Feykir - 07.03.2013, Blaðsíða 25
09/2013 Feykir 25
NAFN Jón Þór Bjarnason : ÁRGANGUR 1961 : BÚSETA Reykjavík : FJÖLSKYLDA Fjögur
börn, eitt barnabarn og kærasta : HVERRA MANNA ERTU Sonur Elsu Jónsdóttur og Bjarna
Þórs Bjarnasonar : STARF / NÁM BA í Ferðamálafræði frá Hólum / Sjálfstætt starfandi :
BIFREIÐ Honda CRV : HESTÖFL Rúmlega eitt hundrað folöfl : HVAÐ ER Í DEIGLUNNI
Spænskunámskeið, snjóbretti, kórsöngur og badminton. Senn vorar og þá bætast við
línuskautar, frisbygolf og ferðalög. Svo ætti ég að vera, í stað þess að vera að svara
þessum spurningum, að útbúa og dreifa kynningarefni fyrir rútuna mína, en ég á
24-farþega Benz-rútu sem ég geri sjálfur út á sumrin.
Jón Þór
Hvernig hefurðu það? -Mesta
furða miðað við aldur og fyrri
störf. Innra jafnvægið er gott
en alltaf einhver óróleiki í
kroppnum sem þarf að fá
reglulega útrás.
Hvernig nemandi varstu?
-Andskotanum ódælli held
ég. Var allavega rekinn heim
nokkrum sinnum, stundum fyrir
sárasaklausan grallaraskap;
stundum verðskuldað. Það
tíðkaðist í þá daga að reka börn
úr skóla og ég var svo vitlaus
að finnast þetta upphefð; hafði
„unnið“ mér inn notalegt frí og
gat sofið út. Var þá og er enn,
nokkuð hvatvís. Einu sinni
vorum við strákarnir að þeyta
hver öðrum á kennarastól á
hjólum fram og aftur gangana,
þegar kennari kom óvænt útúr
stofu. Hann átti fótum sínum
fjör að launa á flótta undan
stólnum. Í kjölfarið var ég
sendur heim í viku!
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? -Þegar
ég laumaðist úr veislunni ásamt
föðurbróður mínum, sem var
vopnaður ljósmyndavél, uppí
risherbergið mitt á Freyjugötunni,
þar sem hann myndaði mig
kasta allri seðlahrúgunni uppí
loft – þetta var eitthvað um
hundraðþúsundkall sem sveif
þarna fallega niður fyrir framan
skælbrosandi andlit nýbakaðs
„milljónamærings“.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? -Hver
sagði að ég væri orðinn stór?
Hvað hræðistu mest? -Að
festast í viðjum vanans og
hætta að upplifa eitthvað nýtt
og spennandi. Svo hræðist
ég líka firringu og fáfræði,
sem verður skelfileg blanda
þegar það er hrært saman við
þjóðrembu og/eða trúarbrögð!
Hver var fyrsta platan sem
þú keyptir (eða besta)? -Ein
besta plata sem ég hef eignast
er Hinn íslenski Þursaflokkur og
Caput - í Höllinni á þorra 2008.
Ég fór á þá tónleika og gleymi
seint, en þar voru þessi feiknafínu
lög gædd nýju lífi og stærra. Þeir
sem frömdu gjörninginn eru að
mínu mati tónlistartöframenn á
heimsmælikvarða!
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí? -Delilah með
Tom Jones. Annars hef ég oft
flaskað á því að velja mér lag
sem hentar illa mínum djúpa
baritón – það kemur ekki vel út,
en skemmtir oft viðstöddum.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? -Missi meðvitað
mestmegnis af því sem sýnt er
í sjónvarpi, líka fréttum. Eitt er
það þó sem ég reyni eftir fremsta
megni að sjá, og það er hinn
stórskemmtilegi spurningaþáttur
Útsvar. Forðast flestallar þátta-
raðir, en man þó eftir því að hafa
sótt í tríólógíu Stieg Larsson.
