Feykir


Feykir - 05.12.2013, Page 4

Feykir - 05.12.2013, Page 4
4 Feykir 46/2013 LUMARÐU Á FRÉTT? Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra Hann Feykir okkar kemur út einu sinni í viku allan ársins hring, löðrandi í málefnum líðandi stundar með ofur áherslu á Norðurland vestra. Sendu okkur endilega fréttaskot, pistil, mynd eða bara ábendingu um ... eitthvað! Hafðu samband – síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is Við minnum einnig á Feykir.is – fullt net af fréttum og fíneríi alla daga! Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri Áskriftarsíminn er 455 7171 Aflahornið 24.-30. nóvember 2013 Tæplega 822 tonnum landað í vikunni Landað var rúmum 36 tonnum á Hofsósi, rúmum 639 tonnum á Skagaströnd, rúmum 130 tonnum á Sauðárkróki og rúmum 15 tonnum á Hvammstanga í liðinni viku. Alls gera þetta tæplega 822 tonn á Norðurlandi vestra. /PF SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Steini HU-45 Dragnót 15.415 Alls á Hvammstanga 15.415 Alda HU-112 Landb.lína 16.802 Ágúst GK-195 Lína 51.019 Guðmundur á Hópi Handfæri 11.014 Kristinn SH-812 Landb.lína 46.917 Sighvatur GK-57 Lína 101.897 Sturla GK-12 Lína 149.504 Tómas Þorv. GK-10 Lína 82.291 Valdimar GK-195 Lína 101.792 Addi afi GK-97 Landb.lína 9.428 Hamar SH-224 Landb.lína 43.221 Dagrún HU-121 Net 415 Flugalda ST-54 Landb.lína 2.950 Stella GK-23 Landb.lína 9.402 Muggur KE-57 Landb.lína 11.065 Sæfari HU-200 Landb.lína 1.758 Alls á Skagaströnd: 639.475 Bíldsey SH-65 Lína 36.597 Alls á Hofsósi 36.597 Klakkur SK-5 Botnvarpa 130.321 Vinur SK-22 Handfæri 153 Alls á Sauðárkróki 130.474 Nú er liðið rétt hálft ár síðan lýðræðishátíðinni okkar lauk með kosningum til Alþingis þann 27. apríl þar sem kjósendur völdu sér nýtt þing og ríkisstjórn í landinu okkar næstu fjögur ár. Nýir vendir valdir til að sópa og taka til. Nokkuð sem ætti að kveikja eftirvæntingu um allt land. En í dag hafa læðst að mér áhyggjur. Þær kviknuðu fyrst þegar ný ríkisstjórn ákvað að skera niður tekjustofna ríkisins um milljarða. Talað hafði verið um að forgangsraða í auðlegðar- gjaldi og skoða virðisauka á ferðaþjónustuna, en að taka svo hressilega af kökunni, er það skynsamlegt miðað við stöðu ríkissjóðs? Þá var aðildarferlið að ESB stöðvað og án þess að kalla þjóðina að því verki. Með því var striki slegið yfir alla IPA- vinnuna sem mun hafa miklar neikvæðar afleiðingar í för með sér m.a. í þeim byggðarlögum NV-kjördæmis þar sem ótal framsækin verkefni munu væntanlega festast í bið eða falla niður. Fjárlagafrumvarpið stefnir að hallalausum fjárlögum sem er mjög gott mál. Því meira sem ég les frumvarpið, því meira efast ég þó um að núllinu verði náð. Óvissutekjur eru þar all- nokkrar og ég lýsi verulegum áhyggjum af frekari flötum niðurskurði. Það einfaldlega virkar ekki miðað við raunveru- lega stöðu, enda komið inn úr kjarnanum t.d. í heilbrigðis- og menntakerfi. Sérstaklega kom á óvart að sjá dregið úr niðurgreiðslum á raforkuverði og til landflutn- inga. Ég eiginlega neita að trúa því að samfélagsleg ábyrgð landsmanna taki ekki til þess að reyna að jafna aðstöðu Íslend- inga þegar kemur að þessum málaflokkum. Ákveðin skref hafa verið tekin til að rétta við stöðu okkar sem búum utan höfuðborgarsvæðisins og á köldum svæðum en nú virðist stefnan vera að auka þann ójöfnuð á ný. Verulega smár hluti af heildarfjármagni í fjárlögum, en býsna stór fyrir vasa einstaklinga og fyrirtækja á þessum stöðum. Svo eru það hagræðingar- tillögurnar 111 sem miðast að því að draga úr ríkisrekstri. Margar þeirra hljóma vel, en þó hef ég ákveðnar áhyggjur af því að heldur sé gárað yfirborðið, en ekki kíkt undir. Fullyrðingar um að sameiningar einar og sér muni draga úr fjárútlátum þarf að skoða gaumgæfilega og þar verður að koma inn faglegt sjónarhorn. Frasinn um að skera niður og auka þjónustu er veru- lega hæpinn og þarfnast eigin- lega útskýringar. Ekki kannski síst þegar kostnað við ríkisstjórn virðist eiga að auka um 23%. Sérstaklega hef ég þó áhyggjur af því fyrir mitt kjör- dæmi að sjá til þess tekið að fækka þurfi háskólum og framhaldsskólum. Í kjördæm- inu starfa þrír háskólar og tvö háskólasetur. Á síðustu 