Feykir - 05.12.2013, Side 4
4 Feykir 46/2013
LUMARÐU Á FRÉTT?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
Hann Feykir okkar kemur út einu sinni í viku allan ársins hring,
löðrandi í málefnum líðandi stundar með ofur áherslu
á Norðurland vestra.
Sendu okkur endilega fréttaskot, pistil, mynd
eða bara ábendingu um ... eitthvað!
Hafðu samband – síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
Við minnum einnig á Feykir.is
– fullt net af fréttum og fíneríi alla daga!
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Áskriftarsíminn er 455 7171
Aflahornið 24.-30. nóvember 2013
Tæplega 822 tonnum landað í vikunni
Landað var rúmum 36 tonnum á Hofsósi,
rúmum 639 tonnum á Skagaströnd, rúmum
130 tonnum á Sauðárkróki og rúmum 15
tonnum á Hvammstanga í liðinni viku. Alls
gera þetta tæplega 822 tonn á Norðurlandi
vestra. /PF
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Steini HU-45 Dragnót 15.415
Alls á Hvammstanga 15.415
Alda HU-112 Landb.lína 16.802
Ágúst GK-195 Lína 51.019
Guðmundur á Hópi Handfæri 11.014
Kristinn SH-812 Landb.lína 46.917
Sighvatur GK-57 Lína 101.897
Sturla GK-12 Lína 149.504
Tómas Þorv. GK-10 Lína 82.291
Valdimar GK-195 Lína 101.792
Addi afi GK-97 Landb.lína 9.428
Hamar SH-224 Landb.lína 43.221
Dagrún HU-121 Net 415
Flugalda ST-54 Landb.lína 2.950
Stella GK-23 Landb.lína 9.402
Muggur KE-57 Landb.lína 11.065
Sæfari HU-200 Landb.lína 1.758
Alls á Skagaströnd: 639.475
Bíldsey SH-65 Lína 36.597
Alls á Hofsósi 36.597
Klakkur SK-5 Botnvarpa 130.321
Vinur SK-22 Handfæri 153
Alls á Sauðárkróki 130.474
Nú er liðið rétt hálft ár síðan
lýðræðishátíðinni okkar lauk
með kosningum til Alþingis
þann 27. apríl þar sem
kjósendur völdu sér nýtt þing
og ríkisstjórn í landinu okkar
næstu fjögur ár. Nýir vendir
valdir til að sópa og taka til.
Nokkuð sem ætti að kveikja
eftirvæntingu um allt land.
En í dag hafa læðst að mér
áhyggjur. Þær kviknuðu fyrst
þegar ný ríkisstjórn ákvað að
skera niður tekjustofna ríkisins
um milljarða. Talað hafði verið
um að forgangsraða í auðlegðar-
gjaldi og skoða virðisauka á
ferðaþjónustuna, en að taka svo
hressilega af kökunni, er það
skynsamlegt miðað við stöðu
ríkissjóðs? Þá var aðildarferlið
að ESB stöðvað og án þess að
kalla þjóðina að því verki. Með
því var striki slegið yfir alla IPA-
vinnuna sem mun hafa miklar
neikvæðar afleiðingar í för með
sér m.a. í þeim byggðarlögum
NV-kjördæmis þar sem ótal
framsækin verkefni munu
væntanlega festast í bið eða falla
niður.
Fjárlagafrumvarpið stefnir
að hallalausum fjárlögum sem
er mjög gott mál. Því meira sem
ég les frumvarpið, því meira
efast ég þó um að núllinu verði
náð. Óvissutekjur eru þar all-
nokkrar og ég lýsi verulegum
áhyggjum af frekari flötum
niðurskurði. Það einfaldlega
virkar ekki miðað við raunveru-
lega stöðu, enda komið inn úr
kjarnanum t.d. í heilbrigðis- og
menntakerfi.
Sérstaklega kom á óvart að
sjá dregið úr niðurgreiðslum á
raforkuverði og til landflutn-
inga. Ég eiginlega neita að trúa
því að samfélagsleg ábyrgð
landsmanna taki ekki til þess að
reyna að jafna aðstöðu Íslend-
inga þegar kemur að þessum
málaflokkum. Ákveðin skref
hafa verið tekin til að rétta við
stöðu okkar sem búum utan
höfuðborgarsvæðisins og á
köldum svæðum en nú virðist
stefnan vera að auka þann
ójöfnuð á ný. Verulega smár
hluti af heildarfjármagni í
fjárlögum, en býsna stór fyrir
vasa einstaklinga og fyrirtækja á
þessum stöðum.
Svo eru það hagræðingar-
tillögurnar 111 sem miðast að
því að draga úr ríkisrekstri.
Margar þeirra hljóma vel, en þó
hef ég ákveðnar áhyggjur af því
að heldur sé gárað yfirborðið, en
ekki kíkt undir. Fullyrðingar um
að sameiningar einar og sér
muni draga úr fjárútlátum þarf
að skoða gaumgæfilega og þar
verður að koma inn faglegt
sjónarhorn. Frasinn um að skera
niður og auka þjónustu er veru-
lega hæpinn og þarfnast eigin-
lega útskýringar. Ekki kannski
síst þegar kostnað við ríkisstjórn
virðist eiga að auka um 23%.
