Fréttablaðið - 15.05.2018, Síða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Haukur
Örn Birgisson
BAkþAnkAR
Salöt frá
649 kr.
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Á hverju einasta ári gengur okkur illa í Eurovision og á hverju einasta ári skiljum við
ekkert í hvers vegna. Ég viðurkenni
að ég læt þetta hafa töluverð áhrif á
mig. Ég er oftar en ekki sannfærður
um að íslenska lagið sigri og ég
botna ekkert í evrópsku samferða-
fólki mínu þegar úrslitin liggja fyrir.
Þetta fólk veit greinilega ekkert um
tónlist og leyfir okkur ekki einu
sinni að komast upp úr riðlinum.
Algjör skandall og stælar.
Ein útbreiddasta kenningin
varðandi úrslitin ár hvert er sú að
áhorfendur munu alltaf gefa full-
trúum nágrannaþjóða sinna flest
stig. Þannig eiga þjóðirnar með
flestu landamærin mestu mögu-
leikana á sigri. Nokkuð einfalt. Við
Íslendingar bölsótumst yfir öllum
þessum Austur-Evrópuþjóðum og
grenjum á sama tíma yfir því að
búa á eyju.
Þessi útskýring stenst hins vegar
varla skoðun ef horft er til liðinnar
helgar, þar sem hin ísraelska Netta
söngkona kom, sá og sigraði. Í
fyrsta lagi er óhætt að fullyrða
að Ísrael njóti ekki sérstaklega
mikillar pólitískrar samúðar hjá
Evrópubúum og í öðru lagi þá
á Ísrael ekki landamæri að einu
einasta Evrópuríki. Landið er ekki
einu sinni í Evrópu, ef út í það
er farið, en hefur samt sem áður
sigrað í Eurovision í fjórgang.
Þótt mér sé fyrirmunað að skilja
hvernig ísraelska lagið fór að því
að sigra þá getum við Íslendingar
að minnsta kosti fagnað því að
nágrannakenningin er hrunin til
grunna. Ætli líklegasta skýringin
sé ekki bara sú að fólk kýs það
atriði sem því finnst skemmtileg-
ast? Vandamál okkar Íslendinga
og áskorun felst þá bara í því að
finna slíkt atriði. Svo höldum við
að sjálfsögðu áfram að gefa Norð-
mönnum, Svíum eða Dönum tólf
stig.
Góðir grannar
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
4
-8
B
7
0
1
F
C
4
-8
A
3
4
1
F
C
4
-8
8
F
8
1
F
C
4
-8
7
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K