10 árum hafa verið reistir tveir nýir framhaldsskólar auk þess sem fimm ný „framhaldsskóla-útibú“ hafa risið. Ég átta mig vissulega á því að skoða þarf menntakerfið gaumgæfi-lega og vel má vera að Frá Bjartri framtíð MAGNÚS ÞÓR JÓNSSON SKRIFARAÐSENT þar felist hagræðingarmögu- leikar, sérstaklega á höfuðborg- arsvæðinu þar sem stutt er á milli stofnana, en ég óttast það að frekar sé horft til annarra svæða. Þessir nýju skólar og setur hafa gjörbreytt aðstöðu fólks í námunda við þá og allur niðurskurður ríkisins gagnvart þeim er ávísun á að flytja kostnað yfir á forráðamenn barna þessara staða. Þess vegna set ég hér línur á blað. Því ég vil ekki sitja einn uppi með þennan ugg. Í okkar kjördæmi eru sex þingmenn í ríkisstjórnarflokkunum. Við eigum utanríkisráðherrann, forseta Alþingis og aðstoðar- mann forsætisráðherra sem jafnframt stendur fyrir hag- ræðingarhópnum. Ég skora á þá að finna á ný þær áherslur sem þeir töluðu um á ferðum sínum fyrir kosningar og rifji upp hvað það var, og er, sem fólkið í kjördæminu þeirra talaði fyrir. Það er ennþá möguleiki að endurskoða tekjustofna í stað þess að sveifla niðurskurðar- hnífnum af krafti og það er full ástæða til þess að spyrja sig reglulega hvað styður best við bak samfélaganna okkar hér. Starf þingmannsins er göfugt starf. Það felst að mínu mati 80% í því taka þátt í samtali við sína þjóð og hin 20% eiga að miða að því að vinna úr þeim óskum. Ekki bara fyrir kosningar, heldur alltaf. Því lofaði Björt Framtíð og hefur fylgt því eftir í störfum sínum. Fjölgum endilega í því liði! Magnús Þór Jónsson Í stjórn Bjartrar Framtíðar Mánudagskvöldið 2. desember gerðu Sjálfsbjargarfélagar í Skagafirði sér glaðan dag og buðu til sín gestum, tilefnið var að Alþjóðadagur fatlaðra var daginn eftir og í tengslum við hann þótti okkur ánægjulegt að geta veitt fimm aðilum viðurkenningu fyrir gott aðgengi að þeirra fyrirtæki og stofnun. Þau eru Löngumýri, fræðslusetur kirkjunnar, Verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, KS verslun Hofsósi, Miðgarður menningarhús og Hjá Ernu Hársnyrtistofa. Kvöldstundin var notaleg og yfir fjörutíu manns mættu og nutu yndislegrar dagskrár í tónum og tali þar sem tónlistarfólk söng og Solveig Lára talaði um aðventuþanka. Einu sinni áður höfum við veitt svona viðurkenningar og gátum þá veitt þær níu aðilum. Við erum bjartsýn og ánægð með það sem áunnist hefur í aðgengismálum, ánægð þegar gott samfélagsverk er unnið í þágu okkar allra. Það er nefnilega erfitt fyrir fólk sem alltaf hefur getað borið sig hiklaust um á tveimur jafnfljótum að setja sig í spor þeirra sem ekki geta það. Það er alls ekki hægt að ætlast til að fólk viti hvernig sé best að standa að úrbótum varðandi aðgengi fyrir fatlaða, en það er hægt að ætlast til að fólk leiti upplýsinga um það, og í dag að muna eftir að aðgengið þarf að vera fyrir okkur öll. Við sem störfum í aðgengisnefnd Sjálfsbjargar höfum átt gott samstarf við sveitarfélagið og það fólk sem kemur að sam- göngubótum í sveitarfélaginu okkar sem og annarra aðila. Við höfum mætt skilningi og vilja til að bæta úr því sem betur má fara og það er ánægjulegt. Það er hvati til að gera betur og á næsta ári sjáum við fram á að geta veitt viðurkenningar til enn fleiri aðila. Við höfum væntingar til þess að Skagafjörður muni skara fram úr varðandi aðgengi fyrir alla. Að hreyfihamlað ferðafólk geti notið þess sem héraðið okkar hefur upp á að bjóða, að við sjálf sem byggjum þennan fallega fjörð getum notið hans og þeirrar menningar og þjónustu sem hér er, óhindrað í framtíðinni. Það er markmiðið, þangað stefnum við. Þakklæti fyrir kærleik í verki fá tónlistarfólkið, Auður Aðalsteinsdóttir, Sigvaldi Gunnarsson og tvíeykið Fúsi Ben og Vordísin. Solveigu Láru þökkum við gott veganesti í orðum inn í desember. Gestum okkar þökkum við fyrir komuna og Skagfirðinga- búð fyrir veitingar. Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Sjálfsbjargar í Skagafirði ÞURÍÐUR HARPA SIGURÐARDÓTTIR FRÁ LESENDUM Við þökkum það sem vel er gert og hlökkum til næsta árs Frá aðventukvöldi Sjálfsbjargar síðastliðið mánudagskvöld.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.