Sérstaklega hef ég þó
áhyggjur af því fyrir mitt kjör-
dæmi að sjá til þess tekið að
fækka þurfi háskólum og
framhaldsskólum. Í kjördæm-
inu starfa þrír háskólar og tvö
háskólasetur. Á síðustu 10 árum
hafa verið reistir tveir nýir
framhaldsskólar auk þess sem
fimm ný „framhaldsskóla-útibú“
hafa risið. Ég átta mig vissulega á
því að skoða þarf menntakerfið
gaumgæfi-lega og vel má vera að
Frá Bjartri framtíð
MAGNÚS ÞÓR JÓNSSON SKRIFARAÐSENT
þar felist hagræðingarmögu-
leikar, sérstaklega á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem stutt er á
milli stofnana, en ég óttast það
að frekar sé horft til annarra
svæða. Þessir nýju skólar og
setur hafa gjörbreytt aðstöðu
fólks í námunda við þá og allur
niðurskurður ríkisins gagnvart
þeim er ávísun á að flytja
kostnað yfir á forráðamenn
barna þessara staða.
Þess vegna set ég hér línur á
blað. Því ég vil ekki sitja einn
uppi með þennan ugg. Í okkar
kjördæmi eru sex þingmenn í
ríkisstjórnarflokkunum. Við
eigum utanríkisráðherrann,
forseta Alþingis og aðstoðar-
mann forsætisráðherra sem
jafnframt stendur fyrir hag-
ræðingarhópnum.
Ég skora á þá að finna á ný
þær áherslur sem þeir töluðu
um á ferðum sínum fyrir
kosningar og rifji upp hvað það
var, og er, sem fólkið í
kjördæminu þeirra talaði fyrir.
Það er ennþá möguleiki að
endurskoða tekjustofna í stað
þess að sveifla niðurskurðar-
hnífnum af krafti og það er full
ástæða til þess að spyrja sig
reglulega hvað styður best við
bak samfélaganna okkar hér.
Starf þingmannsins er
göfugt starf. Það felst að mínu
mati 80% í því taka þátt í samtali
við sína þjóð og hin 20% eiga að
miða að því að vinna úr þeim
óskum. Ekki bara fyrir
kosningar, heldur alltaf.
Því lofaði Björt Framtíð og
hefur fylgt því eftir í störfum
sínum. Fjölgum endilega í því
liði!
Magnús Þór Jónsson
Í stjórn Bjartrar Framtíðar
Mánudagskvöldið 2.
desember gerðu
Sjálfsbjargarfélagar í
Skagafirði sér glaðan dag og
buðu til sín gestum, tilefnið
var að Alþjóðadagur fatlaðra
var daginn eftir og í tengslum
við hann þótti okkur
ánægjulegt að geta veitt
fimm aðilum viðurkenningu
fyrir gott aðgengi að þeirra
fyrirtæki og stofnun. Þau eru
Löngumýri, fræðslusetur
kirkjunnar, Verknámshús
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, KS verslun Hofsósi,
Miðgarður menningarhús og
Hjá Ernu Hársnyrtistofa.
Kvöldstundin var notaleg og
yfir fjörutíu manns mættu og
nutu yndislegrar dagskrár í
tónum og tali þar sem
tónlistarfólk söng og Solveig
Lára talaði um aðventuþanka.
Einu sinni áður höfum við veitt
svona viðurkenningar og
gátum þá veitt þær níu aðilum.
Við erum bjartsýn og
ánægð með það sem áunnist
hefur í aðgengismálum, ánægð
þegar gott samfélagsverk er
unnið í þágu okkar allra. Það er
nefnilega erfitt fyrir fólk sem
alltaf hefur getað borið sig
hiklaust um á tveimur
jafnfljótum að setja sig í spor
þeirra sem ekki geta það.
Það er alls ekki hægt að
ætlast til að fólk viti hvernig sé
best að standa að úrbótum
varðandi aðgengi fyrir fatlaða,
en það er hægt að ætlast til að
fólk leiti upplýsinga um það, og
í dag að muna eftir að aðgengið
þarf að vera fyrir okkur öll. Við
sem störfum í aðgengisnefnd
Sjálfsbjargar höfum átt gott
samstarf við sveitarfélagið og
það fólk sem kemur að sam-
göngubótum í sveitarfélaginu
okkar sem og annarra aðila.
Við höfum mætt skilningi og
vilja til að bæta úr því sem
betur má fara og það er
ánægjulegt. Það er hvati til að
gera betur og á næsta ári sjáum
við fram á að geta veitt
viðurkenningar til enn fleiri
aðila. Við höfum væntingar til
þess að Skagafjörður muni
skara fram úr varðandi aðgengi
fyrir alla. Að hreyfihamlað
ferðafólk geti notið þess sem
héraðið okkar hefur upp á að
bjóða, að við sjálf sem byggjum
þennan fallega fjörð getum
notið hans og þeirrar
menningar og þjónustu sem
hér er, óhindrað í framtíðinni.
Það er markmiðið, þangað
stefnum við.
Þakklæti fyrir kærleik í
verki fá tónlistarfólkið, Auður
Aðalsteinsdóttir, Sigvaldi
Gunnarsson og tvíeykið Fúsi
Ben og Vordísin. Solveigu Láru
þökkum við gott veganesti í
orðum inn í desember.
Gestum okkar þökkum við
fyrir komuna og Skagfirðinga-
búð fyrir veitingar.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
formaður Sjálfsbjargar í
Skagafirði
ÞURÍÐUR HARPA SIGURÐARDÓTTIR FRÁ LESENDUM
Við þökkum það sem
vel er gert og hlökkum
til næsta árs
Frá aðventukvöldi Sjálfsbjargar síðastliðið mánudagskvöld.