Fréttablaðið - 28.05.2018, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
2 8 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
VICENZA
svefnsófi
Sérlega vandaður svefnsófi. Dökkgrátt,
grátt, dökkblátt og ljóst slitsterkt áklæði.
Stærð: 185 x 94 x 84 cm. Svefnpláss: 140 x 200 cm.
Fullt verð: 289.900 kr.
Aðeins 144.950 kr.
50%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ
SHAPE DELUXE
og Pertect T stillanlegur botn
Shape Deluxe 90 x 200 heilsudýna og Perfect T
stillanlegur botn. Meðal eiginleika Perfect T er að hann
er með nuddi, þráðlausri fjarstýringu, USB-tengi, LED
lýsinguog tveimur mótorum.
Fullt verð: 248.900 kr.
Aðeins 201.080 kr.
30%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ
af Shape Delux dýnu
15% af botni
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Vikutilboð
25. til 31. maí
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Við erum nú skuldlaus nema við bankann sem er alveg rólegur svo já, það er hátíð. Við þurfum nú að
selja miða til að borga hátíð þessa
árs,“ segir Karl Óttar Pétursson,
framkvæmdastjóri þungarokks
hátíðarinnar Eistnaflugs.
Á síðasta fundi bæjarráðs Fjarða
byggðar var ákveðið að fella niður
rúmlega milljón króna skuld
hátíðarinnar við bæinn og fá starfs
menn Eistnaflugs afnot af Kirkjumel
meðan á hátíðinni stendur. „Þetta er
gríðarlegt fagnaðarefni fyrir hátíð
ina. Hann lánar okkur líka hús
næði,“ segir Erna Björk Baldursdótt
ir, kynningarstjóri hátíðarinnar.
„Eftir fjárhagslega skipulagningu
síðastliðið haust höfum við aldr
ei stefnt á neitt annað en að halda
hátíðina og staðið við það allar
götur síðan. Hátíðabransinn á
Íslandi er erfiður og þetta er hark,
vissulega er það léttir fyrir alla sem
koma að máli að Fjarðabyggð hafi
tekið þessa ákvörðun og með því
létt róðurinn þetta árið og þökkum
við þeim það,“ segir hún þakklát.
Skipulagningu er nú lokið og
framkvæmdin í fullum gangi.
Síðasta hljómsveitin var tilkynnt í
vikunni, færeyska hljómsveitin Týr
slær á rokkstrengi en hún hefur ekki
spilað hér á landi í áratug. Slæst hún
í hóp annarra erlendra listamanna
sem koma fram í sumar en ber þar
helst að nefna Kreator, Anathema,
Watain og Batushka og er þá heild
arfjöldi listamanna orðinn 41.
Bandarísku þungarokkshljóm
sveitirnar Slayer og Guns N’ Roses
kíkja á Klakann í sumar en þrátt
fyrir það er bjart yfir Eistnaflugs
fólki. „Við búumst við svipuðum
fjölda og í fyrra, eða um 1.500
manns. Miðasalan er í fullum
gangi, við treystum á góða sölu
fram að hátíð og að Austfirðingar
nær og fjær komi til okkar og upplifi
alþjóðlega tónlistarhátíð í heima
byggð.
Það er ljóst að það er óvanalega
mikið í boði í sumar sem hefur
áhrif, Secret Solstice þar sem Slayer
spilar, Guns N’ Roses, Billy Idol og
ekki má gleyma HM. Það er algjör
lega sturlað að það sé svona mikið í
boði á litla Íslandi á stuttum tíma og
ekkert nema gott að segja um það að
Íslendingar hafi val,“ segir Erna.
Þetta árið verður lögð áhersla á að
gera útisvæðið flott og skapa meiri
stemningu þar. Slíkt hefur vantað
síðustu ár. Einnig eru VIPmiðar til
sölu í fyrsta skipti þar sem aðgangur
verður að svæði með útsýni yfir allan
salinn beint á sviðið.
„Annað sem má nefna er að
hátíðin hefur fengið Stálsmiðjuna til
umráða yfir hátíðina fyrir hliðarvið
burð. Þar var árlegur viðburður frá
20092014 sem kallaðist Enter the
Mayhemisphere, hliðarviðburður
og listahátíð sem auðgaði Eistna
flug mjög mikið. Vonir standa til
að geta skapað svipaða stemningu í
Stál smiðjunni í sumar og áður hefur
verið, með nýjum áherslum,“ segir
hún.
Hún bætir við að brosið sem kom
þegar styrkurinn datt í hús sé ekkert
að fara. „Við erum með sterkan hóp
á bak við hátíðina og höldum áfram
teinrétt með bros á vör og höldum
einstaka tónlistarhátíð sem við
elskum þar sem áhersla er lögð á
vináttu, gleði og samhug og allir eru
velkomnir,“ segir Erna.
benediktboas@frettabladid.is
Rokk og ról
með bros á vör
Fjarðabyggð fellir niður skuld þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs.
Því verður rokkað og rólað fyrir austan í bullandi fjöri en hátíðin
skildi eftir sig 20 milljóna króna gat í fyrra sem tekist hefur að brúa.
Skálmeldingar þenja raddbönd ásamt Adda í Sólstöfum á hátíðinni forðum daga. MYND/RONALD ROGGE
Þetta árið verður áhersla lögð á að gera útisvæðið flott og skapa meiri stemn-
ingu þar. Einnig er í ár í fyrsta skipti sala á VIP-miðum. MYND/RONALD ROGGE
2
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
C
-0
F
2
4
1
F
E
C
-0
D
E
8
1
F
E
C
-0
C
A
C
1
F
E
C
-0
B
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K