Feykir


Feykir - 06.06.2013, Side 4

Feykir - 06.06.2013, Side 4
4 Feykir 22/2013 Hér er ennþá heldur kalt, hlýnar ekki mikið. Sýnir gengi vorsins valt veðurfarið svikið. Köld er jörð og kaldur mar, kulda plágar vítið. Þó að sjáist sólarfar sumar nálgast lítið. Dumbs frá hafi dregin ský dreifa þoku grárri. Finnst í engu fró í því fárs í stöðu sárri. Skaflar þurfa að þiðna hér, þá mun batinn séður. Foldin græna fjarri er, fátt sem augað gleður. En enn virtist langt í hlýindi og vorsælu og 6. maí orti ég þessar vísur: Kreppa að lýðum kulda skór, kvelur stríðið skæða. Enn er hríð og enn er snjór, enn er tíðin mæða. Vonum granda þrautir þrátt, þreytir brandur nepju. Slyddufjandi úr Frosta átt fyllir landið krepju. Hvenær vorar vengi á vaknar þor í grösum, léttast spor og lifnar brá, losnar hor úr nösum? Og enn hlýnar lítið og maður spyr: Hver stjórnar þessu eiginlega? Fyrir skömmu lést hér garpur einn sem fór sínar leiðir og var ekki allra. Hafði hann sett nokkurn svip á bæjarlífið, enda stór að vexti og að jafnaði nokkuð fasmikill í framgöngu. Ég orti er ég heyrði að hann væri farinn yfir landamærin: Það éljaði um hann oft og lengi og einatt var viðmótið býsna hrjúft. Samt átti hann þekka og þýða strengi en þeir lágu hinsvegar nokkuð djúpt! Listakona ein frá Ástralíu sem hér hefur verið, lét mikil hrifningarorð falla í áheyrn nokkurra bæjarbúa yfir öllu fannferginu. Ekki voru viðstaddir jafn hrifnir og varð mér það að yrkisefni: Listakona áströlsk ein hér ofsa hrifin varð af snjónum, þó hann geri í mörgu mein hér, marga spenni beittum klónum. Ekki gat hún orða bundist, öll á hvítu sælubandi. Öðrum hefur annað fundist oftastnær í þessu landi. Svar hún fékk frá svanna góðum, síst með hugann vetrargróinn: „Þegar ferðu af þessum slóðum, þú mátt taka með þér snjóinn!“ Í gamalkunnugri vísu er tekið svo til orða - pólitík og tíðarfar /töluvert er svipað. Og vissulega hafa verið sviptingar bæði í veðurfarinu og á stjórnmála- sviðinu. Hvort og hvenær það vorar í því náttúrulega er sjálfsagt einhver spurning, en það er líklega meiri spurning hvort það sé að vora eitthvað í pólitíkinni og hvers sé að vænta úr þeirri áttinni? Um það mætti hafa þessi vísuorð: Mega spá í málin fast menn sem ná til valda. Sagan skráir lof og last, loforð á að halda! Með von um sumar – í sumar! Rúnar Kristjánsson Um vorið sem ekki kom! FRÁ LESENDUM RÚNAR KRISTJÁNSSON SKRIFAR Ekki hefur vorað vel að þessu sinni og ég held að þrisvar sinnum hafi ég talið snjóalög um garð gengin á minni lóð þegar allt fylltist aftur. Orti ég í byrjun apríl eftirfarandi vísur og lýsa þær þáverandi stöðu tíðarfarsins: Helga Sigurbjörns- dóttir, oftar en ekki kölluð Helga Sig, útskrifaðist sem rafvirki frá FNV 25. maí sl. en hún er fyrsta stelpan til að útskrifast sem rafvirki frá skólanum. Helga er fædd og uppalin á Sauðárkróki, dóttir Báru Jónsdóttur, hárgreiðslu- meistara, og Sigur- björns Björnssonar kennara við FNV. Helga sagðist hafa valið þetta nám því henni hafi þótt það spennandi og næga vinnu væri að fá eftir að námi lyki. „Einnig er þetta mjög góður