Besta bíómyndin? -Shawshank
Redemption er feiknafín mynd,
og önnur uppáhalds er franska
myndin Intouchables. Báðar
segja góða sögu og hreyfa
við mér. Svo er það auðvitað
sænska stórmyndin Den frusna
Leoparden, en það er eina
bíómyndin í fullri lengd sem ég
hef unnið við.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? -Ég bý til ljómandi
bragðgóðan hummus með
indverskum undirtón og svo er
gríska salatið mitt í uppáhaldi. Í
því er auðvitað ekkert kál, heldur
bara tómatar, gúrkur, rauðlaukur,
fetaostur, ólífur og ólífuolía,
sítrónusafi, salt og pipar.
Hvað fer helst í innkaupa-
körfuna sem ekki er skrifað á
tossamiðann? -Einhver rándýr
hollusta. Annars fer ég oftast
með minnismiða og reiðufé í
verlsanir… og bruðla svo heldur
í eitthvað skemmtilegt.
Hvað er í morgunmatinn?
-Sólskinsmúslí með léttmjólk,
matskeið af hörfræolíu og 4.000
ae af D-vítamíni. Nýmalað og
–uppáhellt kaffi af góðum styrk-
leika kemur svo í kjölfarið.
Uppáhalds málsháttur? Hver
er sinnar kæfu snúður?
Hvaða teiknimyndapersóna
höfðar mest til þín? -Allar
þessar snældu klikkuðu teikn-
ingar hans Hugleiks Dagssonar
tala til mín, hann er svo brjálæð-
islega steiktur að hann nær meira
að segja að ganga fram af mér!
Hver er uppáhalds bókin þín?
-Mátturinn í núinu, eftir Eckhart
Tolle. Hún kenndi mér að vera
að fullu staddur í því augnabliki
sem er að líða. Þetta er mín
biblía. Tolle segir að hugurinn
sé boðflenna sem lifir sjálfstæðu
lífi í hausnum á okkur og hefur
tilhneigingu til að mæta óboðinn
í lokuð einkapartý. Hugurinn er
verkfæri sem við notum til ýmissa
úrlausna, en eins og gildir um slík
tól eigum við að geta lagt þau frá
okkur að loknu verki eða þegar
við viljum taka pásu. Aðeins með
þöglum huga getum við nálgast
kjarnan í okkur sjálfum.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... -Þar sem ég er að klára
Spænsku II hjá Endurmenntun
H.Í., færi ég á sólríkan stað
þar sem eingöngu væri töluð
spænska… þarf nauðsynlega að
æfa mig í að tala og hlusta meira,
svo þetta festist betur.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? -Kæru- og agaleysi,
en það hefur líka sína kosti.
Svo er ég hundlatur milli þess
sem ég tek vinnutarnir. Annars
á maður að vera umburðalyndur
og æðrulaus gagnvart sjálfum sér
jafnt sem öðrum.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? -Allajafna
fer annað fólk ekki í taugarnar á
mér. Það lifir sínu lífi og ég mínu;
það má hafa sína dutlunga og
sérlund, alveg eins og ég.
Enski boltinn - hvaða lið og
af hverju? -Þegar ég var gutti
hélt ég um tíma með Stoke og
svo Arsenal. Síðustu þrjátíu árin
eru fótboltaleikir sem ég hef
séð, teljandi á örfáum fingrum.
En hvurslags spurning er þetta
eiginlega – af hverju er ekki
spurning hér um fegurstu íþrótt
allra tíma: Körfubolta?
Heim í Búðardal eða Diskó
Friskó? -Sko Heim í Búðardal
hefur auðvitað verið sungið
ótal ótal sinnum í partýum
og útilegum, en Diskó Friskó
kveikir upp meiri tjútt-kenndir
í mínum kroppi. Annars er ég
alæta á tónlist; djass jafnt sem
danstónlist.
Hver var mikilvægasta persóna
20. aldarinnar að þínu
mati? -Mamma!
Ef þú ættir að dvelja aleinn
á eyðieyju, hvaða þrjá hluti
tækirðu með þér? -Tölvu og nóg
af kaffi (þetta eru óaðskiljanlegir
hlutir og teljast því sem einn),
koddann minn og frisby-golf
disk. Tölvan er auðvitað með
gerfihnattarpung og sólarsellu!
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? -Kameljón?
RABB-A-BABB
oli@feykir.is