Morgunblaðið - 14.10.2017, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2017
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Fylgi Samfylkingarinnar hefur tvö-
faldast undanfarnar tvær vikur,
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
er stærsti flokkur landsins og Sjálf-
stæðisflokkurinn er næststærstur.
Þetta sýna niðurstöður nýrrar könn-
unar sem Félagsvísindastofnun Há-
skóla Íslands gerði fyrir Morgun-
blaðið dagana 9.-12. október.
Ef gengið yrði til kosninga núna
fengi VG 27,4% atkvæða og 19 þing-
menn kjörna, Sjálfstæðisflokkur
fengi 22,6% og 16 þingmenn og Sam-
fylkingin fengi 15,3% og 11 þing-
menn.
Píratar mælast með 9,2% fylgi og
sex þingmenn og Flokkur fólksins
með 6,5% og fjóra þingmenn. Mið-
flokkurinn fengi sömuleiðis fjóra
þingmenn, en flokkurinn mælist með
6,4% fylgi. Framsóknarflokkurinn
mælist með 5,5% og þrjá þingmenn,
fylgi Viðreisnar mælist 3,4%, sem
myndi ekki skila neinum þingmanni,
og Björt framtíð myndi sömuleiðis
ekki ná inn manni með 2,6% fylgi.
Önnur framboð, sem nefnd voru í
svörunum, voru Dögun, Alþýðufylk-
ingin og Íslenska þjóðfylkingin, sem
mælast með 0,2-0,4% fylgi. Þá svör-
uðu 0,2% svarenda því til að þau
myndu kjósa annan flokk eða lista.
Ris, fall eða kyrrstaða
Sé tekið mið af síðustu könnun
Félagsvísindastofnunar fyrir viku,
stendur fylgi Pírata og Framsókn-
arflokksins nánast í stað og það
sama má segja um Viðreisn og
Bjarta framtíð. Fylgi VG er einnig
svipað og í síðustu viku.
Fylgi Miðflokksins og Flokks
fólksins minnkar um u.þ.b. þriðjung
frá því fyrir viku og fylgi Sjálfstæð-
isflokksins, sem hafði dalað talsvert
á milli kannana, hefur nú aukist lítil-
lega frá síðustu könnun.
Hástökkvari vikunnar er óumdeil-
anlega Samfylkingin. Fylgi flokksins
mældist 10,8% í síðustu könnun Fé-
lagsvísindastofnunar fyrir Morgun-
blaðið. Í vikunni þar á undan var það
7,5% og í síðustu kosningum fékk
flokkurinn 5,7% atkvæða, eða um
þriðjung þess fylgis sem flokkurinn
mælist nú með.
Munur eftir búsetu og kyni
Áhugavert er að skoða hvernig at-
kvæði skiptast eftir búsetu fólks. Til
dæmis ætla 28% íbúa á höfuðborgar-
svæðinu að kjósa VG, 25% sem þar
búa ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn, en aðeins 2% íbúa höfuðborgar-
svæðisins ætla að kjósa Framsókn-
arflokkinn og 4% Miðflokkinn.
Þegar horft er til landsbyggðar-
innar horfir dæmið nokkuð öðru vísi
við. Þar ætla 12% að kjósa Fram-
sókn og 10% Miðflokkinn. 25%
landsbyggðarinnar ætla að kjósa VG
og 23% Sjálfstæðisflokk. Jafnhátt
hlutfall íbúa höfuðborgarsvæðis og
landsbyggðar ætlar að kjósa Flokk
fólksins og fylgi flokkanna á milli
landsvæða er sömuleiðis áþekkt hjá
Pírötum. Einungis 2% kjósenda á
landsbyggðinni ætla að kjósa ann-
aðhvort Viðreisn eða Bjarta framtíð.
Fylgi flokkanna er býsna mismun-
andi á milli karla og kvenna. 27%
karla og 23% kvenna ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn. Fylgi Mið-
flokksins er þrisvar sinnum meira
meðal karla en kvenna og á móti
hverjum fimm körlum sem ætla að
kjósa Pírata eru tvær konur. Tvöfalt
hærra hlutfall karla en kvenna ætlar
að kjósa Viðreisn. Dæmið snýst svo
við meðal þeirra sem ætla að kjósa
VG þar sem hlutfall kvenna er rúm-
lega tvöfalt á við karla. Fylgi Sam-
fylkingarinnar skiptist nánast jafnt
á milli karla og kvenna og það sama
má segja um Flokk fólksins og
Bjarta framtíð.