grunnur fyrir ýmsar aðrar vinnur og nám,“ segir Helga. Aðspurð hvernig það hafi verið að vera eina stelpan í náminu segir Helga það hafa verið að mestu leyti skemmtilegt, en gat stundum verið frekar þreytandi. „Strák- arnir höfðu ekki alveg sömu áhugamál og ég, en við áttum nokkur sem við gátum spjallað öll saman um. Stundum voru strákarnir svolítið háværir og erfiðir, sér- staklega þegar við áttum að vera að læra og einbeita okkur, þá var Fyrsta stelpan til að útskrifast sem rafvirki frá FNV Rafvirkjun jafn mikið fyrir stelpur og stráka UMSJÓN Guðrún Sif Gísladóttir það ekki gaman“, segir Helga. Helga sagði sig alltaf hafa langað að prófa eitthvað nýtt og þótt rafmagnið spennandi. Áhuginn á rafvirkjun hafi svo kviknað þegar hún var að skoða verkámið og séð strákana fikta með alls konar tæki og tól. Helga segist jafnvel ætla að stefna á frekara nám tengt rafvirkjun. „Ég ætla að að byrja á því að klára sveinsprófið og sjá svo til. Hef ekki ákveðið neitt frekar hvað framhaldið verður. En það er eitthvað sem kemur með tímanum og áhuganum á þessum sviðum sem eru í boði”. Helga segist alveg hiklaust hvetja aðrar stelpur til að fara í þetta nám. „Þetta er fjölbreytt og krefjandi nám sem er jafn mikið fyrir stelpur og stráka“. /GSG Kal í túnum Of snemmt að segja til um hvort þetta kosti niðurskurð í haust Að sögn Eiríks Loftssonar ráðunautar hjá RML er heilmikið kal víða í Skagafirði. Í Austur-Fljótum eru túnin ekki komin undan snjó og því ekki hægt að meta ástandið þar strax, en þegar blaðamaður ræddi við Eirík var landbúnaðar- ráðherra á ferð um Fljótin og Norðurland eystra til að kynna sér ástand mála. „Það verður að koma í ljós hvernig ástandið er í Fljótum, ég er ekki búinn að skoða það, maður er svo sem ekkert svartsýnn, alla vega best að segja sem minnst um það strax. En af því sem ég hef skoðað eru túnin mest kalin í Óslandshlíð og Hjaltadal og svo er slæmt kal að finna í Sléttuhlíðinni, Hegranesi og víðar. Það má finna kalbletti fram um allan fjörð og býsna mikið á stöku bæjum.“ Eiríkur segir það ekki algilt að þau tún þar sem sáð var í fyrra verði verst úti. „Maður sér alveg tún sem sáð var í í fyrra líta ágætlega út, en almennt má þó segja að gömul tún sem eru búin að ganga í gegnum ýmislegt séu skárri.“ Eiríkur segir erfitt að meta hlutfall túna sem eru ónýt þar sem ástandið er verst en getur sér til að það geti verið um þrír fjórðu í verstu tilvikunum. Hann segir ótímabært að meta kostn- aðinn, þar sem misjafnt sé hversu mikið þurfi að gera. Það megi þó reikna með 100- 200 þúsund krónum á hvern hektara og verið sé að athuga aðkomu bjargráðasjóðs að þessum hamförum. Varðandi uppskeruhorfur í haust, þá gefi ný tún blautari og minni uppskeru en síðan séu aðrar aðstæður, eins og óvenjumiklar vorrigningar sem geti hjálpað til í þessu ástandi og því sé of snemmt að spá fyrir um hvort bændur þurfi að skera niður í haust. Varaforðinn sé þó lítið sem enginn, enda margir heylitlir eftir tvö þurrkasumur í röð og mikla innigjöf vegna tíðarfarsins í vetur. /KSE

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.