Morgunblaðið - 14.10.2017, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2017
Alþingiskosningar
28. október 2017
Valhúsaskóla við Skólabraut
Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi, almenningi til
sýnis frá 18. október á bæjarskrifstofum Seltjarnarness
Austurströnd 2, í þjónustuveri á 1. hæð, á opnunartíma skrif-
stofunnar.
Kosning utan kjörfundar er í Smáralind, Kópavogi.
Atkæðagreiðslan fer fram vestanmegin á 2. hæð í Smáralind.
Þar verður opið alla daga milli kl. 10 og 22.
Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 28. október 2017,
er í Valhúsaskóla við Skólabrautog hefst kl. 9:00 og lýkur
kl. 22:00.
Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í
undanförnum kosningum.
www.kosning.is - Kosningavefur innanríkisráðuneytisins er
með ýmsar upplýsingar um kosningarnar t.d. uppflettingu á
vefnum „hvar ertu á kjörskrá?“.
Munið eftir persónuskilríkjum.
Aðsetur kjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar
á kjördag er í Valhúsaskóla.
F.h. Kjörstjórnar
Pétur Kjartansson, formaður
Kjörfundur á Seltjarnarnesi er
frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í
Að minnsta kosti 31 maður lét lífið
í gróðureldum sem geisað hafa í
Kaliforníu frá því á sunnudag. Enn
er ekki vitað um afdrif 400 manna
en talið er að einhverjir þeirra hafi
komist lífs af án þess að hafa látið
vita af sér.
Alls hafa rúmlega 3.500 hús
eyðilagst, m.a. 2.800 íbúðarhús í
borginni Santa Rosa þar sem heilu
hverfin urðu eldunum að bráð. Um
25.000 manns hafa þurft að flýja
heimili sitt í Sonoma-sýslu einni.
Um 76.000 hektarar gróðurlend-
is hafa brunnið. Nær 8.000
slökkviliðsmenn taka þátt í
slökkvistarfinu. Þeir nota 820
slökkvibíla, þar af 170 frá öðrum
ríkjum, 73 þyrlur og um 30 tank-
flugvélar. Hundar eru notaðir til
að leita að líkamsleifum en sumir
þeirra, sem urðu eldunum að bráð,
brunnu svo illa að ekki verður
hægt að bera kennsl á þá.
AFP
Brunarústir Heilu íbúðahverfin brunnu til kaldra kola í borginni Santa Rosa sem er með um 175.000 íbúa.
3.500 hús eyðilögðust
Mikið manntjón
í skæðum gróður-
eldum í Kaliforníu
Þúsundir manna hafa misst heimili sitt í eldum sem kviknuðu 8. október
Gróðureldar í Kaliforníu
Heimild: CALFIRE
San
Francisco
KYRRAHAF
NEVADA
ARIZONA
UTAH
KALIFORNÍA
Sacramento
NapaSonoma
Yuba
Mendocino
Los
Angeles
200 km
BANDA-
R ÍK IN
WASHINGTON
Eldar sem
loguðu í gær
Bandaríska leikkonan Rose McGowan hefur sakað kvik-
myndaframleiðandann Harvey Weinstein um nauðgun
og hún er fjórða konan sem ber hann þeim sökum.
McGowan sagði á Twitter að hún hefði sagt Roy Price,
yfirmanni Amazon Studios, frá nauðguninni en hann
hefði virt ásökunina að vettugi. Price hefur fengið fjar-
vistarleyfi hjá fyrirtækinu vegna þess að hann hefur
sjálfur verið sakaður um kynferðislega áreitni. Fyrir-
tækið er dótturfélag Amazon og framleiðir kvikmyndir
og sjónvarpsþætti.
Weinstein hefur neitað öllum ásökunum um nauðgun.
Skýrt hefur verið frá því að lögreglan í New York-borg
hafi hafið rannsókn á ásökun ungrar leikkonu um að Weinstein hafi þving-
að hana til samræðis árið 2004. Breska lögreglan hefur einnig hafið rann-
sókn á hendur Weinstein vegna meintrar kynferðislegrar árásar á leik-
konu fyrir 30 árum.
BANDARÍKIN
McGowan sakar Weinstein um nauðgun
Leikkonan Rose
McGowan
Einn af fjórum læknum, sem gagn-
rýndu fyrst plastbarkaaðgerðir
ítalska skurðlæknisins Paolos
Macchiarinis, segir að sú ákvörðun
sænskra saksóknara að ákæra hann
ekki sé „réttarhneyksli“.
Saksóknarar hófu rannsókn á
málinu í fyrra og tilkynntu í fyrra-
dag að þeir hefðu ákveðið að fella
hana niður án ákæru. Saksóknarinn
Jennie Nordin sagði að ekki væri
hægt að sanna að plastbarkaaðgerð-
in hefði valdið dauða þriggja sjúk-
linga sem dóu eftir að Macchiarini
hafði grætt í þá plastbarka á Karól-
ínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi.
Erfitt að sanna lögbrot
Saksóknararnir komust að þeirri
niðurstöðu að Macchiarini hefði
gerst sekur um „gáleysi“ í fjórum af
fimm aðgerðum og þær hefðu ekki
samrýmst hefðbundnum starfs-
reglum skurðlækna. Mál sjúkling-
anna væru þó mjög flókin og sér-
fræðingar væru ekki sammála um
hvers konar meðferð sjúklingarnir
hefðu átt að fá. Mjög erfitt væri því
að sanna að plastbarkaaðgerðirnar
hefðu valdið þeim meinum sem
drógu sjúklingana til dauða síðar.
„Við höfum ekki getað sannað að
lögbrot hafi verið framið,“ sagði
Nordin.
„Ég gerði mitt besta til að veita
þessum sjúklingum með banvænan
sjúkdóm möguleika á lækningu,“
hefur fréttaveitan AP eftir Macchi-
arini. Hann gagnrýndi umfjöllun
fjölmiðla um málið og sagði að „róg-
ur“ um lækna, sem reyndu að gera
sitt besta fyrir sjúklinga við mjög
erfiðar aðstæður, gæti aðeins „haft
skaðleg áhrif á lækna og sjúklinga í
framtíðinni“.
Karl-Henrik Grinnemo, einn fjög-
urra lækna sem lýst hefur verið sem
„uppljóstrurum“ í málinu, segir
niðurstöðu saksóknaranna valda sér
miklum vonbrigðum. Sænska dag-
blaðið Expressen hefur eftir honum
að hann „finni fyrir miklum tóm-
leika“ vegna niðurstöðunnar sem
hann segir vera „réttarhneyksli“.
„Það virðist vera algerlega tilgangs-
laust núna að tilkynna um alvarleg
brot í starfi þegar ekkert er gert við
þeim. Geta menn í framhaldinu gert
hvað sem þeir vilja við sjúklinga án
þess að það leiði til ákæru?“
Niðurstaðan sögð
„réttarhneyksli“
Læknir gagnrýnir þá ákvörðun
saksóknara að ákæra ekki Macchiarini