Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2014, Blaðsíða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2014, Blaðsíða 17
17 áfram, „get ég sagt að þegar ég var að byrja í sveitarstjórnarmálum árið 2010 lagði ég mikla áherslu á samráð og jafnvel samein- ingu sveitarfélaganna og hef ekki breytt um skoðun. Þetta er sameiginlegt íbúa- og at- vinnusvæði, sama vegakerfið og sama um- hverfið. Þetta er í rauninni orðin ein borg og það er styrkur höfuðborgarsvæðisins að líta á sig sem slíka. Ég get nefnt að þegar Hafnar- fjörður og Kópavogur eru auglýstir sem áfangastaðir fyrir ferðamenn þá fylgir það með að þeir tilheyri Reykjavíkursvæðinu vegna þess að nafnið Reykjavík þykir mikil- vægt kennileiti í hugum fólks.“ „Metró“-svæði fremur en algjör sameining Hjálmar segir ótrúlegt að hafa komist að því að engar upplýsingar lágu fyrir í einu sveitar- félagi um hvað var verið að byggja mikið í næsta sveitarfélagi. Framkvæmdir hafi frem- ur einkennst af blindri samkeppni en sam- starfi og síðan hafi margir framkvæmdaaðilar farið beint á hausinn. „Menn verða að gæta þess að mál þróist aldrei aftur með þessum hætti og að mínu viti eru til margar leiðir að sameiningu. Í Toronto í Kanada var farið í algjöra samein- ingu þar sem fjöldamörg sveitarfélög voru sameinuð borginni. Í dag eru mjög skiptar skoðanir um hvort þessi sameining hafi tekist vel til. Þarna varð árekstur tveggja menn- ingarheima sem eiga að geta verið til hlið við hlið; annars vegar borgarbúanna og hins vegar íbúa dreifbýlla úthverfa og útborga. Í Portland á vesturströnd Bandaríkjanna var farin önnur leið og að einhverju leyti í Dan- mörku. Þar voru gerð eins konar „Metró“- svæði sem eiga sér sameiginlega yfirstjórn í ákveðnum málaflokkum á borð við skipulags- og umhverfismál, almenningssamgöngumál og sorphirðumál sem eru komin inn í byggðasamlögin hér. Við erum þannig búin að taka ákveðin skref yfir í þetta „Metró“- fyrirkomulag. Ef staða skipulagsstjóra höfuð- borgarsvæðisins verður fest í sessi til fram- búðar, sem ég vona að verði gert, þá er það enn eitt skrefið. Eftir að hafa kynnt mér þessi mál erlendis þá er ég á þeirri skoðun að við eigum að fara þessa leið sameiningar, Portland-leiðina en ekki Toronto-leiðina um algjöra sameiningu,“ segir Hjálmar Sveinsson að lokum. Tónlistarhúsið Harpa setur mikinn svip á miðborgina. Mynd: BB.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.