Fréttablaðið - 28.05.2018, Side 14
WWW.GÁP.IS
GÁP | FAXAFEN 7 | 108 REYKJAVÍK | 520-0200
LÆGÐ YFIR LANDINU?
KROSS REIÐHJÓL Á LÆGÐARVERÐI!
20-45% AFSLÁTTUR
2 8 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
atvinnukylfingur úr GKG, lék frá-
bært golf um helgina sem skilaði
honum 7. sæti á móti í Áskorenda-
mótaröð Evrópu í golfi í Tékklandi
um helgina.
Lék Birgir Leifur alla fjóra hring-
ina undir pari en hann lauk leik á
mótinu á þrettán höggum undir
pari.
Fékk hann aðeins einn skolla á
lokahringnum á níundu braut vall-
arins en hann var duglegur að sækja
fugla. Fékk hann samtals sjö fugla á
deginum sem skilaði honum í hús
á sex höggum undir pari á lokadegi
mótsins.
Var það besti hringur hans á
mótinu en hann lék alla fjóra dag-
ana undir pari. Fékk hann samtals
tuttugu fugla á mótinu og sjö skolla
en Minkyu Kim frá Suður-Kóreu
stóð uppi sem sigurvegari á tuttugu
höggum undir pari.
Fyrir sjöunda sætið fékk Birgir
Leifur tæplega 5.200 evrur, eða um
640 þúsund íslenskar krónur. Annar
íslenskur kylfing-
ur tók þátt,
Axel Bóas-
son úr GK,
e n A xe l
komst ekki
í gegnum
n i ð u r -
skurðinn.
– kpt
Frábær hringur
hjá Birgi Leifi
KÖRFUBOLTI Paul Hallgrimsson
rekur skiptinemasamtökin Global
Horizons sem hafa komið yfir 8.000
unglingum í menntaskóla í Banda-
ríkjunum. Hann var staddur hér á
landi um helgina þar sem hann hitti
tilvonandi skiptinema. Hann kom
fyrst hingað til lands 1965.
Paul, reffilegur karl á 73. aldursári,
hefur sterk tengsl við Ísland. Afi hans
sigldi frá Akureyri til Seattle 1882.
Þar kynntist hann ömmu Pauls sem
var frá Ísafirði.
Paul, sem er sonur tónlistarmanns,
er frá Seattle-svæðinu og býr þar
í dag. Hann bjó lengi í Þýskalandi
þar sem hann starfaði sem körfu-
boltaþjálfari. Síðustu 40 árin hefur
hann hjálpað ungum og efnilegum
krökkum að komast að í banda-
rískum menntaskólum.
Margir Íslendingar hafa farið vest-
ur um haf á vegum Global Horizons,
þ. á m. körfuboltamennirnir Hlynur
Bæringsson, Helgi Már Magnússon
og Jakob Örn Sigurðarson. Faðir þess
síðastnefnda, Sigurður Hjörleifsson,
hefur starfað með Paul í um 20 ár.
„Við erum ekki með marga krakka.
Við viljum frekar gæði en magn,“
sagði Paul í samtali við Fréttablaðið.
Hann hefur minnkað við sig undan-
farin ár en þegar mest lét hjálpaði
hann 500 krökkum á ári að komast
að í bandarískum menntaskólum.
Aðstoðaði landsliðsþjálfara
Þýskalands
Sá þekktasti sem Paul hefur komið
að vestanhafs er Þjóðverjinn Detlef
Schrempf sem átti langan og far-
sælan feril í NBA-deildinni og var
einn af fyrstu Evrópubúunum sem
slógu í gegn þar. Paul kom Schrempf
að í Centralia-menntaskólanum í
Washington, hjá gamla þjálfaranum
sínum Ron Brown, sem stýrði körfu-
boltaliði skólans í 56 ár.
Annar þekktur körfuboltamaður
sem Paul kom til Bandaríkjanna er
Henrik Rödl, þjálfari þýska karla-
landsliðsins í körfubolta. Hann var í
menntaskóla í Norður-Karólínu, lék
undir stjórn Deans Smith í Norður-
Karólínuháskólanum og átti svo
flottan feril með ALBA Berlin og
þýska landsliðinu.
„Við erum ekki bara með körfu-
boltakrakka. Við erum með
söngvara, tónlistarfólk, fótbolta-
og hestakrakka. Við leitum að
krökkum sem hafa ástríðu fyrir
áhugamáli sínu og finnum þeim
skóla og fjölskyldu við hæfi,“
sagði Paul um starfsemi Global
Horizons.
Hann hefur hrifist af hugarfari
þeirra íslensku krakka sem hann
hefur unnið með í gegnum tíðina.
„Íslensku krakkarnir eru frá-
bærir. Það er lítið vesen á þeim.
Stundum taka unglingar vondar
ákvarðanir en á heildina litið
hefur þetta gengið vel. Við veljum
skiptinema eftir tilfinninga-
greind. Ég hef sagt nei við úrvals
nemendum sem eru hrokafullir og
með litla aðlögunarhæfni.“
ingvithor@frettabladid.is
Íslensku unglingarnir hafa
reynst mér vel í gegnum tíðina
Paul Hallgrimsson hefur undanfarna fjóra áratugi hjálpað efnilegum krökkum að komast í menntaskóla í
Bandaríkjunum. Meðal þeirra eru íslenskir landsliðsmenn í körfubolta og einn af fyrstu Evrópubúunum
sem sló í gegn í NBA. Hann hefur hrifist af viðhorfi íslenskra krakka og metnaði þeirra til að bæta sig.
Rúrik
Gíslason
Aldur:
30 ára
Staða:
Kantmaður
Félag:
Sandhausen
Landsleikir:
45/3
19
Við erum ekki með
marga krakka. Við
viljum frekar gæði en magn.
Paul Hallgrimsson
Paul, sem á íslenskar rætur og rekur ættir sínar til Vestur-Íslendinga, ásamt Sigurði Hjörleifssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
C
-0
A
3
4
1
F
E
C
-0
8
F
8
1
F
E
C
-0
7
B
C
1
F
E
C
-0
6
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K