Ýmsir möguleikar á stjórn
Verði þetta niðurstöður alþingis-
kosninganna 28. október verður
stjórn Sjálfstæðisflokks og VG eini
möguleikinn á tveggja flokka stjórn,
en samtals mælast flokkarnir nú
með 35 þingmenn.
VG og Samfylkingin, sem samtals
yrðu með 30 þingmenn, gætu til
dæmis myndað þriggja flokka stjórn
með Framsóknarflokknum, Mið-
flokknum, Pírötum eða Flokki fólks-
ins.
Könnun Félagsvísindastofnunar
náði til 1.000 manna netúrtaks og
1.200 símaúrtaks. Fjöldi svarenda
var 1.250; 713 á neti og 537 í síma.
Þátttökuhlutfall var 58%.
KOSNINGAR 2017
Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna
Könnunin var gerð dagana 9. til 12. október 2017.
Eftirfarandi flokkar eða listar voru að auki nefndir á nafn í svörum
þátttakenda: Alþýðufylkingin, Dögun, Íslenska þjóðfylkingin og
„annar flokkur eða listi“, en allir með hverfandi fylgi.
Úrtakið var 2.200 manns. Um var að ræða bæði síma- og
netkönnun. Fjöldi svarenda var 1.250, sem er 58% þátttökuhlutfall.
30%
25%
20%
15%
4
6,4%
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
0
3,5% 4
6,5%
8
11,5%
3
5,5% 7
10,5%
0
3,4%
Úrslit kosninga 29. október 2016
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
Fylgi í könnunum 29. sept. og 6. október 2017
Samkvæmt könnun í dag, 14. október 2017
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
10
14,5%
6
9,2%
3
5,7%
11
15,3%
10
15,9%
19
27,4%
21
29%
16
22,6%
4
7,2%
0
2,6%
A Björtframtíð B Framsóknar-flokkur C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkurfólksins P Píratar M Miðflokkurinn S Samfylkingin V Vinstri græn
4,3%
7%
4,8%
24,3%
6,5%
11,6%
28,8%
4,6%
7,5%
10,8%
9,5%
9,1%
28,2%
2,7%
5,5%
3,1%
20,7%
9%
X-S er hástökkvari vikunnar
Ný könnun sýnir að fylgi Samfylkingarinnar hefur tvöfaldast á tveimur vikum Viðreisn og Björt
framtíð mælast enn utan þings Fylgi Framsóknar og Pírata stendur í stað Vinstri-græn stærst
„Þetta er auðvit-
að langt undir
þeim væntingum
sem við höfum
fyrir þessar
kosningar,“ seg-
ir Sigurður Ingi
Jóhannsson, for-
maður Fram-
sóknarflokksins,
um niðurstöður
könnunarinnar.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að það er mikil vinna að sækja fram
við þær aðstæður sem uppi eru
núna, þegar hluti flokksmanna er
genginn úr flokknum. Ég vænti
þess að hagur okkar muni vænkast
þegar talið verður upp úr köss-
unum.“
„Þetta er langt
undir væntingum“
Sigurður Ingi
Jóhannsson
„Þetta er
ánægjulegt, en
þetta sýnir ekki
niðurstöðu,
heldur hreyf-
ingu á fylgi,“
segir Logi Ein-
arsson, formað-
ur Samfylking-
arinnar, um
könnunina.
„Eftir síðustu
kosningar horfðum við í eigin
barm og kjörnuðum stefnu okkar.
Við höfum fengið til liðs við okk-
ur nýtt fólk sem hefur ástríðu
fyrir þeim hugsjónum sem flokk-
urinn stendur fyrir og á sama
tíma byggjum við á góðum og
sterkum grunni,“ segir Logi.
„Þetta sýnir að fylg-
ið er á hreyfingu“
Logi
Einarsson
„Mér líst bara vel
á þetta og ég er
þakklát fyrir allt
það traust sem
okkur hjá Flokki
fólksins er sýnt.
Ef við fáum þetta
upp úr kjörköss-
unum yrðum við
mjög ánægð,“
segir Inga Sæ-
land, formaður
Flokks fólksins, um niðurstöður
könnunarinnar.
Að mati Ingu hefur verið meiri
áhersla á menn en málefni það sem
af er kosningabaráttunni. „En það
hlýtur að breytast eftir því sem nær
dregur kosningum.“
Áherslan á menn
fremur en málefni
Inga
Sæland
Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson,
formaður Mið-
flokksins, segir
þessar niður-
stöður sýna
nokkuð minna
fylgi en aðrar
kannanir síðustu
daga. „Félags-
vísindastofnun
hefur áður sýnt
okkur lægri en aðrir, það á sér
væntanlega einhverjar skýringar.
