Muninn - 01.02.1910, Page 34
Um myndirnar.
Br i Borg])ór Jósefsson bæjargjaldkeri í
Reykjavík, hefir verið ritari stórstúkunnar sam-
fleytt frá 1893 tii 1909, og ætíð gegnt þessu
vandasama embætti með hinni mestu iipurð og
samvizkusemi.
Hann er einn af stofnendum Umdæmisstúk-
unnar nr. 1 og var um tíma ritari hennar. Hann
hefir verið meðlimur í stúkunni Einingin nr. 14
síðan 10. janúar 1886 og mjög oft Æ. T.
hennar, og mundu fáir hafa jafnast á við br.
Borgþór í því embætti. 10. jan. 1909 hafði
hann verið 200 ársfjórðunga í embætti; en til
þess að geta það, hefir hann orðið að vera í
tveimur embættum samtímis, og sýnir það bæði
viljaþrek hans og traust annara. Br. Borgþór
er óefað einn af allra starfsömustu templurum
okkar héi' á landi.