Fréttablaðið - 28.05.2018, Qupperneq 4
SUMARTILBOÐ Á
LONGITUDE
TILBOÐSVERÐ
5.690.000 KR.
LISTAVERÐ 6.390.000 KR.
TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI.
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI - ÞVERHOLTI 6 - 270 MOSFELLSBÆR- SÍMI: 534 4433
WWW.JEEP.IS - WWW.ISBAND.IS - ISBAND@ISBAND.IS - OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 - LAUGARDAGA 12-16
6,
13
%
4,58%
8,1
6%
30,77 %
4,25%
6,
37
%6,
13
%
7,7
3%
25,88% n Aðrir flokkar*
n Viðreisn
n Sjálfstæðisflokkurinn
n Flokkur fólksins
n Sósíalistaflokkurinn
n Miðflokkurinn
n Píratar
n Samfylkingin
n Vinstri græn
✿ Borgarstjórn Reykjavíkur 2018 - 2022
C Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
C Pawel Bartoszek
D Eyþór Arnalds
D Hildur Björnsdóttir
D Valgerður Sigurðardóttir
D Egill Þór Jónsson
D Marta Guðjónsdóttir
D Katrín Atladóttir
D Örn Þórðarson
D Björn Gíslason
F Kolbrún Baldursdóttir
J Sanna Magdalena Mörtudóttir
M Vigdís Hauksdóttir
P Dóra Björt Guðjónsdóttir
P Sigurbjörg Ósk Haraldsdóttir
S Dagur B. Eggertsson
S Heiða Björg Hilmisdóttir
S Skúli Helgason
S Kristín Soffía Jónsdóttir
S Hjálmar Sveinsson
S Sabine Leskopf
S Guðrún Ögmundsdóttir
V Líf Magneudóttir
*Framsóknarflokkurinn, Íslenska þjóðfylkingin, Höfuðborgarlistinn, Kvennahreyfingin,
Borgin okkar - Reykjavík, Alþýðufylkingin, Karlalistinn og Frelsisflokkurinn
Fleiri konur en nokkru sinni fyrr
náðu kjöri til sveitarstjórna í kosn-
ingum helgarinnar. Konur eru nú
um 47 prósent sveitarstjórnar-
manna en voru um 44 prósent fyrir
fjórum árum.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisstofu, er að
vonum ánægð ef hlutfall kynjanna
er að jafnast enn frekar í sveitar-
stjórnum landsins.
„Samkvæmt fyrstu skoðun virðist
vera að draga saman með kynjunum
en það er afar jákvætt að heildar-
hlutfallið er að jafnast. Þetta er því
að þokast í rétta átt,“ segir Katrín
Björg. „Hins vegar munum við fara
ítarlega ofan í þessar tölur og skoða
hvernig þetta lítur út í hverju sveit-
arfélagi fyrir sig. Kynjaskiptingin er
auðvitað mismunandi eftir sveitar-
félögunum.“
Katrín segir jafna stöðu kynjanna
innan sveitarfélaga auðvitað æski-
lega. „Þó við séum auðvitað ánægð
með þetta munum við einnig skoða
stöðu sveitarstjóra vítt og breitt um
landið. Þar er heilmikið sem þarf að
horfa til en einn af hverjum fjórum
sveitarstjórum á síðasta kjörtíma-
bili var kona. Það verður að segjast
að það hlutfall er ekki eins ákjósan-
legt og hlutfall kvenna inni í sveitar-
stjórnunum sjálfum,“ bætir Katrín
Björg við. – sa
Konur styrkja stöðu sína í sveitarstjórnum víðs vegar um land
Viðræður um myndun nýs meiri-
hluta í Árborg án aðkomu Sjálfstæð-
isflokksins eru hafnar. Frá þessu var
greint í tilkynningu til fjölmiðla.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði hrein-
um meirihluta sínum í gær og hefur
nú fjóra kjörna fulltrúa í stað fimm
áður. Samfylkingin fékk tvo kjörna,
Framsókn og óháðir, Áfram Árborg
og Miðflokkurinn fengu einn mann
hvert framboð.
Í tilkynningunni segir að úrslit
kosninga sýni að kjósendur í
Árborg hafi hafnað áframhaldandi
meirihluta Sjálfstæðisflokksins og
því eðlilegt að látið sé reyna á að
nýr meirihluti verði myndaður án
aðkomu hans. – jhh
Meirihluti að
fæðast í Árborg
Kosningaþátttaka var ívið betri í
Reykjavíkurborg en hún var fyrir
fjórum árum. Hún var rétt rúm-
lega 67 prósent. Í kosningunum 31.
maí 2014 var kosningaþátttakan
rétt tæplega 63 prósent og var um
67 prósent að meðaltali yfir landið
allt. Kosningaþátttakan í sveitar-
stjórnarkosningum er almennt
lakari en í alþingiskosningum en í
þingkosningunum haustið 2017 var
hún 81,2 prósent. – jhh
Fleiri kusu nú
en árið 2014
Um 67 prósent kusu í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Forsvarsmenn framboð-
anna telja úrslit kosninganna
þýða að meirihlutanum hafi
verið hafnað.
