru tvær þeirra fram
á sl. þriðjudag og tvær á miðvikudag, við góðar viðtökur. /PF
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Canon PIXMA MG6250
Er há-afkasta Wi-Fi ljósmynda fjölnota prentari og skilar
framúrskarandi prentgæðum.
Tilvalinn fyrir áhugaljósmyndara.
Framköllunargæði fyrir
heimilið með sex blekhylkjum.
T I L B O Ð S V E R Ð
kr. 27.900.-