Feykir - 07.03.2013, Blaðsíða 13
09/2013 Feykir 13
Fröken Fabjúlöss
[ frokenfab@feykir.is ]
Fersk og falleg á
fermingardaginn!
Fröken Fabjúlöss stendur á því
fastar en fótunum að hlutverk
fermingarförðunar sé að undirstrika
þá náttúrulegu fegurð sem nú þegar
er til staðar, hressa aðeins upp á
útlitið og gera fermingarpíuna
ferska. Í förðunarbókum Fröken
Fabjúlöss flokkast það undir
fullkomna fermingarförðun þegar
gestir fermingardömunnar horfa á
þessa fallegu stúlku, sjá mun en átta
sig ekki á því hvað það er!
En fermingarlúkkið er svo langt frá því
að vera bara förðunin og þess vegna
fékk Fröken Fabjúlöss til liðs við sig
stórsnillingana Báru, Þóru og Ernu á
hárgreiðslustofunni Hjá Ernu.
Hártískan í fermingargreiðslum þetta
misserið að sögn mógúlanna Hjá Ernu
er helst að vera með fallega og
óreglulega liði sem gerðir eru með
mismunandi járnum. Fermingar-
dömurnar vilja oftar hafa liðað hárið
frekar frjálst og slegið til þess að lengd
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
hársins sjáist vel og yfirleitt er hárið
aðeins tekið frá andlitinu með lausri
fléttu eða vafningi. Minna fer fyrir
skreytingum og eru þær þá léttar. Sem
sagt „less is more“ er inn í dag!
Stórskotalið Fröken Fabjúlöss
smellti saman í eitt fermingarlúkk og
fengu til liðs við sig hina stórglæsilegu
Brynju Sif Harðardóttur.
Farði
Frökenin byrjaði á að nota Teint
Miracle Beige Ivory meik frá Lancome
og bar það á í þunnu lagi. Því næst
púðraði hún yfir með litlausu Blot
púðri frá MAC. Augnskuggarnir sem
Frökenin notaði koma allir frá
Lancome. Í grunninn var
ljósbeislitaður, hásanseraður settur á
allt augnlokið. Svo notaði Frökenin
tvennskonar bleika augnskugga,
dekkri í ytri augnkróka og ljósari
bleikan inn á hálft augnlokið.
Endahnútur augnfarðans var svo þunn
eyeliner lína og maskari. Sólarpúður
borið á hernaðarlega mikilvæga staði
og highlighter ofan á kinnbeinin og
undir augun til að draga fram
andstæðu á móti sólarpúðrinu. Að
endingu var svo ljósbleikt gloss borið á
varirnar.
Hár
Byrjað var á því að slétta vel allan
partinn sem átti að flétta, til að tryggja
fallega áferð á fléttuna. Næst voru settir
liðir í neðri partinn á hárinu með
keilujárni og spreyað létt yfir með
spreyi frá Bead Head til af fá smá hald.
Smá fyllingu vantaði í greiðsluna og til
að ná henni fram voru bæði lokkarnir
og hnakkinn túperaðir svolítið þannig
að fléttan myndi leggjast fallega yfir.
Svo var fléttað og fléttan losuð svolítið
svo hún liti út fyrir að vera meiri og
ekki strekkt. Því næst voru liðirnir
fínpússaðir með stóru krullujárni. Að
endingu var spreyjað létt yfir með
Morrocon hárspreyi til að fá smá hald
og glansspreyi frá Catwalk til að fá
fallegan gljáa.
Fröken Fabjúlöss og gellurnar Hjá
Ernu óska öllum fermingarbörnum
þessa árs og fjölskyldum þeirra til
hamingju með daginn!
Fermingarförðun
Hvað ber að varast?
Fröken Fabjúlöss hefur tekið eftir því að undanfarin ár hefur það færst í aukana
að fermingarstúlkur falist eftir förðun fyrir stóra daginn. Allt er það nú gott og
blessað enda er þessi tiltekni dagur myndaður í bak og fyrir og festur varanlega
á spjöld sögunnar. En fermingarförðun og venjuleg förðun eru tvennt ólíkt og
nokkur atriði sem ber að varast þegar verknaðurinn fer fram.
1. Enga litagleði þennan daginn!
Þó svo að litadýrð sé óðum að rata inn í farðanir hvunndagsins og er orðið á förðunargötunni
það að skærir litlir verði allsráðandi í sumar, þá ráðleggur Fröken Fabjúlöss fermingardömunum
eindregið að halda sig frá þeim á fermingardaginn. Tímaleysi er markmið förðunarinnar, þó
svo að skærir litir séu að koma sterkt inn í ár, þá vogar Fröken Fabjúlöss sér að fullyrða að
eftir 15 ár verði sú tískubóla löngu sprungin... En fermingarmyndirnar munu ennþá lifa góðu
lífi á þeim tímapunkti!
2. Minna er meira!
Ef augnskuggar eru notaðir, endilega að nota lítið af þeim, nota ljósa liti sem draga fram
ferskleika, til dæmis bleika og bleiktóna liti. Ef brúntóna litir verða fyrir valinu, endilega hafa
þá í ljósari kantinum og sanseraða, til dæmis bronze lita.
3. Draga fram það sem nú þegar er til staðar!
Setja fína eyeliner línu. Undirstrika byggingu andlitsins með því að setja sólarpúður. Góð
þumalputtaregla þegar verið er að setja sólarpúðrið á er að horfa á fermingardömuna og sjá
fyrir sér hvar sólarljósið fellur á andlitið. Bera lítið af púðri á þessa staði með púðurbursta
(nefbein, höku, fyrir ofan gagnaugun) ásamt því að bera það á kinnbeinin og strjúka svo
laust yfir með höndunum til að deyfa út skil. Setja svo highlighter ofan á kinnbein til að fá
andstæðu á móti sólarpúðrinu.
4. Lítið eða ekkert meik!
Fermingardömurnar búa flestar svo vel að vera með nánast fullkomna húð! Ef húðin er á
annað borð laus við bólur þá er hún rennislétt og falleg, og því oft engin ástæða til að nota
meik. Í þessum tilfellum mælir Fröken Fabjúlöss eindregið með því að púður sé brúkað í
hógværum skammti. Ef um bólótta eða á einhvern hátt skemmda húð er að ræða, þá mælir
Frökenin með því að nota eins lítið þekjandi meik og hægt er að komast upp með.