Viðræður oddvita flokkanna sem
náðu inn í borgarstjórn munu halda
áfram í dag en óformlegar þreifingar
áttu sér stað í gær. Fráfarandi meiri-
hluti telur eðlilegast að sækja sér
liðsstyrk til Viðreisnar og halda
áfram meirihlutasamstarfi í borg-
inni. Að mati aðila innan fráfarandi
meirihluta er lítið sem ber í milli hjá
núverandi meirihluta og borgar-
stjórnarflokki Viðreisnar í flestum
stóru kosningamálunum sem bar á
góma í kosningabaráttunni.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, odd-
viti Viðreisnar, er í afar ákjósanlegri
stöðu til að mynda nýjan meirihluta
og hefur í raun flest spil á hendi sér
eins og staðan er núna.
Sjálfstæðisflokkurinn er aftur
stærsti flokkurinn í borgarstjórn
eftir þessar kosningar, hlaut yfir
þrjátíu prósenta fylgi og átta borgar-
fulltrúa kjörna.
Ætli Sjálfstæðisflokkurinn hins
vegar að komast í meirihluta í
borgarstjórn þarf hann á liðsinni
Viðreisnar að halda og gæti því
þurft að gefa mikið eftir í viðræðum
við Viðreisn.
Það sem kemur þó helst í veg fyrir
þann meirihluta, að mati heim-
ildarmanna Fréttablaðsins, er sú
staða að hugmyndir Viðreisnar og
Miðflokksins eru algjörlega á önd-
verðum meiði þegar kemur að fram-
tíðarþróun borgarinnar í skipulags-
og samgöngumálum.
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
í stjórnmálafræðum við viðskipta-
og raunvísindasvið Háskólans á
Akureyri, segir stöðu Viðreisnar
vera afar góða. „Samfylkingin er að
tapa fylgi í kosningunum og kemur
kannski ögn særð út úr þessum
kosningum. Því yrði það erfitt fyrir
Samfylkinguna að setja einhverja
afarkosti um að flokkurinn haldi
Meirihlutaviðræður oddvita í
Reykjavík gætu hafist í dag
Fráfarandi meirihluti Samfylkingar, VG og Pírata kappkostar að fá Viðreisn til fylgilags við sig á komandi
kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn er í þrengri stöðu við myndun meirihluta þrátt fyrir að vera stærsti
flokkurinn. Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki útilokað að Samfylkingin láti stól borgarstjóra frá sér.
stóli borgarstjóra,“ segir Grétar.
„Það verður áhugavert að sjá
hvernig spilast úr þessu á næstu
dögum en málefnalega sýnist manni
svona í grófum dráttum að Viðreisn
ætti auðveldara með að samsama
sig þeim meirihluta sem var við völd
á síðasta kjörtímabili.“
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík, má þakka
fjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 23
að hún hafi náð kjöri inn í borgar-
stjórn. Líf er sextándi borgarfulltrú-
inn í Reykjavík og hefði ekki náð inn
í borgarstjórn væru borgarfulltrúar
en 15 talsins.
VG hlaut ekki góða kosningu í
sveitarstjórnarkosningum laugar-
dagsins og missti til að mynda full-
trúa sína í Hafnarfirði og í Kópavogi.
Einnig má nefna að flokkurinn náði
ekki að manna framboð í kosning-
unum á Akranesi. Grétar telur aftur
á móti að þessar kosningar muni
ekki hafa mikil áhrif á flokkinn í
ríkisstjórnarsamstarfi við Framsókn
og Sjálfstæðisflokk.
sveinn@frettabladid.is
60
þúsund manns greiddu at-
kvæði í Reykjavík í kosning-
unum á laugardaginn.
Borgarfulltrúi VG má
þakka fjölgun borgarfulltrúa
að flokkurinn hafi náð
einum fulltrúa inn.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
Konur eru nú um 47
prósent sveitastjórnar-
manna, en voru 44 prósent.
2 8 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
C
-1
4
1
4
1
F
E
C
-1
2
D
8
1
F
E
C
-1
1
9
C
1
F
E
C
-1
0
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K