Muninn - 01.02.1910, Síða 6
2
MttNINN
þá vertu drykkjumaður, og þú munt skjótt verða
öreigi og ekki eiga einn skilding í vasanum.
YiljirSu að skyldulið þitt líði sult og kulda,
þá vertu drykkjumaður; þá fær þú fljótast fyrir-
farið öllum möguleikum til þess að ala önn fyr-
ir því.
Viljirðu verða leiksoppur í höndum var-
rnenna, þá vertu drykkjumaður, því með því
gerir þú þeim hægra fyrir.
Yiljirðu láta ræna þig, þá vertu drykkjumað-
ur; þá gefur þú hús þitt og vasa þína á vald
þjófurn.
Viljirðu sljófga skilningarvit þín, þá vertu
drykkjumaður, og þú munt skjótt verða heimsk-
ari en asni.
Viljirðu fyrirfara sáluhjálp þinni, þá vertu
drykkjumaður; því vanhirt sál er áreiðanlega
útilokuð frá himnaríki.
Viljurðu fremja sjálfsmorð, þá vertu diykkju-
maður, því að það er ráðið til að steypa sér í
örvæntingu.
Sértu gæddur miklum líkamsstyrk og góðri
heilsu, og sé þér ami að þeim himnesku gjöfum,
þá vertu drykkjumaður; því jafnvoldugur fjand-
maður sem brennivínið mun skjótt yfirvinna þær.