En aðalatriðið er að ég finn fyrir
miklum meðbyr og áhuga á því sem
við höfum fram að færa,“ segir Sig-
mundur. „Við munum kynna
stefnumál okkar betur núna um
helgina og það verður áhugavert að
sjá næstu kannanir eftir það.“
Finnur mikinn með-
byr og áhuga fólks
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
„Við finnum mik-
inn stuðning við
þau málefni sem
við leggjum
mesta áherslu á,
sem eru jafnrétt-
ismál, umhverf-
ismál og upp-
bygging innviða.
Þessi mál virðast
brenna einna
mest á fólki,“
segir Katrín Jakobsdóttir, formað-
ur VG, um niðurstöður skoðana-
könnunarinnar. Hún segist verða
vör við mikla eftirspurn eftir stöð-
ugleika til næstu fjögurra ára.
„Vonandi sjá kjósendur okkur í VG
sem það afl,“ segir hún.
Segir eftirspurn
eftir stöðugleika
Katrín
Jakobsdóttir
„Það virðist vera
nokkurt los á
fylginu og nið-
urstöður skoð-
anakannana eru
mjög mismun-
andi,“ segir Ótt-
arr Proppé, for-
maður Bjartrar
framtíðar, um
könnun Félags-
vísindastofn-
unar. „Auðvitað myndi ég vilja sjá
meira fylgi og ég hef fulla trú á að
svo verði þegar upp er staðið. Við
erum nú ekki farin að örvænta og
einblínum meira á málefnin en
kannanir og förum keik í kosninga-
baráttuna.“
„Við förum keik í
kosningabaráttuna“
Óttarr
Proppé
Bjarni Benedikts-
son, formaður
Sjálfstæðisflokks-
ins, segir hækk-
unina í könnun-
inni í samræmi
við upplifun.
„Að við hækk-
um í fylgi er í
samræmi við okk-
ar upplifun. Ég
hef samanburð
við það sem við fundum í fyrra og
mér finnst meiri meðbyr með okkur
nú en þá,“ segir Bjarni, sem er bjart-
sýnn á framhaldið „Ég er mjög
bjartsýnn. Það er mikill kraftur í
okkur og nógur tími til stefnu til að
hækka þessar tölur.“
Aukið fylgi í sam-
ræmi við upplifun
Bjarni
Benediktsson
Þorgerður Katr-
ín Gunnars-
dóttir, formaður
Viðreisnar, segir
ekkert annað í
stöðunni en að
bretta upp erm-
ar. „Þetta er ör-
lítil hækkun, það
er gott en það
þýðir ekkert
annað fyrir okk-
ur en að bretta upp ermar. Við er-
um raunsæ en baráttuglöð,“ segir
Þorgerður og bætir við að kosn-
ingabaráttunni sé ekki lokið.
„Þetta er ekki búið fyrr en dóm-
arinn flautar af og það er 28.
október.“
Ekki búið fyrr en
dómarinn flautar af
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
„Fylgi Pírata er
augljóslega
nokkuð stöðugt
og það er ákveð-
inn styrkur í
því,“ segir Helgi
Hrafn Gunnars-
son, frambjóð-
andi Pírata, um
niðurstöður
könnunarinnar.
„En auðvitað
myndum við vilja fá a.m.k. það fylgi
sem við fengum í síðustu kosn-
ingum,“ segir Helgi. Hann segist
búast við að kannanir sýni tals-
verða breytingu á fylgi flokkanna
fram að kosningum eftir að flokk-
arnir leggja fram kosningamál sín.
Ákveðinn styrkur
í stöðugu fylgi
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, for-
stöðumaður Félagsvísindastofn-
unar, segir að könnunin gefi örlít-
ið skakka mynd af fylgi Sjálf-
stæðisflokksins þar sem enn sé
verið að spyrja hvort fólk ætli að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern annan flokk sem þriðju
spurningu. „Það var byrjað að
nota hana þegar Sjálfstæðisflokk-
urinn var með um og yfir 40%
fylgi. Það var aðallega til þess að
fækka þeim sem voru óákveðnir.
Þeir sem voru óákveðnir vissu yf-
irleitt hvort þeir ætluðu að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern
hinna flokkana en þetta hefur
breyst mikið,“ segir Guðbjörg.
Örlítið skökk mynd af Sjálfstæðisflokknum