Sveitarstjórnarmál - 01.12.2014, Qupperneq 12
12
Hjálmar segir ætið gott þegar vinnu við fjárhagsáætlun ljúki því þá sé búið að
mynda skýran ramma fyrir komandi ár. „Eftir
gerð og samþykkt fjárhagsáætlunarinnar veit
ég sem formaður umhverfis- og skipulags-
nefndar að til verður fjármagn til þess að fara
í ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir, hvort
sem um er að ræða rekstur á götum, gerð
hjólastíga, lagfæringar á gatnamótum og
gangbrautum, lagfæringar á torgum og
þannig mætti lengi telja.”
Hann segir að haldið verði áfram með
hverfaskipulagið á næsta ári. „Ætlunin er
að ljúka við gerð hverfisskipulags fyrir fimm
borgarhluta sem verður mjög mikilvæg
vinna. Ég hlakka til hennar vegna þess að
hún gengur mikið út á að gera hverfin sjálf-
bærari með því að færa þjónustuna aftur inn
í þau.“
Hátt í 450 nýjar íbúðir í
Holtunum
En víkjum þá að húsnæðismálum. Hjálmar
segir mörg spennandi uppbyggingarverkefni
í Reykjavík. „Við getum byrjað á hinni svo-
kölluðu Vogabyggð inni við Elliðaárósa þar
sem fyrirhugað er að byggja blandað íbúða-
svæði. Nú er búið að greina að í fyllingu tím-
ans gætu byggst um 1.100 íbúðir þar og ef
miðað er við 2,4 íbúa á íbúð þá gæti risið
þarna allt að 2.500 manna byggðarlag.”
Hann segir þetta fyrsta stóra verkefnið
sem farið verður í en síðan muni snemma á
næsta ári ljúka stórum uppbyggingarverkefn-
um og góðum þéttingarverkefnum. „Þá er
ég að tala um Hampiðjureitinn við Stakkholt
þar sem 130 íbúðir eru að verða tilbúnar og
síðan er Búseti að vinna af fullum krafti að
byggingu um 210 íbúða við Einholt og Þver-
holt þar skammt frá. Einnig er hafin bygging
100 stúdentaíbúða við Brautarholt. Þarna eru
hátt í 450 nýjar íbúðir neðst í Holtunum fyrir
ofan Laugaveg að koma í gagnið.“
Uppsöfnuð þörf fyrir húsnæði
Hjálmar bendir á að þörfin hafi verið orðin
uppsöfnuð og skortur á húsnæði farinn að
Skipulagsmálin eru
mikilvægustu mál
sveitarfélaga
Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður
umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.
Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar spjallar við Sveitarstjórnarmál að þessu sinni. Hjálmar er einnig
formaður svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins og situr í skipulagsnefnd
samtaka sveitarfélaga. Skipulagsmálin ber því óneitanlega á góma en fyrst var talinu
vikið að þeim tímamótum að gengið hefur verið frá fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir
árið 2015.
Skipulagsmál